Fálkinn - 10.04.1942, Blaðsíða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
BlaSiS kemur út hvern föstudag.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 30 aura millini.
HERBERTSprent.
Skraddaraþankar.
Það kveSur oft við, að við lifum
á breytinga tímum og byltinga, núna
eins og stendur. Sökum gestakom-
unnar af völdum styrjaldarinnar
bera ýmsir góðir menn kvíðboga
fyrir þvi, að þjóðerni vort verði
grátt leikið, og þá fyrst tungan og
venjur ýmsar.
Síst er ástæðulaust að vera á vað-
bergi í þessu tilliti. En þeir, sem
leyfa sjer bjartar vonir, vitna að
jafnaði til þess, að arfleifð vor sje
svo mikil og þung á metunum, að
hún bjargi við málinu, að því er
íslenska tungu snertir. Og víst er
sú arfleifð svo mikil, að það væri
skritin þjóð, sem týndi henni. Við
eigum bæði fornbókmentir og við
eigum góðskáld morgunaldarinnar,
sem kendu þjóðinni íslenskt mál og
glæddu smekk hennar fyrir fögru
ljóði, á þeim tima sem „IsafolS var
illa stödd.“
Þessvegna mun mörgum sárná, er
óvaldir menn og smekklitlir gerast
til þess, að fara að „endurbæta“
það, sem við höfum gott talið. Ágætt
skáld varð til þess í fyrra, að snúa
I.axdælu til nútímamáls, og var til-
gangurinn sá, að gera hana aðgengi-
lega íslenskum unglingum nútimans.
Er þess skamt að minnast, að mjög
var deilt um þetta mál, og þó mest
áður en verkin sýndu merkin. Hjer
skal enginn dómur lagður á, hvort
verkin rjettlættu merkin, en þó má
segja, að hugsjón liafi verið að baki
þessu fyrirtæki.
En um annað nýrra fyrirbrigði
verður það að segjast, að illa sje
á stað farið. Maður einn, sem senni-
lega telur sjálfan sig hvorttveggja
í senn, málfróðan betur en alla aðra
islenska menn, og næmari fyrir
bragreglum en þá, sem lslendingar
hafa talið skáld bæði í fortíð og
nútíð, hefir orðið til jmss að sýna
kynslóðinni, sem nú lifir, að ýmsir
menn, sem hún hefir haft í há-
vegum, hafi beinlínis misboðið ís-
iensku máli og kunni elcki að ríma
vísu. Og liann ræðst ekki á garð-
inn, þar sem hann er lægstur, þessi
nýi spámaður íslenskra bókmenta.
Hann tekur eitt fallegasta erindi
fornbókmenta vorra og sýnir á
því veilurnar. Og -Jónas Hallgríms-
son verður lieldur en ekki óþyrmi-
lega fyrir barðinu á honum. Jónas
auminginn hefir hvorki haft mál-
smekk, rímsmekk nje óbrjálaða hugs-
un. Þessvegna er hann orktur upp
— „færður til betra máls“, á mað-
ur víst að segja — og ekki þar með
búið, heldur þarf að gerbreyta
meiningu þess, sem hann hefir sjálf-
ur talað, svo að það verði fram-
bærilegt. — Það þykir ljótt að guð-
lasta. En er þetta nokkru betra?
STYRIMANNASKÓLINN NÝI.
Hreyfing er nú að komast á það,
að veglegur stýrimannaskóli verði
reistur hjer i Reykjavík, og er lion-
um ætlað að verða einskonar endur-
minning um árin, sem nú eru að
líða, til heiðurs íslenskum farmönn-
um, sem halda uppi fiskveiðum og
siglingum, til þess að bjarga þjóð-
inni og afkomu hennar. Er ráðgert,
að skólinn standi sunnanvert við
Suðurlandsbraut, i Rauðarárholti
norðanverðu, rjett fyrir norðan
vatnsgeymirinn, á há-holtinu. Á síð-
astliðnu ári var efnt til verðlauna-
samkepni meðal húsameistara, um
tillögur að byggingunni og bárust
margar teikningar, sem dómur hefir
nu verið feldur um. Urðu úrslitin
þau, að engin teikningin fjekk I.
verðlaun. En liæstu viðurkenningu
hlaut teikning húsameistaranna Sig-
urðar Guðmundssonar og Eiriks
Einarssonar, og sýnir efri myndin
norðurhlið skólans, eins og hún á
að verða samkvæmt tillögum þeirra.
— En neðri myndin sýnir teikningu
þriggja húsameistara, Bárðar ís-
leifssonar, Gunnlaugs Halldórsson-
ar og Harðar Bjarnasonar, en hún
fjekk II. viðurkenningu. Fleiri við-
urkenningar voru veitta, en þó mun
dómnefndin ekki hafa verið ánægð
LÆíStí
með neina af teikningunum. í dóm-
nefndinni sátu: Friðrik Ólafsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans, M. E.
Jessen, skólastjóri Vjelstjóraskólans
(en Vjelstjóraskólanum er einmg
ætlað húsnæði i liinni nýju bygg-
ingu). Hafsteinn Bergþórsson út-
gerðarmaður, Sigurjón Á. Ólafsson
alþingismaður, Ásgeir Sigurðsson
skipstjóri, Þorsteinn Árnason vjel-
stjóri og Friðrik Halldórsson loft-
skeytamaður. En af hálfu húsa-
meistara skipa nefndina Einar Er-
lendsson og Einar Sveinsson.
Alls bárust nefndinni átta upp-
drættir að skólahúsinu.
Sundmót K. R.
Sýningarstúlkur K. R.
Þann 26. mars hjelt K.. R. sitt ár-
lega sundmót í Sundhöllinni. Þar
mættu til kepni bestu sundmenn
landsins, en mesta eftirtekt vöktu
8 ungar stúlkur, sem höfðu skraut-
sýningu undir stjórn Jóns Inga Guð-
mundssonar, sundkennara K. R.
Vonandi væri það, að sundhallar-
gestir gætu oftar fengið ánægju af
að sjá slika sýningu sem þessa.
Takmarkiö er:
FÁLKINN
inn á hvert heimili.
Jón Ólafsson, fyrv. Mentaskóla-
vörður, Þórsgötu 8, verður 80
ára í dag (10. apríl).