Fálkinn


Fálkinn - 05.05.1939, Síða 2

Fálkinn - 05.05.1939, Síða 2
2 F Á L K I N N DANIELLE DARRIEUX FYRIIt RJETTI. Hin undrafagra franska leikkona Danielle Darrieux hefir nú ráðið sig til Hollywood, en líklega verður hún ekki lengi þar, þvi að frönsku dóm- stólarnir hafa dæmt hana seka fyrir samningsrof og verður hún því að fara til Frakklands aftur og fullnægja samningum sínum þar fyrst. Universal fjelagið, sem hafði ráðið Danielle vestur býst þó við að hún geti leikið í einni mynd enn áður en hún fer aftur til Frakklands í apríl. Siðasta myndin sem Danielle ljek í í Frakklandi áðúr en hún fór vestur hjet „Katie“ og segir frá ástum Al- exanders annars keisara og fursta- frúarinnar Katiu Dolgorouki. Hann biðlaði símleiðis — i tónum. Tækni og rómantik. Ástarsaga. Þeir, sem segja að rómantikin sje útlæg ger úr heiminum, mega nú skifta 'um skoðun. Að minsta kosti sýnir eftirfarandi saga alt annað. Irina Baronova, mjög þekt dans- mær í Á'stralíu, var stödd eitt kvöld í fataklefa á stóru leikhúsi í Mel- bourne. Þá hringdi síminn: Ríkissíminn til ungfrú Baronova, frá London! tilkynti miðstöðin. Dansmærin greip heyrnartólið al- veg forviða. —• — Það er Ronald Emanuel, sagði karlmannsrödd, svo skýrt og greinilega, eins og hann talaði úr hliðarherberginu. Jeg elska yður, ungfrú Baronova! Yalsinn í símanum. — Ungi maður, hvað eigið þjer við, svaraði dansmærin. Siðan hve- nær þekkið þjer mig? Af síðustu kvikmynd yðar, Framh. á bls. 15. GAMLA BÍÓ. Þá er hún loksins komin hin fræga teiknimynd Walt Disney, sem bygð er á æfintýrinu um Mjallhvít. Mjallhvít er eitt af allra frægustu æfintýrum Grimmsbræðranna þýsku og var það fyrst birt undir nafninu Schneeweisschen. Það er ekki of- sagt.þó að sagt sje að meðal íslenskra barna ha.fi ekkert æfintýri notið meiri hylli en hún. — — Walt Disney hefir breytt æfintýrinu allmikið. T. d. lætur haun dvergana leika stæri þátt í myndinni en Grimmsbræður gerðu og gefur þeim nafn, og auk þess sleppir hann dauðdaga stjúpunnar, sem dansaði yfir eldi uns hún datt dauð niður. -----Hver er Walt Disney? Mað- urinn, sem skapaði Mjallhvít að nýju? Hann er fæddur í Chicago árið 1901. Þegar hann var lítill drengur var Chaplin uppáhald hans, og bjó hann til smáleiki, þar sem hanu hugsaði sjer Chaplin altaf í aðalhlutverkinu. í barnaskólanum bar hann mjög af um það hvað góður teiknari hann var. — Undir lok lieimsstyrjaldarinn- ar varð hann rauðakross-bílstjóri á vesturvígstöðvunum í Frakklandi. Eftir stríðið fór hann aftur til Ameríku og ætlaði að verða leikari eða málari og eftir ýmsa hrakninga og mishepnaðar tilraunir á þessurn sviðum, fór hann að fást við lifandi teiknimyndir. Hann „sló í gegn"‘ með Mickey Mouse, og varð eftir það einn af þeim „stóru“ i Holl ywood. Það er annálað hvað Disney sje skemtilegur og vinsæll maður. Hann er hár og glæsilegur, mcð jarpt hár og litið yfirvararskegg. Og nú hefir hann hafnað í hjóna- bandinu og er hverjunr manni ham- ingjusamari. Það var byrjað að taka „Mjall- hvit“ árið 1934 og tók full þrjú ár. Frumsýning fór fram 21. des. 1937 á kvikmyndahúsi í Los Angeles. Kvik- myndin tekur 83 minútur, og er sett saman af 250 þúsund innbyrðis ólik- urn teikningum. 