Fálkinn - 09.06.1939, Blaðsíða 14
14
F Á L 71 I N N
FRÁ SJÓMANNADEGINUM.
Framh. af bls. 3.
merin voru, sem druknuðu í sjó hjer
við land síðastl. ár. Ætlast er til
að árlega verði bætt við jafnmörgum
stjörnum og mennirnir verða, sem
drukna í sjó.
— Sjómarinadagsráðinu barst einn-
ig að gjöf Bandaríkjafáni frá Mar-
grjeti Viihjálmsson. Maður hennar,
Sigurður Vilhjálmsson, hafði verið
25 ár i siglingum og eignast þenna
fána og ætíð liaft á honum hinar
mestu mætur. — Við Leifsstyttuna
fluttu og ræður fulltrúi sjóriianna,
Sigurjón Einarsson, skipstjóri úr
Hafnarfirði, Ásgrimur Vigfússon,
sem fulltrúi atvinnurekenda, og at-
vinnumálaráðherra. Karlakór sjó-
manna og lúðrasveitin sungu og spil-
uðu á miili ræðanna.
Á íþróttavellinum fór frain reip-
tog milii skipverja af Garðari ir
Hafnarfirði og Jóns Ólafssonar úr
Reykjavik. Fóru leikar þannig, að
Jón vann. Þar var einnig þreytt
knattspyrna.
Þrettán skip tóku þátt i kapp-
róðrinum og vann róðrarsveitin af
línuveiðaranum Sigríði. — Vigfús
Sigurjónsson úr Hafnarfirði bar sig-
ur úr bítuin bæði í stakkasundi og
björgunarsundi. Meðan stóð á róðr-
inum og sundinu var þjettskipað af
fólki kringum höfnina.
Um kvöldið var fagnaður á Hótel
Borg. Þar voru fluttar margar ræður
og auk þess söng þar sr. Garðar
Þorsteinsson og Karlakór sjómanna.
Einnig voru afhent þar verðlaun
fyrir unnin afrek í íþróttum dags-
ins. Pjetur Magnússon af v.b. Her-
móði var heiðraður fyrir að bjarga
fjelaga sínum frá druknun og hlaut
bikar að launum. Voru menn á einu
Minnisvarði ú gröf úþelcta
sjóniannsins.
máli um það, að hann hefði með
því að kasta sjer í sjóinn í myrkri
og vonsku veðri og tekist að bjarga
lífi fjelaga síns, unnið mesta björg-
unarafrek ársins.
Hátíðahöldin öll fóru hið hesta
fram. Viða annarssíaðar á landinu
var Sjómannadagurinn haldinn heig-
ur. — Sjómannastjettin á auðsjáan-
lega mikiu vinfengi að mæta á Sjó-
mannadaginn, en það er ekki nóg,
í þeim skilningi eiga allir dagar
ársins að vera sjómannadagar, þvi
að:
Sjómenn íslands, hetjur hafsins,
halda vörð um land og þjóð.
Frú sjómenskusýningunni.
fteipclrútturinn ú íþróttavellinum.
fslandsgliman 1939.
Íslandsglíman fór fram 31. f.m.
suður á íþróttavelli. Þátttakendur
voru 10: 7 Ármenningar og 3 Vest-
manneyingar. Var allmikill mann-
fjöldi kominn saman til að horfa
á glímuna og virtist hann skemta
sjer vel, þrátt fyrir kalt veður. —
Glíman liófst stundvíslega, og var
hjer um skemtilega framför að
ræða að því ieyti.
Úrslit Glímunnar urðu þau, að
Ingimundur Guðmundsson (úr Ár-
mann) vann íslandsbeltið. Feldi
hann alla keppinauta sína, fyrir-
hafnarlítið, að því er virtist, og varð
því að maklegleikum glímukonung-
ur íslands.
Næstur Ingimundi varð Skúli Þor-
leifsson og hlaut hann fegurðar-
glímuverðlaunin. Næstir Skúla að
vinningum voru þeir Kjartan B. Guð-
jónsson og Sigurður Guðjónsson úr
Vestmannaeyjum, með 6 vinninga
livor. — Þessir fjórir, sem hjer
hafa verið nefndir, báru mjög af
uin sigursæld og bragðfimi, og verð-
ur ekki annað sagt, en þeir allir
hafi sýnt mörg falleg brögð. En
binsvegar er þess ekki að dytjast,
að margar glímurnar voru nauða
ljelegar og langt fyrir neðan þær
kröfur, sem gera verður til þeirra,
er .sýna sig á Íslandsglímunni.
Þvi miður sannaði þessi íslands-
glíma sem heild, að glíman er í
hnignun, og er það allmikið á-
hyggj uefni gömlum glímuinönnum
og glímuvinum, ef svo skyldi fara,
að þessi þjóðariþrótt skyldi falla „i
gleymsku og dá“. — Það hefir verið
á það bent með rjettu, að nauðsyn
bæri til að gera glímuna að barna-
skólanámsgrein og taka drengina til
æfinga í henni; og svo mikið er
víst, að enginn verður góður glimu-
rnaður, nema hann temji sjer -íþrótt-
ina frá barnæsku. — Sennilega verð-
ur þetta besta ráðið til þess að end-
urreisa hgna til þess vegs, sem
henni ber. — — —
Ingimundur Guðmundsson.
Kaupm. Þorsteinn Þorsteihsson
Keflavík, verður 75 ára II. þ.m.
Guðvarður Vigfússon, fisksali
Grettisg. 57B, verður 70 ára Í3:
þessa mánaðar.
Ilenedikt G. Waage, forseti
1. S. /., verður 50 ára 74. þ. m.
Ólafur Magnússon, kgl. hirðljás-
myndari, verður 50 ára 15. þ.m.