Fálkinn


Fálkinn - 21.04.1939, Blaðsíða 2

Fálkinn - 21.04.1939, Blaðsíða 2
2 F Á L R I N N GAMLA BÍÓ. Gamla Bíó sýnir bráðum sænska gamanmynd fírímudansleikurinn með Gösla Ekman og Siyne líasso í að- alhlutverkunum. Hver er sá kvikmyndavinur að hann langi ekki til að sjá Gösta Ekriian, hinn óviðjafnanlega leikara og ekki siður fyrir það að hann er liorfinn rir þessum heimi nema í kvikmyndunum, sem geyma munu nafn lians um aldur og æfi sem eins af stórmennum listaheimsins. Gösta Ekman ljest fyrir rúmu ári siðan og varð þá fullkomin þjóðar- sorg í Svíþjóð, auk þess sem lát lians vakti mikinn söknuð meðal allra leiklistarvina viðsvegar urn heim. Gösta Ekman var einn af þessum tiltölulega fáu listamönnum af guðs náð. Hann var fæddur lil að sigra á leiksviðinu og hljóta takmarkalausa aðdáun allra, sem sáu hann. Ljek hann hvert stórhlutverkið á fætur öðru af ólíkustu gerð og virtist hann jafnvígur á gaman- og sorgarhlut- verk; hlátur og grátur lágu jafn eðlilega fyrir honum, því liann var maður sterkra tilfinninga og stór- brotinnar lundar. Mörg af hinum stórfenglegustu sögulegu hlutverk- um úr leikritum Strindbergs ljek hann svo að engum sem sáu, fær liðið þau úr minni. Grimiidansleikurinn er gaman- mynd, og leikur Ekman þar ungan skólastjóra, sem gengur í heilagt hjónaband við vellríka konsúlsdóttur. Hjónabandið gengur vel til að byrja Framh. á bls. 15 LOUIS ZÖLLNER KONSÚLL HÁLFNÍRÆÐUR. Louis Zöllner er nafn sem margir meðal eldri íslendinga kannast við. Nú sem stendur er hann ræðismað- ur Dana og íslendinga i Newcastle. En um langt skeið var liann mikið riðinn við verslunarmál íslands, og ei jafnvel enn. Þessi mæti maður og ágæti íslands- vinur, sem unnið hefir hið liappa- drýgsta starf fyrir verslun íslend- inga, varð hálfníræður á mánudaginn var, en er þó enn hinn ernasti og hygst að ferðast til íslands innan skamms. Framh. á bls. 15 ADOLF HITLER RÍKISKANSLARI og foringi þýsku þjóðarinnar, eins og hann kallar sig nú, átti fimtugsaf- mæli i gær. — Hann fæddist i Brunau, rjeft við landamærin milli Austurríkis og Þýskalands, sein voru afnumin með sameiningu þessara ríkja í fyrra. Hitler lifði sem óbreyttur verka- maður, þangað til hann gerðist sjálf- boðaliði í þýska hernum í heimsstyrj- öldinni. Árið 1919 stofnaði hann nas- istaflokkinn þýska, en þýskur ríkis- borgari varð hann ekki fyr en skömmu áður en hann var útnefndur kanslari af Hindenburg ríkisforsef.a árið 1933. IHI TÆKIFÆRISGJAFIR Kventoskur, al vönduðustu gerð. nýtísku skinn og Iitir, frá kr. 12.00, samstæðir hanskar, verð frá kr. 11.50. Buddur og Seðlaveski, ITll nýjar gerðir, besta gjöfin handa drengjum Ef komið er tímanlega er hægt að ' 'Í‘ merkja gjafirnar. 9 1 r ——m eS HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ Eftir efnum ogástæöum. Sportvöruhús Reykjavíkur Talsími 4053 — Bankastræti 11 REYKJAVÍK Fermingar og sumargjafir NETTAR eða ERABOX 6x9cm. 6x9cm. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Hitstjóraj’: Skúli Skúlason. Sigurjón Guðjónsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aöalskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar úskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverö: 20 aura miltim. HERBERTS prent. Skraddaratiankar. Maður lieyrir stundum gamalt fólk hrista höfuðið og jagast yfir „öllum ferðafyrirganginum", sem sje í unga fólkinu nú á tímum. Á vetrum eru það skíðaferðirnar og á sumrin göng- ur upp um fjöll og firnindi, útilegur í tjaldi og aðrar fáránlegar tiltektir. „Ekki var það svona í minu ung- dæmi“, segir það og lætur sjer blöskra. Þetta er ekki nema eðlilegt. Gamia fólkið þekkir þetta ekki. Og það er að sínu leyti alveg jafn forviða eins og unga fólkið núverandi mundi verða eftir þrjátíu ár, ef það sæi liiirnin sín híma inni í stofu á sunnudögum og hafast ekki að. Hjer ræður breyttur aldarháttur, og það er ekkert nýtt þó aldarháttur breyt- ist. Ef hann breytist ekki þá er þjóð- in í voða. Ef gamla fólkið hefði reynt það sjálft, hve mikla liressingu og endur- næringu það veitir kyrsetufólkinu, að hreyfa sig, og þreyta sig um helgar, og hve mikla unun það veitir og til- breytingu, að sjá nýtt land og nátt- úrufyrirbrigði, sem unglingar liafa áður aðeins þekt af afspurn — þá mundi gamla fólkið ekki telja úr, heldur ýta undir. Það verður ekki um það deilt, að hvernig sem á það er litið, eru ferðalög langhollasta skemtunin, sem nokkur maður á völ á. Maður lærir meira á eins dags göngu en á heilli bók, þó góð sje, og maður skemtir sjer belur á ferða- lagi, ef ekki steðja óvæntar hindran- ir að, en við að horfa á Harald Á. Sigurðsson, að honum ólöstuðum. Og maður hefir að jafnaði betri endur- minningar eftir ferðalög og útiveru en eftir nokkuð annað, sem maðu;- upplifir. — Þetta vita þeir sem reynt luifa. Aðrar þjóðir urðu til þess að uppgötva þetta á undan okkur, og njóta ferðalaga sinna, jafnvel þó að Jiær liafi hvergi nærri eins skemti- legt land að ferðast um eins og við. Því að það verður ekki rengt, að norðan Alpafjalla á engin þjóð jafn guðdómlegt land til skemtiferða og íslendingar eiga. Norðmenn græddu síðastliðið ár 68 miljónir króna á útlendum ferðamönnum eingöngu og eiga þó hvergi volgru i jörð, hvað þá goshveri, og verða lielst að fara norður fyrir Þrændalög til þess að sjá fallegt sólarlag. Vill svo nokkur maður neita því, að við, sem eigum merkilegasta landið í Evrópu, höfum ekki bæði gagn og gaman af að kynn- ast því? Sá sem neitar því, verð- skuldar að lifa í kjallara alla sína æfi.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.