Fálkinn - 20.11.1942, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
i
Amerikanar leggja peninga i rikisskuldabrjef.
Það er álitið að tekjur Banda-
rikjaþjóðarinnar árið 1942 hafi
numið 104.000.000.000 dollurum og
er nú alment skorað á þjóðina að
verja 10 prósent af þessari upphœ'ð
til að kaupa rikisskuldabrjef.
ur mjög þýðingarmikil tekjulind.
Jafn þýðingarmikii er sú staðreynd
að svo að segja hver einasli maður
í Bandaríkjunum tekur þátt í fjár-
framlögum til að standast kostnað
af stríðinu.
Það lítur út fyrir að þessi við-
leitni nái takmarki sínu og meira
en það. Mánuðinn eftir að Banda-
rikin fóru í stríðið voru seld rík-
isskuldabrjéf lyrir rúmlega 1.000.-
000.000 dollara. Næstu þrjá mánuð-
ina var salan heldur minni, en nú
fer hún upp á við aftur. Takmark-
ið fyrir þetta ár eru 10.000.000.000
dollarar.
Það sem eftirtektarvert er við
jiessa viðleitni er, að svo að segja
allir sem einhverjar tekjur hafa taka
þátt í henni af sjálfsdáðum. Hjerna
er eitt dæmi upp á hvernig þetta
er í framkvæmdinni:
Samtök.
V e rksm i ð j ust j ó r n kallar saman
fund með starfsfóllcinu og býðst til
að draga regiulega ákveðna upphæð
frá kaupi hvers einstaks. Þegar búið
er að draga nóg frá lætur verk-
smiðjan starfsfólkið fá ríkisskulda-
brjef.
Hundrað prósent þátttaka í þessu
greiðslu-fyrirkomulagi er mjög al-
geng, í stórum fyrirtækjum engu
síður en smáum.
Margir Ameríkanar, verkamenn og
aðrir, kaupa ríkisskuldabrjef hve-
nær sem þeir geta.
Bikisskuldabrjefin, sem eru til 10
ára, gefa 10 prósent vexti. Vinsæl-
ustu skuldabrjefin — ,,E“ skulda-
brjefin — E stendur fyrir Every-
body — kosta 18.75 dollara. Þegar
þau falla í gjalddaga 1952 eru þau
25 dollara virði.
Ameríska stjórnin hefir sett upp
skrifstofur, sem selja ríkisskulda-
brjef í öllum 48 ríkjunum og er for-
stjóra hverrar skrifstofu borgaður
1 dollar á ári.
Þessar ríkisskrifstofur koma upp
ákveðnu kerfi í öllum borgum og
fylkjum i umdæmi sínu — og ná
þannig sambandi við hvern einasta
mann og konu, sem hafa einhverjar
tekjur. Sjerhver maður er beðinn
að skrifa undir skuldbindingu un
að kau])a rikisskuldabrjef reglulega.
CHARLES CECIL INGERSOLL
HERITT,
kanadiskur offursti, sem tók þátl í
strandhögginu í Dieppe og var
handtekinn þar, var skömmu siðgr
sæmdur æðsta heiðursmerki Breta
í hernaði, Victoriukrossinum. Hann
var í Soulh Saskatchewan Regiment.
Vann liunn sjer það til ágætis að
fara með að minsta kosti fjórur vík-
ingasveitir gfii■ brú eina, meðan
skotið var á brúna.úr öllum áttum,
og rieðst á margar þýskar varðstöðv-
ar og hrakti þá úr þeim. En hann
kom aldrei aftur. Þjóðverjar náðu
í hann að lokum, en heiðursmerkið
bíður hans þegar hann losnar úr
fangabúðunum eftir stríðið.
Er miðstöð verðbrjefaviðskiftanna.
BRESKIR SJÓLIÐAR GÁ AÐ ÓVINUM.
Myndin er af breskum sjóliðum um borð á tundurspilli, sem
er að fylgja skipalest á Atlantshafi. Annar gerir staðarákvarð-
anir með sexantinum, en hinn notar kíkirinn, til þess að gá
að hvort nokkuð „óhreint“ sje í nánd. En á bak við sjest á
loftvarnarbyssu skipsins, sem er til taks, ef óvinaflugvjelar
kynnu að nátgast.
Ferðir eru stopular út um land
Munið eftir vinunum. Sendið þeim góða bók fyrir jólin:
Krapotkin fursti,
Maria Stuart,
Tess, eftir Hardy,
Kína, eftir Oddnýju Sen,
íslensk úrvalsljóð (nú eru öll bindin til),
Virkir dagar, eftir Guðmund G. Hagalín,
Neró keisari, eftir Weygall,
Saga Skagstrendinga, eftir Gísla Konráðs.,
Bækur Jóns biskups Helgasonar:
Meistari Hálfdán,
Hannes Finnsson,
Tómas Sæmundsson.
Oddi á Rangárvöllum, stórfróðleg bók eftir
Vigfús Guðmundsson frá Engey.
Fást hjá bóksölum eða beint frá Bókaverslun ísafoldar og
útbúinu, Laugavegi 12.
Frjálst fyrirkomulag.
Þetta fyrirkomulag er svo gott og
fullkomið að Franklin D. Roose-
velt forseti og fjármálaráðherrann,
Henry Morgenthau yngri, hafa lýst
yfir að þeir álíti þetta kerfi hetra
þar sem fólki er i sjálfsvald sett
hvort það kaupir ríkisskuldabrjefin
heldúr en þar sem það er neytt til
þess eins og í sumum löndum.
Einstætt atriði í þessu fyrirkomu-
lagi er að það þarf aðeins 10 cent
til að taka þátt í því. Það er hægt
að kaupa merki fyrir þessa litlu
upphæð. Þegar búið er að fá nóg
af merkjum er hægt að skifta því
fyrir ríkisskuldabrjef.
Þó að þessi mikla peningafúlga,
sem fæst með því að selja ríkis-
skuldabrjef, sje ekki nóg til að
standast kostnað af þátttöku Amer-
íku í stríðinu,. er það engu að síð-
— Geturðu útskýrt fyrir mjer,
kunningi, hvað gufa er?
—- Það er vatn, sem hefir svitnað.
ÞÝSK ÁRÁSARFLUGVJEL,
sem skotin hefir verið niður á Rzev-vígstöðvunum í Rússlandi
í haustsókn Rússa, sjest hjer á myndinni.