Fálkinn


Fálkinn - 10.11.1944, Síða 12

Fálkinn - 10.11.1944, Síða 12
12 FÁLKINM Pierre Decourelli: 21 Litlu flakkaramir Ranion sá, að systir hans hafði breyst, en honum fannst hún enn fegurri en áður. Hann varð undrandi yfir þeirri ró, er nú hvíldi yfir henni og' live hamingjusöm hún sýndist vera. Hann varð að játa fyrir sjálf- um sjer að Saint-Hyrieiz hafði ekki verið sá eiginmaður, sem syrgður yrði lengi. Hann mundi vel að Carmen liafði alltaf verið mótfallin giftingunni og gengið hálf- nauðug í hjónabandið. En hann hjelt þó ekki að hún hefði gleymt manni sínum svo fljótt. - Carmen gekk sorgarklædd, eftir að tím7 inn var útrunninn. Hún sagði honum frá dauða Saint-Hyrieiz, og sári þvi er hún hafði fengið. Daginn eftir fannst hún i kofa þar sem hún hafði leitað skjóls, viti sínu fjær af hræðslu. Hún lá lengi milli heims og helju, en til allrar liamingju hafði henni borist óvænt hjálp. Ungur liðsforingi særð- ist hættulega í uppreisninni, móðir hans kom til að hjúkra lionum. Hún hafði sýnt Carmen hina mestu velvild og hjúkrað henni af mikilli nákvæmni. — Jeg skal kynna þig þessari konu, sagði Carmen brosandi. — Þú verður að þakka henni, því að það er henni að þakka að jeg er á lífi. — Já, jeg skal þakka henni, því að dauði þinn hefði verið dauði minn. Mjer liefði líf- ið verið einskisvirði, án þín. — Hefir þú hugsað um dauðann. Jeg veit að þú varðst fyrir þungu áfalli, þegar þú misstir hæði harnið þitt og Helenu, sem var svo góð, fórnfús og trygg. Jeg bið til Guðs á hverjum degi, að hann láti mig líkjast henni. Ramon náfölnaði. Carmen hrópaði ótta- slegin. — Hvað gengur að þjer? Hún misskildi ástæðuna fyrir geðshrær- ingu bróður síns og sagði: — Fyrirgefðu að jeg snerti þennan streng. En er ekki hægt að lækna þetta sár? Þú ert ríkur og hefir mikla hæfileika. Hefir ' lífið þá ekkert að bjóða þjer framar? Þjer er óhætt að reiða þig á, að Helena sjer okkur, og liún vill, að þú lifir. .. . Ramon tók fram í fyrir henni og sagði: — Hvað heitir konan sem bjargaði þjer? — Hún heitir d’Alboise, hún er ekkja eftir hershöfðingja, sem fjell í orustunni við Solferino. Hún á aðeins einn son, Robert d’Alboise, sem gengnir störfum í þágu hers- ins í Cayenne. Hún veit að þú ert kominn, þessvegna kom liún ekki í dag eins og hún er vön. Hún kemur á morgun og þá munt þú komast að raim um hve indæl hún er. Daginn eftir kom frú d’Alboise. Sonur hennar leiddi hana, og það var auðsjeð að þessi heimsókn var unga manninum mikils virði, þvi að hann var mjög ó- rólegur. Carmen og Ramon stóðu úti á garðþrep- inu, þau gengu á móti gestunum. — Kæra frú, leyfið mjer að kynna yður fyrir bróður mínum, Ramon de Montlaur, sagði Carmen. — Jeg hefi svo oft talað um hann við yður, og jeg vona að yður sje þegar orðið hlýtt til hans. Ramon heilsaði frúnni og þrýsti ósjálf- rátt hönd unga liðsforingjans. Dagurinn leið fljótt við slcemtilegar sam- ræður. Nú var komið kvöld og orðið þægilega svalt. Carmen settist við hljóðfærið og spil- aði írskt lag, sem bróður hennar hafði þótt svo vænt um á Penhöet. Þau vissu ekki að Helena spilaði sama lag daglega liarm- þrungin og örvæntingarfull. Meðan Ramon hlustaði á lagið, ljet hann Iiugan reika til Frakklands. Tárin komu fram í augu hans, en í sál hans var enginn beiskja. Hugsanir hans urðu mildar. Hann minntist hinna fyrstu daga, sem þau voru gift. Frú d’Alboise tók eftir tórunum. Hún hjelt, eins og aðrir, að Ramon syrgði látna eiginkonu, og liún reyndi að finna mild og blíð huggunarorð, sem aðeins koma af vör- um ástríkrar móður. Ramon sagði þegar þau systkinin voru orðin ein: — Frú d’AIboise er ein bestu kvenna, er jeg hefi kynnst og hún er eins hjartahrein og hún er gáfuð. — Hvernig líst þjer á hann? — Hann er móður sinni til sóma. Carmen ljómaði af gleði, og þó að Ramon skeytti þvi litt, sem fram fór í kringum hann, tók hann eftir þessu. — Þú virðist láta þig miklu skifta álit mitt um þetta atriði. Þú