Fálkinn


Fálkinn - 26.03.1938, Blaðsíða 6

Fálkinn - 26.03.1938, Blaðsíða 6
() F Á L K I N N BRJEF TIL WILUAMS HUMPELS Frá Sesselju Jakobsdóttur. ITÆRI VILLI minn! Með hrærðu 1V hjarta pára jeg þessar línur, og lengi hef' jeg skotið því á frest; en það er eitthvað innan í mjer, sem segir, að það sé skylda mín að aðvara þig áður en það er orðið of seint. Síðan hún móðir þin sáluga (ló, þegar þú varst barn finnn ára og jtangað tii þú fórst að heiman i fússi, veistu að jeg hefi gert mitt fremsta fyrir þig og lagt á lilig armæðu og áhyggjur til þess að verða þjer og honum föður þinum að gagni, og þegar þú skrifaðir mjer og baðst um hjálp þegar þú varst versl staddur, fjekstu altaf það sem jeg gat sjeð af, þó jeg yrði þess brátt áskynja að peningarnir færu í fyllirí og kvennafar og að rauna- sögurnar þínar væru höfuðverkur og æfintýri. Margsinnis hefir mjer legið við að skrifa: Svci attan, Villi, þú sem ert uppaiinn i kristilegum barnalærdómi og hefir verið í K. F. U. M. og verslunarskólanum! En altaf hefir eittlivað stöðvað pennann og hann hefir snúist gegn sjálfri mjer og sagt: Hver á sökina á því, að þetta fór svona? Hver hefir alið hann upp nema þú sjálf? Faðir hans hafði ekki tíma til að sinna honum og aðra var ekki um að ræða. Jeg inan svo grant i fyrsta skifti, sem þú liafðir komist upp í diskagrindiua og jeg saknaði 35 aura, sem áttu að vera fyrir reyktum makril, sem þjer þótti svo góður. Mjer fanst jeg ætla að sökkva ofan í jörSina af blygðun. að nokkur með Humpels nafni gæti gert slíkt. Að vísu hafðirðu logið að mjer við fjöldamörg tækifæri, og livað segir ekki flakkarinn: Sá sem lýgur getur líka stolið liænu. Iin þetta en nú samt dálítið annað, þegar maður rekst skynberlega á það í lifandis lífi. Og svo er það, þegar þeir lokuðu fyrir gasið, af því að þú hafðir sleikt upp peningana, sem þú áttir að fara með á gasstöðina og sagðist svo hafa týnt þeim og ekki þorað að segja frá því. Þetta varð jeg að borga úr eigin vasa, þó að jeg hefði ekki nema þrjátíu krónur á mánuði, og það þó ekki nema þegar hann faðir þinn hafði þær handbærar og það var ekki altaf. Og svo var það þegar þú varst flutt- ur heim fullur á handvagni, og allar stelpurnar og skólastrákarnir komu í hóp á eftir, híandi og hlæjandi og jeg færði þig úr fötunum og selti þig í volga laug og helti ofan í þig heitu, svörtu kaffi. Þá lofaðirðu að þú skyldir aldrei gera þetta oftar, ef jeg segði honum pápa þínum ekki frá því, og þú skældir og jeg hjelt að þú værir á betrunarvegi, en þetta voru þá eintóm látalæti, því að sunnudaginn næsta varstu blindfullur líka. Og svo var það kvöldið þung- bæra, þegar þú löðrungaðir mig, af því að jeg vildi ekki lileypa þjer út. Jeg mundi ekki hafa minst á þetta ef það væri ekki svo, að þessar minn- ingar yfirþyrma mig, og eitthvað innan í mjer segir, að jeg eigi að minna þig á það. En ástæðan til þess að jeg tek tnjer penna í hönd er saint önnur og enn raunalegri: Hjer kom ung stúlka á dögunum og sagði, að þú hefðir gert sig ógæfusama, og að hún mundi vinna sjálfri sjer tjón ef hún fengi ekki utanáskriftina þína. Jeg fór öll að skjálfa og var hvefsin við hana og sagði sem svo við hana, að hún mætti víst sjálfri sjer um kenna að svo fór sem fór, og að það þýddi víst lítið að púkka upp á þig, vegna þess að þú ættir víst nóg með sjálfan þig. Jeg veit að þú hefir nýlega reynt að fá lán hjá honum Lundgren kaffi- kaupmanni og honum Niels Vante ullarsala og að þeir neituðu báðir og kváðust ekki ætla að láta þig sólunda sínum peningum. En stúlkan sagði, að það kæmi út á eitt, og að hún vissi, að þú værir í þingum við aðrar stelpur; en ef hún næði til þín þá skyldi hún sýna þjer til hvers hún dygði, og að ef þið kæmust í hjóna- band þá mundi lnin kippa öllu í lag. Loksins kendi jeg i brjósti um hana og gaf henni utanáskriftina, enda var mjer ekki til neins að færast undan því, þar sem þeir hafa manntalsskrá hjerna og alt þessháttar, svo að þeir sem eitthvað hafa gert fyrir sjer hafa engan frið. Svo að