Fálkinn - 15.03.1940, Blaðsíða 7
FÁLKINN
/
Að ofan sjáum við finska skíða-
kappann Niemi, sem vann 50
km. skíðagönguna við Holmen-
kollen á 3 klst. 29 tn. 23 sek.
Nœstur varð landi hans Vanni-
nen. Nú evu þessir vösku skíða-
garpar á vígstöðvunum að verja
föðurland sitt.
Þessi mynd er af rússneskri liðsveit, sem gefst upp og gengur Finnum á hönd. Rússarnir
koma fram á meðal trjánna og rjetta upp hendurnar til merkis um uppgjöfina. Sumir þeirra
eru greinilega berhentir, þrátt fyrir snjó og bruna frosi.
Mörg finsk börn, sem styrjöldin hefir svift heimilum og for-
sjá, hafa verið send til nágrannalandanna til umsjár. Þess-
ir þrír ungu Finnar, sem við sjáum hjer að ofan, virðast hyggja
gott til framtíðarinnar og nýju heimilanna. Þeir eru á leið til
Svíþjóðar, myndin tekin af þeim í járnbrautarvagninum. 1
bandi um hálsinn hafa þeir spjald, sem á eru rituð heimilis-
föng þeirra í Finnlandi og ákvörðunarstaðir í Svíþjóð
Myndin sýnir það sem eftir er af finskum bæ. Fyrir stríðið var
þarna heimili friðsamrar fjölslcyldu. Nú leggur snjórinn sína
mjúku voð yfir rústirnar, sem eru það eina, sem ber þess
merki, að hjer hafi verið mannabústaður.