Fálkinn


Fálkinn - 30.06.1939, Blaðsíða 2

Fálkinn - 30.06.1939, Blaðsíða 2
F Á L K I N N 2 GAMLA BIO lnnan skamms sýnir Gamla Bió Ufa-kvikmyndina Heimþrá, sem gerft 'er eftir samnefndu léikriti Herman Sudermanns. Aðalhlutverkin leika Heinrich George, fínth Hellberg, Zarah Leander, Hans Xielsen og Paul Hörbiger. Ilmingen er eitt af þýsku fursta- dæmunum og ber höfuðborg þess soma nafn. Ameríkanska, fræga söng- konu ber þar að garði og ætlar hún að halda þar söngleik. Prinsinn, verndari furstaríkisins, hafði einu sinni heyrt þessa söngkonu syngja í London og orðið gagntekinn af hrifningu. Henni er því tekið með kostum og kynjum, er hún kemur til llmingen. Ein af virðulegustu herforingja- fjölskyldum borgarinnar er von Schwartze. Höfðingi ættarinnar er Leopold von Schwartze, uppgjafa ofursti. Hann er ékkjumaður, en á tvær dætur, eða rjettara sagt eina, þvi að eldri dóttirin er horfin að heiman fyrir 8 árum. Síðan hefir hann ekki frjett neiU af henni, en við hvarf hennar fjell skuggi á ættina, sem honum virðist aldrei muni hverfa. Vngri dóttirin ætlar að fara að gifta sig ungum flokksforingja i hernum. Gamla manninum vantar fje til þess að geta haldið brúðkaup dóttur sinn- ar svo veglegt, sem ættinni cr sæm- andi. — Úr þessu rætist þó vonum skjótar fyrir gamla manninum, því að söngkonan fræga, sem komin er 1 bæinn, er engin önnur en hin glat- aða dóttir hans. Heimþráin liefir lokkað hana heim með 7 ára telpuna sína. Þar hittir hún mann, sem fyr- ir nokkrum árum liafði reynt að vinna ástir hennar, en ekki tekist. —• í bankanum í Ilmingen er nu orðinn bankastjóri, maðurinn, sem hún hafði hitt í Berlín fyrir 8 árum og tekið ástfóstri við, en frá honum hafði hún ekkert heyrt síðan. > Hjer byrjar leikurinn að stiga. Undiralda heitra og baráttukendra tilfinninga gefur leiknum meira og eftirtektarverðara svigrúm og sjer- kennileikinn í persónugerðinni krist- allar frá sjer glömpum, er ylja um hjartaræturnar. Stolt ættarinnar, slerklynda og sjálfstæða dóttirin og hin óliku skapeinkenni hinna tveggja manna, tengja saman hin fjarskykl- ustu bönd mannslundarinnar. Skap- festan og liin barnslega fórnfýsi ganga með sigur af hólmi. — Söng- urinn í myndinni verður öllum minnisstæður. Hann mildar jarðveg- inn fyrir áhrif þeirrar túlkunar, sem kemur fram i myndinni. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Lúðvík Kristjánsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aðalskrifsloja: Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210 öpin virka daga ld. 10-12 og 1-(i. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársf.j. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 anra millim. HERBERTS prent. Skraððaraþankar Magnús sálarháski kvaðst hafa lifað á guðsorði og munnvatni sínu, lengur en inönnum þótti trúlegt. Og hjerna rjett eftir aldamótin, sagði góður maður, að hann gæti lifað á 25 aurum og ættjarðarást. — Hann fór tii Ameríku og lifir enn. Maðurinn sagði þetta i gamni. En það eru margir, sem gerst hafa til þess að lifa á ættjarð- arástinni, — og helst dálítið meira en 25 aurum i viðbót. Það eru mennirnir, sem láta það jafnan hljóma, að þeir sjeu að gera þetta og þetta fyrir föðurlandið, og leggi alt sitt í sölurnar fyrir föðurlandið. Til- gangurinn er sá, að nota þetta sem auglýsingu á þá fáfróðu menn, sem vilja trúa því. Og það tekst oft. Sanna föðurlandsvini er ávalt hægt að þekkja frá þessum skrumurum á því, að þeir minn- ast aldrei á sinn verknað. Þeim finst ekki ástæða til þess, og þeir vita ekki af því, sem þeir gera í þessu efni, vegna þess að þeim er það eiginlegt. Jafnvel þó að þeir viti, að þeir sjeu orðnii' þjóðforingjar, vitna þeir aldrei i það, sem þeir hafi gert þjóð- inni til hagsbóta. Og síst af öllu nota þeir liað sjálfum sjer til hagsbóta. Sannur föðurlandsvinur er aldrei sjálfselskur, og hugsar ekki einu sinni um, að sjá sjálf- um sjer farborða. Hann er eng- inn „forretningsmaður11. Tómas Sæmundsson, Jón Sigurðsson, Baldvin Einarsson og Hannes Hafstein hefðu allir átt besta tilveru í þeim heimi, sem engir peningar væru til í. Og svo er um fleiri spámenn af þeim flokki. Þeirra dæmis ættu þeir að minnast — ef vit hafa til — sem þykjast vera föðurlandshetjur og ávaxta traust auðtrúa fólks á sínum eigin reikningi og nota það misfengna traust sjer í liag.. Þeir hugsa ekki um sinn eigin dóm, hvort heldur hann verður dómur gleymskunnar eða for- dæmingarinnar, heldur um það eitt, að skara vel að kökunni, meðan þeir sjálfir geta haldið á skörungnum. Þeim er sama um, þótt engin „eftir lifi minning mæt, þótt maðurinn deyji,“ en hitt fyrir öllu, að lifa liátt með- an lift er og deyja siðan. — Þeirra dauði er eilífur — liinna er enginn, því að verknaður þeirra og eftirdæmi lifir. Þeir gleymdu altaf sjálfum sjer, en mundu altaf föðurlandið. — Og föðurlandið man þá. En gleymir hinum, sem gleymdu því vegna sjálfs sín, þó að þeir hefðu það á tungunni. Felix Guðnuindsson, kirkju- garðsv., verður 55 ára 3. júlí. Halldór Stefánsson, læknir. verður 55 ára 3. júlí. Björn Guðmundsson, skólastjóri að Núpi, varð 60 ára 26. þ. m. í NÆSTA BLAÐI FÁLKANS: Grein um húsfrú Ólöfu á Skarði. — Grein um tónskáld- ið Mendelsohn. — Frá liðnum tímum, eftir Oscar Clausen. — Frjettamyndir. — Tvær sög-ur. — Skrítlur. — Barna- dálkur. — Kvennadálkur. — Krossgáta o. m. fl. * Allt með íslenskum skipum! t Gullbrúðkaup eiga 2. júlí n. k., hjónin Solveig Eggertsdóttir og Jón Pjetursson, nú til heimilis að Hofi á Höfðaströnd. ARÐUR TIL HLUTHAFA. Á aðalfundi fjelagsins þ. 24. þ. m. var samþykt að greiða 4% — fjóra af hundraði — í arð til hluthafa fyrir árið 1938. Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu fje- lagsins í Reykjavík, og á afgreiðslum fjelags- ins út um land. H.f. Eimskipafjelag íslands.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.