Fálkinn - 05.05.1939, Qupperneq 1
15 síður 4D aura
Reykjavík, föstudaginn 5. maí 1939.
Uppsprettur hjá Húsafelli.
Efsta sveitin með Hvítá Borgavfjarðarmegin er Hálsasveit, sem þykir falleg bygð, en þó er sameiginlegt áúit að náttúrufeg-
urðin á Húsafelli skari fram úr. Þar er hrífandi fögur fjallasýn til Strúts, Eiríksjökuls og Oks og fleiri fjalla, mikið er
þar um tærar uppsprettur er koma undan hrauninu, og loks er þar skógur mestur í Borgarfjarðarhjeraði, kallaður Húsa-
fellsskógur. — Þegar farin er Kaldadalsvegur úr Reykjavík til Borgarfjarðar, er fyrsti bærinn, er verður á leið manns eftir að
komið er í bygð, Húsafell. Kaldadalsleiðin er skemtileg, og ekki síst fyrir að aka gegn um Húsafellsskóg. — Myndina tók
Árni Böðvarsson, Ijósmyndari, Akranesi.