Fálkinn


Fálkinn - 22.09.1939, Blaðsíða 14

Fálkinn - 22.09.1939, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N George Bonnet. Þessi maður hefir einkum vakið at- hygli fyrir það, að honum hefir lek- ist betur en fyrirrennurum sínum að ná jafnvægi á fjárliagsáætlunum franska ríkisins, en eins og kunnugt er hefir Frakkland tíðasl liaft nær óhotnandi tekjuhalla á fjárlögum sín- um síðan styrjöldin mikla gekk um garð. Bonnet er alls ekki vinsæll maður. Hvorttveggja er, að niður- skurðarmenn eru sjaldan vinsælir og svo er hitt, að hann er ekki við al- þýðuskap, kaldur og þur á manninn. En hann liefir liins vegar getið sjer frægðarorðs sem einn allra skarpasti fjórmálamaður Frakklands nú á dög- um, og á slíkum mönnum þurfa Frakk ar að halda nú. Árið 1925 gaf hann út bók, „Hvernig á að fá verðfestan franka?“ Og margar af tillögunum úr þeirri bók voru teknar til greina af .Poincaré á næstu árum. Fleiri fjármálarit hefir hann gefið út og að- eins 24 ára gamall skrifaði hann bók um þýska rjettarspekinginn Sivigny. Bonnett er eljumaður mikill og vinnur aldrei minna en 14 tíma á dag. Hann er aðeins fimtugur og hefir að baki sjer dagsverk, sem of langt yrði að tíunda hjer, en nefna má, að liann hefir setið í flestum merkari fjármálanefndum Frakka eftir stríð og í mörgum alþjóðanefndum. Hann hefir verið ráðherra þrettán sinnum, eins og Chautemps, 4 sinnum versl- unarmálaróðherra, 4 sinnum fjár- málaráðherra og stjórnað fimm öðr- um stjórnardeildum, sinni í hvert skifti. Og um eitt skeið var liann sendiherra Frakka í Washington. Svo að hann hefir haft mörgu að sinna. Mörgum er kalt til hans, en allir bera virðingu fyrir honum, líka þeir, sem gagnrýna hann mest. Hann er í hægri armi „socialradikala", og er hann varð ráðlierra í hinu núverandi ráðuneyti Daladiers, var það talinn vottur um, að samljand vinstriflokk- anna mundi gerast hógværara. Og sem fjármálaráðherra tókst hon- um að ná jafnvægi á fjárlögunum, þar sem sífeldur tekjuhalli hafði ver- ið síðan 1931. Það ár var hallinn 12 miljard frankar, og missirið sem Leon Blum sat var hallinn 4.5 milj- ard. Svo að það þótti kraftavérk, sem Bonnet gerði, er hann á næsta missiri skilaði tekjuhallalausum fjár- hagsreikningi, án þess þó að skera niður að nokkru marki fjárveitingar til þjóðfjelagsþarfa. Yerksmiðjan sprakk í loft upp. Japanar framleiða afar mikið af allskonar smádóti og glingri úr sellu- loid. Það er afar eldfimt eins og kunnugt er, og nýlega varð bruni og sprenging af völdum þess, í einni verksmiðjunni í Tokío. Hún sprakk í loft upp, en 80 verkamenn týndu lífi og 200 skaðbrendust, en fjörutíu hús í nágrenninu brunnu til ösku. E.s. L’Atlantique i björtu báli úti á Ermarsundi i janúar 1933. Stórir skipsbrunar. Bruni franska stórskipsins „París“ núna fyrir skömmu rifjar upp fyrir manni ýmsa aðra stóra skipsbruna, fyr og siðar. 1 Frakklandi liafa brun- ar í stórskipum verið svo margir á síðustu árum, að það getur ekki hjá því farið, að þeir sjeu viljandi gerðir af manna völdum. En sjaldnast tekst þó að sanna þessi hermdarverk. Brunar eru ávalt ægilegir, skips- brunar ekki sist, þegar þeir verða úti i rúmsjö, þar sem engrar hjálpar er að vænta. Fólkið ó brennandi skipi á oft ekki nema um tvent að velja: að láta steikja sig lifandi eða kasta sjer í sjóinn og drukna. Og flestir kjósa hið síðara. — Skulu nú rifjaðir upp nokkrir skipsbrunar. Bruni skipsins „Georges Phillippar“ vakti mikla athygli á sínum tíma. Þetta var spánýtt hreyfilskip, 23.000 tonn, eign franska fjelagsins Messa- geries Maritimes og var á leið til Marseille austan úr Asíu. Skamt frá Aden kom eldur upp í skipinu, 16. mai 1932, og breiddist óðfluga. Sumir farþegarnir komust ekki úr klefum sínum, aðrir köstuðu sjer fyrir borð og urðu hákarlinum að bráð, svo að sjórinn varð rauður af mannablóði. Þar fórust 225 manns. Orð ljek á því, að kveikt hefði verið í skipinu í hefndarskyni. Blaðamaður einn, sem á skipinu var, tók myndir af skelfingunum, sem urðu um borð í skipinu, meðan það var að brenna. Hann bjargaðist og hugðist mundu gera sjer mat úr myndunum og tók flugvjel til París til þess að komast sem fyrst. En flugvjelin hrapaði í Alpafjöllum, fór i mjel og allir um borð fórust. Þann 5. janúar 1931 fórst norska skipið „Tricolor" eign Wilhelmsens- fjelagsins mikla í Tönsberg, skamt frá Ceylon. Eldur kom upp í skipinu i rúmsjó, en aldrei tókst að komast fyrir, hvernig hann hafði komið upp. Var helst lialdið að hafnarverkamað- ur i Colombo hefði fleygt sígarettu- stúf ofan í lestina. En þar voru birgðir af