Fálkinn


Fálkinn - 20.11.1942, Page 10

Fálkinn - 20.11.1942, Page 10
10 F Á L K I N N YHC/Tli LE/eHbURNIft Rauða flaueliskápan Jörundur var ungur riddara sveinn og hafði þ.jónað húsbónda sinum með trú og trygð í þrjú ár; en nú var riddarinn daúður og Jör- undur lijelt út i víða veröld til þess að leita sjer að nýrri vist. A göngu sinni rak liann augun í gamla konu, sem sat við veginn og grjet sáran. „Hvað gengur að þjer, kona góð?“ spurSi Jörundur og nam staðar. „Get jeg nokkuð hjálpað þjer?“ , „Æ, nei,“ andvarpaSi gamla kon- an. „Enginn getur hjálpað mjer, eða að minsta kosti ekki nema for- ríkir menn. Og mjer sýnist þú ekki vera það.“ „Nei, ríkur er jeg ekki. En segðu mjer nú samt af liverju þú ert að eráta.“ „Geturðu sjeð litla húsið jiarna upp frá? Það er heimilið mitt, ag þar hefi jeg átt heima í meira en hálfa öld og jeg get ekki hugsað mjer að eiga heima annarsstaðar. En ríki bóndinn, sem á alt landiS hjérná um hverfis, ætlar aS reka mig út og taka húsið mitt af mjer.“ „Hvernig má það ske, að hann geri það?“ sagði Jörundur. „Hjer eru þó lög og rjettur i landi.“ „Já. En í vetur, þegar hálkan var sem allra mest hjerna á vegunum, datt jeg og fótbrotnaði og þessvegna hefi jeg ekki getað unnið neitt í þrjá daga. Þá lánaði hann mjer pen- inga og mat, en í staðinn l.jet hann mig skrifa undir skjal, og í því stóð, að jeg lofaði að borga þetta áður en árið væri liðið, anars ætti hann húsið mitt, og nú get jeg ekki borg- að honum skuldina, mig vantar tuttugu dali, og þessvegna tekur hann af mjer húsið.“ ,,Nei,“ sagði Jörundur fastmæltur, „það skal hann ekki gera. Líttu nú á!“ Svo tók hann upp budduna sína og helti þvi sem í henni var í lófa sinn. „Hjerna eru tuttugu dalir — taktu við þeim, þú hefir meiri þörf fyrir þá en jeg.“ Konan þakkaði honum fyrir og tók við peningunum, en þegar hann var að skilja við hana sagði hún; „Komdu með mjer heim — jeg á rauða flauelskápu, sem jeg ætla að gefa þjer sem lítilifjörlegan þakk- lætisvott fyrir hjálpina. Hún er ekki tuttugu dala virði, en hún er hlý og gott að hafa hana þegar kalt er.“ Jörundur þakkaði henni fyrir og tók við kápunni og fleygði henni undireins á herðarnar á sjer, því að það var orðið kvöldsett og farið að kólna. Þegar hann var kominn út á veg- inn aftur hugsaði hann meS sjer; „Jeg vildi óska að jeg lenti í veru- legu æfintýri! Bara að jeg gæti rek- ist á kongsdótturina, og ef hún væri falleg og góð þá vildi jeg óska, að liún fengist til að tala við mig. Hver veit þá nema jeg fengi að verða henni samferða upp í höllina og kan- ske gæti jeg orðið riddari hennar. Og loks mundi jeg óska, aS hún vildi giftast mjer.“ Indlandi fresli, heldur mundi land- Jörundur vissi auðvitað ekki, að það var óskakápa, sem hann bar á öxlunum, en svona var það nú samt. Og óskir hans fóru undir eins að rætast. Hann kom að beygju á veg- inum og þar sat Ijómandi falleg stúlka við vegarbrúnina. „Æ, mig verkjar svo í fótinn, það stakst þyrnir upp í ilina á mjer,“ sagði stúlkan. En hún var nú hvorki ineira nje minna en prinsessa, en var í dularbúningi. „Lofaðu mjer að hjálpa þjer að ná hoinum út,“sagði Jörundur og lagðist á hnjen hjá henni. Hann gat dregið út þyrninn og svo urðu. þau samferða um stund. „Þú ættir að fara heim í höll- ina,“ sagði stúlkan, „hver veit nema Jjú getir fengið atvinnu hjá kong- inum.