Fálkinn - 06.11.1942, Side 7
F Á L K 1 N N
Þessi miklu ferlíki eru framhelmingar af flugvjelaskrokkum, sem Baiuiaríkjaverksmiðja
ein framleiðir til hernaðarþarfa. Eru þetta skrokkar i „Fljúgandi virki“.
Þetta einkennilega ,,ökutæki“ — stálgrind á gúmmíhjól-
um — er notað á herflugskólum Bandaríkjanna til þess
að œfa sprengjumiðunarmenn, áður en farið er að æfa
þá í sprengjumiðun úr flugvjelum. Stálgrind þessi gengur
fgrir rafmagnshregfli og getur farið afarhratt gfir, og
ræður flugstjórinn eða kennarinn, sem situr aftar á pall-
inum, hregfingum vjelarinnar. Rjett fgrir framan stál-
grindina er lítill kassi, sem rennur á hjólum, og fer
gmsar krókaleiðir og ekki eins hratt og stálgrindin. Nem-
andinn situr fremst á pallihum og er látinn æfa sig í að
hitta kassann, með gmsu ,dauðu‘ sem hann varpar útbgrðis.
Eftir að Japanar höfðu búist um á Salomonsegjum gerðu Bandaríkjamenn innrás á egjarn-
ar og hafa haft þar gfirhöndina siðan. En Japanar liafa freistað að verða gfirsterkari
þarna aftur, því að þ'aðan er hægst að gera flugárásir á Ástralíu og trufta skipagöngur
þangað frá Ameriku. Iíjer sjest Bandaríkjaflugvjel, sem tók þátt i innrásinni.
Flugvjelarnar, sem hafa bækislöð sína á Malta, gera skip-
um öxulveldanna á Miðjarðarhafi margar skráveifur og
hafa egðilagt mikið af hinum dgrmætu birgðum, sem öxuR
veldin þurfa til hersins í Afríku. Iljer sjest eitt af skip-
um öxulveldanna i björlu báli, eftir árás flugvjela frá
Malta. Hafði skipið mikið meðferðis af hergögnum cg
bifreiðum, sem sjást á þilfarinu. Skipið sökk.
Tidagi hcfir þráfaldlega hegrst getið i frjettunum af viðureigninni á Salomonsegjum. Þetta
er smáegja skamt fgrir norðan Guadalcanar og sjest hjer höfnin þar. Þegar Bandaríkja-
menn gerðu árásina á Tulagi sendu þeir öflugan flota þangað og áströlsk skip tóku einn-
ig þátt í atlögunni. Tókst herliði Bandaríkjanna — Marines — að komast á land Japönum
á óvörum og ná fótfestu á egnni. Síðan hafa Japanar gert margendurteknar tilraunir til
að lirekja Bandaríkjamenn frá Tutagi og Guadatcanar og hafa fórnað árangurslaust til þess
fjölda flugvjela og skipa, auk ajlra mannslifanna.
\