Fálkinn


Fálkinn - 07.01.1944, Side 12

Fálkinn - 07.01.1944, Side 12
12 F Á L Ií I N N 1 5EDRBE5 SIMEHDn i 4 Flæmska BÚÐIN Þetta gekk alveg fram af lækninum og hann baðaði út öllum öngum. „Kvenmaður? .... Góði herra. Dettur yð- ur í liug að kvenmaður gæti fengið af sjer að ....?“ „Eruð þjer ekkjumaður, lierra Van de Weert?“ „Jeg hefi .verið ekkill í tuttugu ár. En sem betur fer er dóttir mín . . . . “ „Hvaða álit hafið þjer á Josepli Peetej's?" „Hvað ætti jeg að segja? Þetta er ágætis- piltur .... Mjer hefði sannarlega þótt vænna um, að hann liefði lagt fyrir sig læknisfræði, því að þá hefði hann getað tekið við af mjer . . . .En svona er það. Hann virðist vera gef- inn fyrir lög. Og það er gott framtíðarstarf.“ „Hvernig er heilsa hans?“ „Hún er ágæt. Hann hefir að visu orðið að leggja mikið á sig, og það getur verið að hann sje dálitið dasaður. Svo er hann svo skelfing langur. Hann hefir ef til vill verið of bráðþroska.“ „Það eru engin veikindi i Peetersættinni?“ „Veikindi?“ „Hann lagði svo furðulega áherslu á orðið, að maður skyldi hafa haldið, að liann hefði aldrei heyrt arfgenga sjúkdóma nefnda á nafn. „Svei mjer, herra fulltrúi, ef jeg er ekki síeinhissa á þessari spurningu. Þjer hafið sjeð hana frænku mína, frú Peeters. Ef jeg væri spurður þá mundi jeg svara að hún yrði hundrað ára.“ „Og dóttir yðar?“ „Hún er viðkvæmari. Hún hefir það af henni móður sinni .... Má jeg hjóða yður vindil?“ , Þetta var hreinræktaður Flæmingi. Það var eins og liann væri kliptur út úr auglýs- ingamynd fyrir einhvert brennivínsmerkið. Þykkar, ljósraðuar varir og blá augu, sem einlægnin og sakleysið skein út úr. „Og ungfrú Marguerite ætlaði að giftast Joseph ?“ Svipinn á lækninum þyngdi ofurlítið. „Já. Við gerðum ráð fyrir að þau giftust þá og þegar. Ef að ekki þetta .... þetta óheillavænlega . . . . “ Hann gat ekki fundið rjetta orðið. En honum fanst þetta einmitt óheillavænlegt. „Það er einkennilegt, finst yður ekki?“ hjelt hann áfram. „Þau gátu ómögulega skil- ið hve miklu betra það hefði verið fyrir alla hlutaðeigendur að stúlkan hefði þegið dálít- inn lífeyri fyrir sig og barnið, og flutt svo í annan bæ, ef unt hefði verið .... Sannast að segja held jeg að það liafi verið bróðir hennar, sem -var potturinn og pannan í allri þessari óbilgirni.“ Maigret hafið ekki brjóst í sjer til að for- dæma liann. Honum var svo bersýnilega alvara, liann liafði gert þessi boð af góðum hug. Sakleysi hans hafði gert hann blindan á liina harðskeyttu raunveru lífsins. „Að maður nú ekki minnist á, að það varð aldrei sannað, að Joseph ætti barnið .... Ef við hefðum getað fundið gott heimili handa lienni og barninu .. . . “ „Þá hefði dóttir yðar heðið, þangað til þetta var gengið um garð?“ Van de Weert brosti. „Hún hefir verið ástfangin af honum síð- an hún var fjórtán ára. Finst yður það ekki dásamlegt? .... Og' ekki datt rnjer í hug að amast við þessu ........ Hafið þjer fengið eldspítu? .... Ef þjer viljið vit‘ mína einlægu skoðun á málinu, þá lield jeg að lijer hafi alls ekki verið um glæp að ræða. Þessi stúlka liefir altaf verið mesta strákaglenna, og nú mun liún hafa horfið á brott með einhverjum þeirra. Og svo ger- ir bróðir hennar sem mest liann getur úr hvarfinu, í þeirri von að liann geti haft peninga upp úr því . . . .“ Honum liugkvæmdist ekki að spyrja um skoðun Maigrets á málinu. Hann þóttist viss um, að sín skoðun væri rjett. Hann sperti eyrun þegar hann lieyrði liljóð framan úr biðslofunni. Sjúklingarnir mundu eflaust vera farnir að gerast óþolinmóðir. Og með jafn sakleysislegu augnaráði og læknisins spurði Maigret síðustu spurning- arinnar: „Ilaldið þjer að ungfrú Marguerite sje fylgikona Josephs?