Fálkinn - 05.05.1939, Page 7
F Á L K I N N
7
Ekki alls fyrir löngu hjelt Júgó-
slavia 20 ára fullveldisafmæli sitt.
Konan á myndinni með barnið er
þóndakona og er hún tekin úr
myndahefti sem dansk-júgóslafneska
fjelagið í Kaupmannahöfn gaf út i
lilefni af 20 ára afmælinu.
Santa Lucia.
13. desember er Santa Lucia-dag-
urinn haldinn hátíðlegur í Svíþjóð.
Er liann einskonar inngangsdagur
að jólahátíðinni. Eftir gömlum sið
ber Lucia, sem er hvitklædd, fram
brauð og kaffi. Og ásamt þernum
sinum syngur hún gamla jólasöngva.
FRU DOLFUSS I LONDON.
Frú Dolfuss, ekkja Dolfuss kansl-
ara, dvelur í London um þessar
mundir. — Hún sjest til hægri á
inyndinni.
HEIMSSÝNINGIN I NEW YORK.
í samkepni urn auglýsingaspjald
fyrir heimssýninguna í New York
hefir þetta merki hlotið fyrstu verð-
laun og nú verður það á næstunni
sent út um allan heim.
VIÐ ENGLANDSSTROND
hafa miklir stormar einangrað vita-
verðina. Vitinn, sem sjest hjerna ér
frá Scillyeyjunum, og er verið að
draga vistir upp í vitann eftir þræði,
frá skipi, er liggur fyrir utan.
JÓLAINNKAUPIN.
Lítil stúlka fær að halda á jóla-
gjöfunum fyrir mömmu sína eftir
að hún hefir gert innkaupin i búð-
iinum.
JÓLAKVEÐJUR TIL GRÆNLANDS.
Myndin er tekin rjett fyrir jólin
í vetur, þegar útvarpað var jóla-
kveðjum frá Danmörku til Græn-
lands. Ung Grænlensk stúlka stend-
pr við hljóðnemann.
GIOVANNA LUCCHINI UCCELLI
ítölsk bóndakona, gekk fyrir Musso-
lini á mæðradaginn 24. des. s. 1.
Myndin sýnir frú Uccelli og mann
hennar með tvíburana sína.
RENNIHJÓL MEÐ MÓTOR.
Þýskur vjelfræðingur, Hermann
Múller, hefir reynt að setja met á
rennihjóli, sem hann knýr áfram
með mótor. Hann koinst upp i 40
km. hraða á kl.st.
GYÐINGAVANDAMÁLIÐ.
í London hefir verið sett á fót
fræðslustofnun fyrir gyðingabörn,
sem flúið hafa þangað frá Þýska-
landi. Tveir gyðingadrengir eru
hjer í handavinnutíma.
ÍTALIR í ABESSINÍU.
Stór járnkross hefir verið reistur
á veginum milli Asmara og Addis
Abeba í Abessiníu af ítölskum her-
mönnum. Myndin sýnir vígsluha-
tiðina, þar sem sjálfur undirkonung-
urinn var viðstaddur.
DROTNING ALBANA TALAR í
ÚTVARP.
Ný útvarpsstöð hefir verið reist i
Tirana, höfuðstað Albaníu. Hún var
vígð fyrir skömmu af Zogu konungi
og Geraldine drotningu hans. Hjer
sjest drotningin vera að tala i út-