klórsúru kali og urðu svo miklar sprengingar í því, að skipið rifnaði sundur og sökk. Allir um borð hlupu í sjóinn og björguðust flestir þeirra. Aðeins einn farþegi og sex af skipshöfninni druknuðu. — Hinum var bjargað úr bátunum af franska skipinu „Porthus", sem var eign sama félagsins, sem átti „Georg- es Phillippar". Skömmu síðar varð sprenging i öðru norsku skipi á lík- um stað og fórust þar 16 manns. Eftir bruna „Georges Phillippar" var nefnd sett á rökstóla i Frakk- landi, til þess að atliuga um, hvernig gera mætti skip tryggari gegn elds- voða. Meðan sú nefnd sat, varð nýr stórbruni. Hinn 5. janúar 1933 kvikn- aði i stórskipinu „L’Atlantique" rjett fyrir utan Cherbourg, er það var á leið í þurkví þangað. Þegar loks tókst að slökkva eldinn, var litið eftir af þessu nýja og fallega skipi nema skrokkurinn. Og tíu lík fundust i brunarústinni. Rannsóknarnefnd var sett til þess að komast fyrir upptök eldsins, en árangurinn varð enginn. — Um tima hjeldu menn að helst væri til að dreifa skammhlaupi á rafmagns- leiðslu, en síðar var liallast að því, að kveikt hefði verið í skipinu. Enskt félag keypti skrokkinn til niðurrifs fyrir 57.000 sterlingspund. Nú varð kyrt um stund í Frakk- landi. Næsti stórbruninn varð í amer- íkönsku skipi. — Það hjet „Morro Castle" og var á heimleið til New York úr skemtiferð til Havanna, með 328 farþega innanborðs, en skips- höfnin var 258 menn. Eldurinn kom upp, þegar skipið var fyrir utan New Jersey, og var skipstjórinn þá dá- inn fyrir klukkustund, en yfirstýri- maðurinn, Warms, liafði tekið við stjórninni. Klukkan 2,30 um nóttina gaus eldur upp úr bókasafnsklefan- um í skipinu. — Fæstir farþegarnir voru farnir að hátta, þvi að dans og gleðskapur var um borð. Þegar hrópað var, að eldur væri kominn upp, varð ægilegt uppnám meðal farþeganna. Konur og börn tróðust undir. Skipsmenn gátu ekki framkvæmt skipanir yfirmanna sinna vegna þrengslanna, sem farþegarnir gerðu við björgunarbátana. Og flest- um af bátum þeim, sem settir voru út, hvolfdi jafnharðan, því að sjór var mikill. Innan skams var alt skipið i björtu báli. — Neyðarmerki höfðu verið send þegar í stað og kom vöruskip- ið „Monarch of Bermunda“ fyrst á vettvang. En þarna fórust 71 manns og flestir þeirra, sem björguðust voru meira og minna særðir. Svo tóku franskir brunar við á ný og hafa þeir einkum ásótt hið stóra fjelag Compagnie Génerale Transat- lantique-fjelagið, sem á risaskipið Normandi. Hinn 5. maí 1938 lá skip- ið „Lafayette“, sem oftar en einu sinni hefir komið til Reykjavíkur, i þurkví. Sama kvöldið og það kom i kvina kviknaði í þvi. Fjörutíu smið- ir voru um borð, en rok var all- mikið, svo að eldurinn breiddist fljótt út. Leið ekki á löngu þangað til skipið varð eitt eldliaf enda kviknaði í oliubirgðum um borð, og hitinn var sao mikill, að slökkviliðsmenn kom- ust hvergi nærri. Tókst þeim þó að hjarga öllum, sem um borð voru. Klukkan tvö um nóttina urðu tvær sprengingar í skipinu og um leið lauk æfi eins fallegasta skipsins, sem smíðað hefir verið i Frakklandi. „Lafayette" var fullgert árið 1930 og var 25.000 brúttotonn og gat tekið 1800 farþega. Það var 185 metra langt og vjelafl þess 18.500 HA. Ekki befir enn orðið uppvíst um upptök eldsins. Og núna í vor var það skipið „Par- ís“ frá sama fjelagi, er varð eldin- um að bráð. „París“ var þriðja stærsta slcip Frakklands, næst „Nor- mandie“ og „Ile de France“, en tólfta stærsta skip í lieimi — 36.000 þúsund tonn. Ekkert vita menn heldur um upp- tök þess hruna. Lögreglan hafði fengið 'aðvörunarbrjef og vissi um brunan fyrirfram, svo að vitað er, að hann var af mannavöldum. Og lögreglan hafði þarafleiðandi sjer- slakan vörð um skipið. En eldurinn kom upp samt, og það munaði minstu, að „Normandie“ væri kvíac inni í sama básnum og yrði eldinum að bráð líka. HJÓLREIÐAR f PARÍS. Myndin er frá hinu árlega hjól- reiðamóti Parisarbúa og sýnir nokkra þátttakendur beygja fyrir Herkúlesarstyttuna. — Fótstallurinn hefir verið varinn með heypokum, til þess að hjólreiðamennirnir skyldu ekki brjóta hann, — eða kanslce fremur til þess, að hann skyldi eklu brjóta þá. Hann: Ætlarðu svo að luigsa reglu- lega oft til mín, þegar jeg er farinn? Hún: — Já, já. Jeg skal altaf hreinl hugsa til þín. Bara að þessi lest fari nú að komast af stað, svo jeg geti byrjað. Hún: — Segi maður karlmanni eitt eða annað, fer það venjulega inn um annað eyrað en út um liitt. Hann: Og segi maður konu eitt eða annað, fer það venjulega inn um bæði eyrun, en út um munninn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.