“ ,Það jiætti mjer gaman,“ svaraði Jörundur, og Jiegar þau nálguðust höllina kvaddi hún hann og laum- aðist hliðargötu inn í hallargarðinn, en Jörundur fór að garðshliðinu og var undir eins hleypt inn í borg- arstofuna. En þar sat þá maður, sem þekti óskakápuna og hugsaði sjer gott til glóðarinnar að ná i hana. Þessvegna hjelt hann sig að Jör- undi og fór meS honum inn í her- bergið, sem hann átti að áofa í, og þegar Jörundur var háttaður, lædd- ist maðurinn til hans aftur og stal kápunni. Morguninn eftir þegar Jörundur ætlaði að hafa tal af kong- inum, var honum vísað fra. Hins- vegar fjekk hinn maðurinn undir eins að tala við konginn, og þegar kongurinn sá hann tók hann hon- um eins og hann væri prins. „Mig langar til að fá prinsessuna fyrir konu,“ sagði þjófurinn og þeg- ar prinsessunni var sagt þetta svar- aði hún undir eins játandi, þvi að hún hjelt, að Jjetta væri Jörundur. En þegar hún kom inn til Jiess að heilsa hrúðgumanum skildi hún, að hún hafði verið göbbuð, því að vísu var þarna rjetta kápan, en mað- urinn var ekki sá sami fríði og föngulegi riddari, sem hún hafði hitt, heldur ljótur og illmannlegur náungi, sem hún hafði aldrei sjeð áður. Nú svaraði hún nei, en kongurinn gat ekki tekið orð sín aftur og skip- aði prinsessunni að fara út og ganga sjer til skemtunar með unnustanum. Þegar þau komu út mættu þau. Jör- undi, sem var á vakki og ætlaði að reyna að hitta fallegu stúlkuna, sem hann hafði sjeð daginn áður. „Þarna kemur stúlkan!“ hrópaði hann. „Og kápan mínl“ og svo þreif hann kápuna af bófanum. Prinsessan rjetti Jörundi hönd- ina. „Þú ert rjetti riddarinn oð þú skalt verða maðurinn minn,“ sagði hún. Og svo fóru þau heim í höll. Kongurinn og öll hirðin ur'ðu mikið glöð yfir Jiví, að Jörundur hafði fengið kápuna sína aftur, en prinsessan sagði þeim frá hvílíkur máttur fylgdi henni. Hún vissi nefnilega að gamla konan, sem Jör- undur hafði gefið kápuna sína, var í rauninin álfkona, sem hafði ver- ið að reyna, hvað hann væri hjarta- góður. Nú fjell alt i Ijúfa löð og svo hjeldu þau brúðkaup, sem stóð í sjö vikur. Og gamla konan úr skóg- inum kom í brúðkaupið, en Jiegar hún fór þá hafði hún töfrakápuna með sjer, liví að Jiað getur vel hugsast, að aðrir þurfi á henni að halda seinna. .CQPYRIGMT DIB 90X6 COPEHMAGEN P Adamson tekur í nefið. S k r í 11 u r. Foringi norður&kautsleiffangursins. við skipstjórann: Eruð þjer mí al- veg viss um að áttavitinn gðar hafi verið rjettur. —- Þegar grafkýrin opnaði ginið göptu allir áhorfendurnir líka —- af tómri aðdáun. Henr/ot /6 —- Hvernig er heilsan? — Æ, minnist }>jer ekki á það. Nú er gigtin hlaupin úr vinstri síðunni í þá hœgri síðan hann snerist á úttinni. Heimkoman. Útbreiðið „Fálkann

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.