nú máttu búasl við brjefi frá henni bráðum, og ef þú hefir ekki gert hinar stúlkurnar ógæfusamar líka þá f-inst mjer það vera skylda þín að taka þessa, hún lítur dável út, og hefir kanske rjetta lagið á þjer, þó að mjer verði nú á að efast um, að nokkur geti tjónkað við þig; en sje það nokkur, þá hlýtur það að vera kvenmaður — svo mikið er víst. Jeg hugsa til þín á hverju kvöldi þegar jeg er komin upp í og horfi upp í gluggann, og óska þess inni- lega, að þú megir snúa við meðan tími er til. Jeg legg finim krónur hjerna innan i fyrir tóbaki eða ein- liverju öðru smávegis, sem þú þarft á að halda. Bestu kveðju frá göinlu fóstru þinni. Sesselju Jakobsdóttur. Frá Önnu Kylling. T-T LSKAÐI VILLI! Hvernig gastu verið svona slæmur við tnig, þú sem Iofaðir öllu hugsanlegu og sagðir að þú skyldir aldrei bregðast mjer og að það væri engin ástæða til að vera hrædd. Jeg er svo ógæfusöm og jeg græt bæði nætur og daga, og pappírinn sem jeg skrifa á er blett- aður af tárum, þvi að nú er þetta fram komið samt, og ef þú yfirgefur mig nú, veit jeg ekki hvað jeg á við mig að gera annað en að drekkja mjer. Fyrst hjelt jeg nú að það gæti ekki verið satt, eftir alt sem |)ú hafð- ir lofað; en svo var ekkert um að villast, svo jeg fór um daginn til gönilu ráðskonunnar ykkar og bað um utanáskrift þína og fjekk liana loksins. Jeg ætlaði að skrifa sama daginn, en þegar jeg kom heim lagð- ist jeg með hita, svo að jeg hefi ekki getað skrifað fyr en í dag, til þess að segja þjer hvernig komið er. Elsku dengsi: Jeg grátbæni þig um að bregðast mjer ekki en giftasl mjer, ef þú vilt það ekki þá getum við búið saman fyrir því — sama stendur mjer. Jeg get soðið matinn, tekið til og stagað sokkana þina, og þegar jeg er búin að eiga barnið get jeg fengið mjer ljetta vinnu og þá komumst við vel af, ef þú bara vilt. Jeg er viss um, að þú getur fengið atvinnu, jeg á bróður sem vinnur í verksmiðju á íslandsbryggju í Kaupmannahöfn og jeg býst við að hanh geti útvegað þjer eitthvað, þó ekki verði það skrif- stofustarf svona alveg undir eins. Jeg t vel að þú ert ekki illi innrættur, en bara dálitið ljettúð- ugur og veikur fyrir og ef lil vill stafar það af því, að það hefir aldrei neinn borið traust til þín. Þegar jeg var heima sagði pabbi oft, að ef maður sýndi fólki traust þá reyndi það að verðskulda það, en mamma sagði að vísu, að til vonar og vara væri rjettara að byrja með að lána fólki tíu krónur en hundrað. Hún hafði lánað öllum konunum í næstu húsum kaffi, brauð, rjóma, sykur, potta og pönnur og það skifti um þær 3—4 sinnum á ári, en hún gat talið þau skipti, sem hún fjekk nokkuð aftur. En jeg trúi á þig og elska þig, og það er barnið okkar, sem gerir mjer svo erfitt fyrir núna. En ef þú aðeins skrifar, að jeg megi koma til þín, og að við skuluni lijálpa hvort öðru, tel jeg þetta ekkert erfiði, en skal verða himinlifandi glöð, og þegar við verðum þrjú getum við ekið barnavagni í Söndermarken. Þig Inngar reyndar kanske ekki að aka barnavagni — það eru margir karl- menn svoleiðis. Skrifaðu mjer nú það fyrsta og mundu að sú sem nú lifir í eftir- væntirígu og kviða er þín til dauðans Irygg. Auna Iiylling. Frá Lundgren kaffikaupmanni. ITAiRI WILLIAM Humpel! Þvi v miður verð jeg að hryggja yður með því að neita bón yðar um að lána yðip’ 50 krónur i peningum. Ef þjer viljið leyfa mjer fliUa hrein- skilni, þá verð jeg að segja, að jeg er talsvert kvíðinn um framtíð yðar, og ef þjer viljið þiggja gott ráð frá gömlum kunningja, þá: takið yður saman meðan tími er til. Þjer getið ekki hafa gleymt, að jeg hefi lánað yður peninga þrívcgis, og að þjer iiafið ekki enn leiðrjett það leiðin- lega atvik, sem varð til þess að þjer urðuð að fara af skrifstofunni minni. Já, jeg verð að segja, að jeg undrast dirfsku yðar, en það mun vera svo, að neyðin brýtur öll lög og að þjer grípið til örþrifaráða tilneyddur. En það mun sannast, að neyðin mundi vera jöfn eftir sem áður þó að jeg Ijeði yður nefnda upphæð. Ljéttirinn mundi vara nákvæmlega þann