Fálkinn - 14.04.1939, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
LANGUR ALPALÚÐUR.
Svissneski bóndinn hjerna, sem
án efa hefir góð lungu, skemtir gesl-
unum á kaffiliúsi í St. Moritz með
þvf að blása í Alpahornið sitt.
BAKARINN f BETLEHEM
er á leið gegnum bæinn með bra'u'ð
á handleggnurn til viðskiftavina
sinna. Bakaraiðnin hefir gengið í
arf til hans ættlið fram af ættlið.
Þó ófriðlega syngi í ítölum i garð
Frakka liefir það ekki haft nein á-
hrif á þessa landamæraverði, sem
sjást hjer á myndinni. Annar er
franskur og hinn ítalskur.
Myndin sýnir dyrnar að liinni
nýju vinnustofu Hitlers í stjórnar-
ráðshyggingunni miklu í Berlín. -
Byggingin er að miklu leyti úr
marmara og í henni eru 90 stofur.
HEIMSMEISTARATIGN Á SKÍÐUM.
Heimsmeistarakepni í skíðaíþrótt
á þessum vetri fór fram í Zakapone
í Póllandi. — Myndin sýnir stökk-
hrautina. Þarna var það sem Birger
Ruud tapaði heimsmeistaratitlinum
fyrir Þjóðverja.
ATVINNULEYSINGJAR í LONDON
Nokkrir atvinnuleysingjar í Lon-
don liafa bundið sig fasta með
hlekkjum við járngrindurnar fyrir
framan atvinnumálaráðuneytið. —
Lögreglan varð að leysa jiá með
stálsögum.
MINNISMERKI GEORGS FIMTA.
Þetta fagra minnismerki um
Georg fimta Bretakonung á að reisa
hjá þinghúsinu í London. Er aðeins
til eftirlíking af því ennjiá, en hún
hefir verið samþykt af ekkjudrotn-
ingunni og Georg konungi. í bog-
anum yfir standmyndinni gætir
sama stílsins og á þinghúsinu.
VIÐHAFNARHÓTEL í HEIMI.
í bænum Toronto í Kanada liefir
verið opnað stærsta viðhafnarhótel
í lieimi. Það er útbúið öllum liugs-
anlegum þægindum, en það kvað
vera dýrt að búa i því!
KVIKMYNDALEIKKONAN
MADELEINE CAROLL,
sem boðið hefir ensku konungs-
hjónunum heim til Hoilywood með-
an þau dvelja í Ameriku, er heima
hjá sjer i Englandi um þessar mund-
ir. Hjer sjest hún á Breston flugstöð-
inni ásamt manni sinum, Phillip
Astley kapteini.
Þegar Júliana Hollandskrónprins-
essa kom til Khafnar í sumar not-
aði hún litla strákörfu til þess að
bera dótlur sina á 1. ári í. Nú hafa
ýmsar danskar mæður tekið upp
þessa tisku, og það er eigi fátitt að
sjá liær með „Júlíönukörfu" í liend-
inni.
Við sjónvarpsútsendingu í London
var sýndur nýlega þessi fallegi
brúðarkjóll. Konan, sem er í kjóln-
um er lafði Bartett. Hún leikur
]iarna í smáþætti, sem kallaður er
„Markaður fordildarinnar" og lýsir
hún kjólnum samtímis þvi sem hún
sýnir hann.
DOItOTHY LAMOUR,
í nýrri kvikmynd, sem tekin er í
Ameríku. Lamour er amerísk og nýt-
ur mikils álits sem leikkona.