Fálkinn - 23.06.1939, Page 2
F Á L K I N N
GAMLA BIO
Á næstunni sýnir Gamla Bió
myndina Saratoga, sem lcvikmynda-
fjelagið Metro-Goldwyn-Mayer hefir
látið gjöra. Aðalhlutverkin leika
Clark Gable og Jean Harlow. —
Þessir leikarar hafa hvarvetna gelið
sjer besta orðstír, fyrir framúrskar-
audi fjölhæfni í leik sínum og mark
vísa túlkun á þeim hlutverkum, er
þeir hafa haft með höndum. —
Jean Harlow andaðist fyrir rúmum
2 árum síðan, aðeins 26 ára gömul.
Hún var víðkunn í heimi kvikmynd-
anna og dáð al' öllum, sem kyntust
henni, hvort heldur sem sú kynning
varð á sýningartjaldi kvikmyndahús
anna eða í heimkynnum hennar
siálfrar. — Nú gefst Reykvikingum
kostur á að kynnast leik þessarar
konu ennþá einu sinni og dást að
honum, þótt hún sje horfin yfir
landamærin fyrir tveim árum síðan.
Við rætur Adirondachfjallanna er
lítill bær, sem heitir Saratoga. Hann
var fyrst frægur fyrir sínar 175
heilsulindir. Þangað komu auðmenn
Suður-Ameríku þúsundum saman, til
að leita sjer lækninga. Þeim fanst
timinn stundum langur að líða og
jiessvegna tóku þeir með sjer þang-
að bestu hestana sína og stunduðu
kappreiðar. — Þar með var lagður
grundvöllurinn að Saratoga, eins og
hann er nú. Ellefu mánuði ársins
má Saratoga lieita dauður hær. En
í ágústmánuði dvelja þar tugþús-
undir manna, sem koma hvaðanæfa
að í allskonar farartækjum, til þess
að sjá kappreiðarnar, sem þá fara
fram þar. Lífinu i þessum einkenni-
lega bæ er lýst hjer á skemtilegan
hátt. •— í nánd við Saratoga er
bóndasetrið „Brookvale“. Við það
er tengd saga, sem hjer er túlkuð
á minnisstæðan hátt. Það er saga
átthagaástarinnar og baráttu tveggja
mann fyrir að öðlast ástir heima-
sætunnar á „Brookvale“. Veðreið-
arnar í Saratoga eru baksvið þessar-
ar sögu og þær eiga veigamikinn
þátt í því hvernig hún endar. Lífið
er eilift kapphlaup og hver vill ekki
sjá, hvernig kapphlaup í tvennum
skilningi, er háð í hinum rómantíska
bæ, Saratoga?
Flosi Sigurðsson, trjesmiður,
verður 65 ára 24. þ. m.
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórár:
Skúli Skúlason.
Lúðvík Kristjánsson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Skrifstofa í Oslo:
A n t o n S c h j ö t s g a d e 14.
Blaðið kemur út hvern föstudag.
Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán.,
kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Angiýsingaverð: 20 aara millim.
HERBERTSprenf.
Skradðarabankar
„Ef jeg er leiðinleg, þá líttu
ekki á mig“, sagði stúlkan. —
Maðurinn, sem hún var með,
var að jeta sig sundur og sam-
an um, hvort hann ætti að biðja
hennar, og hún var í vandræð-
um með hann. En liað kemur nú
ekki liessu máli við. Það eru
orðin sjálf, sem eru þanka virði.
Mikið af því, s'em mannin-
um þykir leiðinlegt í tilverunni,
er þess eðlis, að liann þarf ekki
að horfa á það. En gerir það
samt. Hann ergir sig og lætur
sjer liða illa, af eintómri vand-
lætingasemi yfir því, að þetta
skuli nú vera svona afleitt, •—-
án þess að geta nokkru um
þokað, i áttina til að gera það
betra. Allar hans sálarraunir
eru því algerlega árangurslaust
og neikvætt erfiði, honum sjálf-
um til hrellingar — en engum
til gagns. Hann gerir sig að
meinlætamanni á sína vísu, en
ekkert annað.