tíma sem þjer væruð að sóa peningunum og svo stæðuð þjer i sömu sporum. Jeg man að jeg átti einu sinni tal við við föður yðar. Þjer voruð þá orðinn stálpaður og hann ætlaði að láta yður læra hand- verk, en þá kom á daginn að þjer liöfðuð gott lag á að teikna. Sjálfur hefi jeg aldrei kunnað að teikna, þ. e. a. s. einu sinni tókst mjer að teikna hund, sem kom fljúgandi með tunguna út úr kjaftinum og lappirnar og eyiun sneru öfugt og brotinn hlekkur um löppinn — þessi brotni hlekkur varð mjer táknmynd. Nú vissi jeg að jeg var listamaður, og jafnvel fjölskyldan sá, að jeg var tkki fæddur til viiinu; heldur lil legata. AUir nema gömul föðursysti'- mín og henni er jeg æfinlega þakk- látur. Hún sagði: I átið hann læra handverk, og svo getur hann lært að teikna ])egar honum gefst tími til. Jæja, en þjer lærðuð aldrei hand- verk og — ef satt skal segja: yður hefir gengið illa i lífinu. Þjer megið ekki halda, að mjer sje Ijett að skrifa þetta. En yðar sjálfs vegna verð jeg að skora alvarlega á yður, að taka yður saman. Yðar einlægur Sophus Lundgren. Frá Önnu Lovísu Christensen (Fífí) JTÆRI BUSTER! Hvað varð af 30 v krónunum, sem jeg lánaði þjer á ballinu fyrir hálfum mánuði? Þú ert nú og verður hrappur, ótætið þitt; en skítt veri með krónuseðlana, ef Eftir NIS PETERSEN þú hefir skeml þjer. .litli jeg nái ekki aftur í einhverjar sem líkjast þeim, það væri þá í fyrsta skifti sem það brygðist, og ef þú kemst i slæma klípu aftur, þá komdu bara til hennar mömmu þinnar og þyldu harmatölur. Þú ert ekki sá fyrsii, sem kemur til mín, þegar hann er orðinn afvanur mat og langar í það sem gott er. Jeg var i kófdrykkju i gærkvöldi og það er heilt bý- flugnabú í haúsnum á mjer — maður skyldi nú ætla, að þær hefðú getað fengið hentugri stað, en jeg verð altaf að taka því sem að höndum ber. Einhverstaðar verður vondur að vera. Við vorum b.eima hjá Rúlta; þar var yfirrjettarmálaflutningsmað- ur, fulltrúi, málverkasali og Silki- Nielsen, en bara tveimur tímum áður en við koinuni hafði verið lokaö fyrir rafmágnið, af því að Rúlli hafði í misgáningi skilið þær kringlóttu eftir i vínkjallaranum á horninu i staðinn fyrir að fara með þær á skattstofuna. En mjer finst nú skrambi hart, að þeir skuli leyfa sjer slíkt fyrir skattinum, þegar maður hefir borgað bæði gas og rafmagn; en svona er það nú samt, og að vissu leyti var það ansi gaman; það stóð bjórflaska á miðju borði og saug tólgarkerti, og það vóru mergjaðar sögur, sem komust á kreik i svona upplýsingu. Sjerstaldega þær, sem' Silki-Nielsen sagði; reyndar voru þær lítið skárri hjá yfirrjett- inum. Hann sagði eina á latínu; cn annars hefði hann eins vel getað sagt liana á rjettu máli strax, því að hann varð auðvitað að þýða hana. .leg skal skrifa hana niður handa þjer — þú hefir víst gleymt pún versku striðunum lika; en þegar maður hefir fengið þýðinguna getur maður vel skilið hana á latinu lika og þar er hún auðvitað sniðugri. Þegar leið á kvöldið vildu þeir endilega að jeg dansaði blæjudans og þegar þeir höfðu nauðað á mjer um stund gerði jeg það, í þágu hins góða málefnis. Síðan fóru þeir að rugla, og þegar yfirrjetturinn fór að spyrja, hvort jeg vildi verða volgru- belgur í rúminu lians afa laumaðisL jeg með Silki-Nielsen út í gullaldar- salinn. Hann er sá eini sem altaf hefir vasabókina nokkurnvegin i lagi. Ef jeg get skal jeg reyna að ná \ eittlivað af fötum sem hann er hættur að nota. . . . jeg lield að þið notið álíka stórt — að minsta kosti á hæðina, og hitt gengur altaf. Þú varst nú ekki prúðmannlegur seinast, afsakaðu að jeg segi það. Við verð- um að dubba þig upp. Meðál annara orða: Pjetur Pop er horfinn, og maður hugsar sitt hvað; en mjer kemur það ekki á óvart. Hann liefir lengi hagað sjer svo, að jafnvel skjaldböku gæti verið farið að gruna sitt af hverju. Jæja, ef jeg fæ tíma til einhvern daginn, þá sendi jeg leigubil á stað að leita að þjer. Jeg þrái stundum að fá að skrafa við þig. Cheerio! Fifi

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.