80 manna hljómsveit leikur undir. Inn i myndina er fljett- að ljómandi fallegum smákvæðum, sem sungin eru. Það má telja stórviðburð fyrir okkur hjer að fá tækifæri til að sjá þessa frægu mynd Disneys, því að eins og æfintýrið Mjallhvit bar af öðrum æfintýrum, svo er kvikmyndin Mjallhvít talin bera af öðrum kvik- myndum. — — Við sjáum Mjallhvít, dverg- ana sjö og stjúpuna. Alt eru þetta gamlir kunningjar. Og spegillinn seg- ir: — Hún Mjallhvít, sem fór yfir fjöllin þau sjö, og fæðist nú upp hjá þeim dvergun- um sjö, er þúsundfalt fríðari en þú. Gamla Bíó hefir frumsýningu á þessari mynd innan fárra daga, og það má mikið vera, ef ekki verður slegist um aðgöngumiðana. Einar Einarsson, fisksali, Klapp- arstíg 26, ueröur 70 ára 11. þ. m. 50 ára hjúskaparafmæli eiga á morgun (6. maí) frú Kristín Jakobsdóttir og Sigfús E. Axfjörð frá Krónustöðum, nú til heirn ilis að Hlíðarenda í Eyjafirði. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Sigurjón Guðjónsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aöalskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa i Oslo: A n t o n S c h j ö t s g a d e 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Aaglýsingaverð: 20 aura millim. HERBERTSprent. Skraðdaraþaiikar. Þau eru talin ehdalok íslendinga i Grænlandi, að bæði íslendingar í heimalandinu og aðrar norðurlanda- þjóðir „gleymdu“ þeim, eins og bóndinn, sem gleymdi því eitt vorið að láta út kindurnar sinar og mundi ekki eftir þeim fyr en um haustið. íslendingar í Grænlandi fundust aftur í líku ástandi og kindurnar í kofa karlsins — dauðir úr hungri eftir að kynslóðin hafði mann fram af manni lamast og úrkynjast af þeim skorti, er ávalt yfirbugar menningarþjóð, er hún á að fara að lifa frumþjóða- lífi. Afkomendur hinna fornu vík- inga voru orðnir líkamlegir örlcvisar með beinkröm og blóðleysi, þrátt fyrir alt selspikið í Grænlandi. Þetta er talandi dæmi einangrunar- innar og þeirra áhrifa, sem hún hefir á mennina. Einangrun íslendinga var komin vel á veg með að drepa þá sjálfa — höfuðþjóðina, eftir að dugmestu menn hennar liöfðu verið brytjaðir niður hverir af öðrum í nokkur hundruð ár. Því að á vígöld er það altaf úrvalið sem deyr, lyddan og þýið lifa. Og svo þegar uppgefmr alkomendur veginna manna og inni- brendra fólu sig umsjá Noregskon- ungs þá lá við að hann gleymdi ís- landi og að örlög þess yrðu hin sömu og Grænlands. Fólkið fjell eins og liráviði ef að út af bar um veðurfar og þjóðin var komin undir innsigli ómenskunnar og voluskaparins. Lík- lega hefir það verið fiskigegndin og þær heimsóknir útlendinga er af henni leiddu, sem ollu því, að íslend- ingar fengu ekki að lognast út af og deyja drotni sínum i seyrunni, eins og ættbræður þeirra á Grænlandi. Nú eru margir orðnir þeirrar skoð- unar, að íslendingar sjeu orðnir svo stórir í meðvitund umheimsins, að þeir geti ekki gleymst. Þessi barna- skapur er raunalega almennur meðal jafnvel þeirra íslendinga, sem vel eru viti bornir. Við erum sjálfstætt riki — við gleymumst ekki! En hvernig fór fyrir Roosevelt hjerna í vor. Gleymdi hann ekki íslandi þegar hann var að telja upp smáríkin í Evrópu? Víst gerði hann það, þó reynt væri að klóra yfir það á eftir. Og eiginlega er honum það ekki lá- andi. Lloyd George gleymdi fimtíu sinnum stærra riki, þegar hann var að gera Versaillessamningana. Og hver vill telja upp fyrirvaralaust lýð- veldin í Mið-Ameríku eða fylkin í Bandarikjunum, svo að nefnt sje dæmi. Við verðum að muna, að heim- urinn er stór, og að þessar 118 þús- und íslensku sálir eru lítill hópur, jafnvel þó okkur finnist það vera stórar sálir.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.