Merinirnir, sem liorfa altaf á
]mð, sem þeim leiðist að horfa
á, ættu að reyna að horfa á
eitthvað annað. Því að sá mað-
ur er naumast til, sem veröldin
hefir ekki eitthvað að hjóða,
er hann geti horft á sjer lil
ununar, eða svo vaxið, að hann
geti ekki fengið fullnægingu
heilbrigðrar viljalöngunar í því,
að lilúa að því. Það er altal'
þakklátara verk, að hlúa að en
uppræta. 0,g vissulega er heim-
urinn þannig gerður, að ef nógu
vel er hlúð að því, sem gain-
an er að horfa á, þá verður
jiað fljótt fátt, sem manni leið-
ist að horfa á.
Einn af inestu gáfumönnurii
íslendinga var skammaður fyrir
það einu sinni, að hann væri ó-
nýtur ritdómari á bækur, vegna
þess að hann skrifaði vel um
allar bækur, er hánn mintist á.
— Hann svaraði því, að hann
skrifaði að jal'naði aðeins um
bækur, sem hann vildi lofa —
aðrar bækur vildi hann helst
ekki skrifa um. Þar var maður,
sem leit helst ekki á það, sem
honum þótti leiðinlegí, en var
altaf með opin augun fyrir því,
sem honum þótti horfa upp og
fram. Hann skilur tilveruna,
maðurinn sá.
Þvi að liann byggir á því,
serii veit fram og gefur lífinu
innihald. Hann vill helst ekki
líta á það, sem togar niður og
gefur tómleika. Hann kýs að
horfa á það, sem hann getur
glaðst af, en ekki hrygst, ef
hann á völina. Altaf getur það
komið fyrir, að maður verði
að liorfa á það, sem hryggir.
Hann leggur meiri stund á að
glæða það, sem gott er, en upp-
ræta það sem ilt er — því að
hið fyrnefnda hefir meiri lik-
ur til að bera árangur. Það er
nauðsynlegt verk, að reita arfa,
en hitt er þó nauðsynlegra, að
hlúa að því, sem á að spretta.
í NÆSTA BLAÐI FÁLKANS:
Grein um þýska risafyrirtækið I. G. Farben — Tvær
sögur — Greinar um Tycho Brahe cg ameríkanska blaða-
kónginn Hearst — Barnadálkur — Skrítlur — Litli og
Stóri — Frá liðnum dögum, eftir Oscar Clausen — Fimm-
tíu ára afmæli kennarasamtakanna — Frá biskupsvígsl-
unni o. m. fl.
i ■
NÝ BÓK
Jeg skírskota til allra
eftir AXEL WENNER-GREN.
Þessarar bókar hefir víða verið getið, og marg-
ur hefir óskað þess að hún yrði þýdd á íslensku.
Þegar höfundur bókarinnar gaf 30 miljónir
króna til eflingar andlegrar samvinnu Norður-
landa og vísindalegra rannsókna, var nafn hans
á allra vörum. Bókin lýsir skoðun hans á við-
skiftalífi og fjármálum nútímans og tillögum
til úrlausnar.
Bókin er ódýr, svo að allir geta eignast hana.
Fæst hjá öllum bóksölum.
Bókaverslun ísafoldarprentsmiðju
Sigurjón Sigurðsson, trjésmíða-
meistari, Vonarstræti 8, verður
sjötugur 30. júní.
Jón E. Bergsveinsson, erindreki,
verður 60 ára 27. þ. m.
lsleifur Bergsleinsson, bóndi i
Móum í Njarðvíkum, verður 70
ára 27. júní.
Guðvaldur Jónsson, brunavörð-
ur, varð 50 ára 21. þ. m.