“ Það lá við að Van de Weert yrði reiður. Blóðið kom fram í æðarnar á enninu. En sú tilfinning, sem náði yfirliendinni, var mæðutilfinning yfir því, að nokkur maður skyldi geta verið svona skilningslaus. „Marguerite? .... Eruð þjer brjálaður? .... Hver gæti nokkurntíma liafa getað látið sjer detta slíkt i hug? .... Að Margue rite ... .“ Maigret hafði tekið liendinni um hurðar- húninn, og nú lcvaddi liann án þess svo mikið sem að brosa og fór út. í húsinu var sambland lyktar af mat og meðulum. — Slúlkan, sem skundaði fram til þess að opna ytri dyrnar var hressileg og sælleg eins og hún væri nýstigin upp úr baði. Þegar út kom tók undir eins við rigning og svað. Flutningabifreiðarnar, sem óku hjá skvettu for á gangandi fólkið. Þetta var laugardagur. Það var von á Joseph Peeters síðdegis, og liann mundi verða í Givet í kvöld og þangað til annað kvöld. f Café des Mariniers var rætt af miklu kappi, þvi að frjettir höfðu borist um það, frá brúa- og vegamálastjórninni, að nú væru siglingar leyfðar um ána, frá landamærunum og alla leið suður til Maas- tricht. En einn böggull fylgdi skammrifi: Vegna þess að straumþunginn var enn svo mikill i ánni tóku dráttarbátarnir fimtán franka á tonnið fyrir livern kílómetra, í staðinn fyrir tíu. Þarna voru þeir að tala um pramma með grjótfarmi, sem liafði slitnað upp frá bakkanum og rekist á einn stöjwlinn undir Namurbrúnni og sokkið og þvergirt eina rásina. „Urðu nokur sljrs?“ spurði Maigret. „Pranunastjórinn var í laildi, en konan lians og sonur druknuðu. Hann var að fá sjer í staupinu, þegar þeir drógu hann út af kránni. Hann hljóp niður á hakkann, en það var of seint að gera nokkuð, því að konan var komin í strenginn . . . . “ Gérard Piedmont kom við leiðinni heim í matinn. Hann var á hjóli í þetta sinn. Einni eða tveimur mínútum síðar kom Macliére, í balcaleið frá flæmsku búðinni, en þar hafði liann vitanlega ekki sagt frjett- irnar. Þegar hann gekk fyrir liornið hringdi hann dyrabjöllunni hjá Piedbæuf. Yfir- setukonan opnaði, og tók honum með engri blíðu. „Svo að þjer liafið setið í fangelsi fyrir að beita ofbeldi við stúlkur? .... Segið þjer mjer betur frá því!“ í flestum prömmum á Meuse er lireinlæti og þrifnaður i íbúðarklefunum eigi minna en á góðum lieimilum í landi. En þessu var ekki þannig varið um Etoile Polaire. Gustave Cassin var ókvæntur, og Jiað lítið, sem Jirifað var til, annaðist tvítugur piltur um borð, slagaveikur og ekki með fullu viti. Þarna í klefanum var líkt umliorfs eins og í svínastíu. Gassin var að háma i sig brauðsneið og kaldan sperðil, sem hann skolaði niður með flösku af rauðvíni. Hann var ófyllri en liann átti vanda til, og liafði nánar gætur á Maigret, og var tals- verða stund að liugsa sig um hvort hann ætti að svara. „í rauninni var alls ekki um ofbeldi að ræða. Jeg liafði sofið hjá stelpunni tvisvar eða þrisvar sinnum áður .... Eitt kvöldið þegar jeg mætti henni á förnum vegi vildi hún ekki sinna mjer neitt, og sagði að jeg' væri fullur. Jeg gerði nú ekki annað en að taka um úlfliðinn á lienni og halda Iienni, en Jiá æpti hún eins og jeg væri að drepa hana. Það vildi svo til að nokkrir lögreglu- Jijónar gengu hjá, og mjer varð Jiað á að reka einum þeirra utanundir með lmefan- um og velta lionum upp úr götunni.“ „Fenguð Jijer fimm ár fyrir Jietta?“ „Jeg hjóst við að fá Jiað. Bjeuð stelpu- tæfan sór að hún liefði aldrei liafl neitt saman við mig að sælda áður. Sem betur fór gat jeg leitt nokkuð vitni, og þó að dómarinn virtist ekki trúa öllu Jiví sem Jiau sögðu Jiá var mjer stoð í þeim. í raun- inni mundi jeg ekki liafa fengið nema eilt ár, ef ekki hefði verið lögreglujijónninn. Hann lá á spítala í hálfan mánuð . .. .“ «

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.