Fálkinn - 18.07.1941, Qupperneq 1
16 sfður
Reykjavík, föstudaginn 18. júlí 1941.
XIV.
60 aura
EYJAFJALLAJÖKULL
Þó að Hekla sje frægasta fjall suðurláglendisins er það vafamál hvort Eyjafjallajökull er eigi vinsælli og fegurri. Víðast hvar
á suðurlandi sópar meira að honum en Heklu, og svo hefir liann verið friðsamari og eigi bakað landslýð nema smávægi-
legt tjón, í samanburði við Heklu, þó að gosið hafi hann nokkrum sinnum síðan land bygðist. En síðan „Eyjafjalla-skall-
inn“ Ijet „Tindafjöll skjálfa og titra jörð“ svo sem Bjarni Thorarensen kvað, eru nú liðin nær stórt hundrað ár. Síðan
hefir langa fönnin, lengst til vinstri á myndinni, hulið örið eftir sárið sem jökulinn fjekk þá. — Hvergi er Eyjafjallajölcull
jafn tignarlegur og fagur ásýndum eins og úr Fljótshlíðinni og Þórsmörk. Hjer á myndinni sjest hann úr Fljótshlíðinni en
Markarfljótsaurar eru á framsviði myndarinnar.