virðist vera glöð yfir því mikla áliti sem jeg hefi á þeim mæðg- inum. — Já, auðvitað gleðst jeg yfir því, að þjer skuli litast vel á þá, sem jeg ann næst þjer. Samtalið varð ekki lengra. Þetta rólega og friðsæla líf hafði undarleg áhrif á Ramon. Hann lirökk stundum upp af værum blundi á nóttunni og sagði við sjálfan sig: — Jeg elska hana. Jeg get ekki neitað þvi. Jeg elska þá sem hefir svikið mig ítryggðum^ og þrái barnið sem annar er faðir að, en jeg á þó fyrsta bros og fyrsta koss þess.... Hann grjet af reiði yfir því að geta ekki losnað við þessar myndir úr hjarta sjer. Stundum hvíslaði rödd í brjósti hans: — Ætti jeg ekki að reyna að finna þau aftur? En hefnigirnin fjekk aftur yfirhöndina. Hann ætlaði að hefna sín rækilega. Svo hófst sálarstríð hans aftur. Hann hafði elskað hana svo heitt. Það leið ekki á löngu áður en hin nývakta ástarþrá hans óx að miklum mun, því að hann tók eftir að Robert d’Alboise og Carmen felldu hugi saman. Hann sá augnaráðið, sem þau sendu hvort öðru og roðann sem allt í einu hljóp fram í kinnar þeirra. Þannig höfðu þau Helena verið í gamla daga á Penhöet. Carmen talaði alltaf með aðdáun um mág- konu sína og Ramon hafði tekið þann kost að þegja og láta sem hann tæki ekki eftir því, orð hennar höfðu eigi að síður mikil áhrif á hann. — Hún hefir verið voðalegur hræsnari, hugsaði hann með sjer. — Henni hefir tek- ist að blekkja þau eins og hún blekkti mig. Róbert og Carmen skildu hvorugt, hve sorgbitinn Ramon var oftast. Nú voru sjö ár liðin frá dauða Helenu. Þannig fannst þeim það nógu langur tími fyrir Ramon að jafna sig, og það var ekki laust við að hryggð þeirra yfir sorg hans væri blandin eigingii-ni. Hvað mundi Ramon segja og hugsa ef Carmen ætlaði að giftast á ný eftir svo stuttan tíma frá andláti manns hennar. Samþykki hans var nauðsynlegt, ekki þó eftir lögunum, heldur eftir erfða- venjum ættarinnar. Robert vildi umfram allt segja, hvernig í öllu lá. Hann vildi segja Romon frá sam- bandi þeirra, barninu og ástinni, sem knúði hann til að leita hennar í ókunnu landi. — Hann vildi útiloka allt er skyggt gæti á sambúð þeirra hjeðan i frá. Carmen var slíkri játningu mótfallin. Hún þeklcti skaplyndi bróður síns. Hún vissi að hann mundi aldrei fyrirgefa þeirn þá yfirsjón, nje heldur veita samþykki siit til hjónahands, sem stofnað var til í mein- um. — Smánarblettur verður aldrei þveginn burt. Carmen hafði oft heyrt hann segja þessa setningu. Ef til vill gengi hann svo langt að hann skipaði þeim að hittast ekki framar. Hversvegna ættu þau að gera þessa játn- ingu. Róbert gat sagt að Marcel væri á- vöxtur æskuyfirsjóna, sem eklci hefði ver- ið hægt að bæta úr með giftingu. Drengurinn unni Carmen sem móður og kallaði hana líka mömmu, eftir að hún fór að taka þátt 1 uppeldi lians. Þetta var alt svo eðlilegt, að Ramon mundi ekki gruna hið minnsta. Róbert samþykkti ráðagerð þessa eftir langt þóf. Þau sátu kvöld eitt niður við hafið og voru öll hálf angurvær í huga; þá tók Ro- bert til máls: — Kæri Montlaur, sagði hann. — Systir yðar hefir falið mjer að reka erindi, sem mjer er mjög ljúft að gera. Jeg elska hana eins heitt og nokkur kona liefir verið elskuð og jeg er þess fullviss að hún ann mjer engu siður. En við viljum bæði leita sam- þykkis yðar. Jeg leyfi mjer því að spyrja yður: Viljið þjer gefa mjer lrönd systur yðar? — Hvernig ætti jeg að vera því mótfall- inn, sem Guð lrefir áreiðanlega ákveðið fyrirfram, sagði Ramon og brosti vingjarn- lega. Þjer elskið Carmen og hún elskar yður. Þjer óskið þess að jeg veiti samþykki mitt. Það geri jeg hjer með. Berið höfuðið ætíð hátt. Þið hafið ekkert að ásaka ykkur fyrir. Fögur framtið bíður ykkar. Cai'men verður trú þeim manni, sem hún heitir tryggðum, því að Montlaurarnir svíkja ekki loforð sín. Jeg óska ykkur af öllu hjarta til ham- ingju. Róbert fór hjá sjer við síðustu orð Ram-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.