Fálkinn


Fálkinn - 22.09.1939, Blaðsíða 3

Fálkinn - 22.09.1939, Blaðsíða 3
F Á L K I N N 3 Hljómleikar Tónlistarfjelagsins. Kristinn Steinar Jónsson, Lauf- ásveg 50, verkamaður hjá Eim- skipafjelagi lslands, verður 50 ára 23. þ. m. ÞÝSKUR KAFBÁTUR í NEYÐ. Siðastliðinn þriðjudagsmorgun leit- aði enskur kafbátur hafnar i Reykja- vík. Höfðu þrír af skipverjum stór- slasast og fjekst leyfi yfirvaldanna lijer fyrir að flytja einn í iand, með ]jví að tvísýnt þótti um líf lians, ef liann fengi ekki betri aðhjúkrun, en liægt var að veita á bátnum. Hinir tveir meiddu skipverjarnir fengu ekki landvistarleyfi og ijet báturinn í liaf með þá aftur nokkrum klukku- tlmum siðan. Tvennir eru timarnir. Fyrir nokkrum vikum voru tveir þýskir kafbátar hjer i heimsókn og var vel fagnað, en nú þykja heim- sóknir kafbáta engin gleðitíðindi. — Strið er stríð. — Hjer á myndinni sjest kafbáturinn á ytri höfninni, en báðumegin lians þýsk vöruflutninga- skip, sem leitað hafa hafnar hjer i lilutlausri landlieigi. Emil Telmamji og frú. Vilbogi Pjetursson, Þórsg. 22A, Snæbjörn Stefánsson, skipstjóri, varð 70 ára 13. þ. m. verður 50 ára 22. þ. m. Undanfarið liefir dvalið lijer á veg- um Tónlistafjelagsins hinn frægi fiðlusnillingur Emil Telmanyi. Hefir hann leiðbeint Hjómsveit Reykjavík- ur i nokkra daga og er það mál allra, sem til þekkja, að strengjasveitin hafi tekið miklum framförum þenna slutta tíma. Síðastl. mánudagskvöld hjelt Tón- listafjelagið hljómleika i Gamla Bíó. Hljómsveit Reykjavíkur ljek undir tónleik Emils Telmanyis og er full- yrt, að Tónlistarfjelagið hafi aldrei haft upp á að bjóða jafn ánægjulega lcvöldstund. Áhrifa Telmanyis þótti mjög gæta á þessum hljómleikum og fór það ekki dult, að öll efnismeð- ferð var mun smekklegri og öruggari en verið hefir áður. Það þótti einnig koma ljóst fram á þessum liljómleik- um, að Telmanyi er ekki einungis framúrskarandi fiðlusnillingur, en jafnframt frábær stjórnandi. Frú Telmanyi ljek undir á cembalo og mun það vera í fyrsta sinn, sem leikið hefir verið á slíkt liljóðfæri hjer á landi. — Koma Telmanyi-hjón- anna hingað til lands mun öllum minnisstæð, er hlýddu á hljómleika Tónlistarfjelagsins síðastl. mánudags- kvöld. H. M. S. COURAGEOUS. Hjer birlist mynd af hinum stóra enska flugvjelamóðurskipi „Courage- ous“, sem Þjóðverjar söktu í byrjun þessarar viku. Var skip þetta 22.000 smálestir ög upprunalega bygt sem þeitiskip, árið 1917, en breylt í inóð- urskip fyrir flugvjelar skömmu eftir heimsstyrjöldina. Eigi er vitað, hve margar flugvjelar voru á skipinu, þegar því var sökt, og eigi heldur hve margir skipverjar voru, en sennilega hafa þeir verið nálægt þúsundi. — Þegar þetta er ritað hafði frjest um, að 438 mönnum hafi verið bjargað af skipinu, en gera má ráð fyrir, að fleiri hafi bjargast, því að mörg skip voru þarna á næstu gröfum. Kafbát- urinn, sem sökti skipinu var slcotinn í kaf nokkrúm mínútum síðar. (V<W<V/V/V

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.