Fálkinn - 18.01.1946, Side 4
4
FÁLKIN N
Átta ríkustu menn veraldar
Ilirohito Japunskeisari.
MEÐAL þeirra murgu auð-
kýfinga, sem sagan kaan
að lierma frá. er eum,
sem nýlega hefir vekið athvgli
á sér með því að kaupa veð-
hlaupahest fyrir 780.000 krónur.
Það er indverskur, feitur fursti,
38 ára gamall, Geekvar af Bar-
oda, og er lians oft getið í sam-
handi við peninga. Það liefir
nú vitnast, að hann hefir um
53 miljónir króna í árslaun, svo
að hann er ekki lengi að vinna
fyrir hestinum. Eignir hans eru
metnar á 1300-1800 miljón kr.
en það nægir til að liann komist
í tölu átta ríkustu manna i
heimi.
Ilverjir eru þá hinir sjö?
Sá fyrsti þeirra er annar
austurlandabúi, sem er marg-
falt ríkari en furstinn af Bar-
oda, sem sé nizaminn af Hyd-
erabad. Hann á mesta gim-
steinasafn veraldar, og er það
eitt talið um átta miljard kr.
virði. Hann á líka mikið af
gulli, meðal annars borðbúnað
úr gulli lianda 150 manns. —
Árstekjur lians eru taldar um
80 miljón krónur, en samt er
sagt að liann eyði ekki nema
um 130 krónum á mánuði í
sjálfan sig. Furstadæmi hans
her allan kostnað af hirð lians,
svo að hann heldur tekjum
sínum að heita má óskertum.
Það má fullyrða að nízaminn
af Ilyderabad sé ríkasti maður
veraldar nú á tímum. En fram
til þess að Japan gafst upp i
sumar sem leið mun Japans-
keisari hafa getað gert kröfu
til þessa heitis. „Sonur himins-
ins“, Hirohilo, átti sem sé eign-
ir, sem gáfu meira af sér en
gull og gimsteinar nízamsins.
Þær gáfu keisaranum sem sé
650 miljón króna árstekjur.
Meðal þeirra eigna voru víð-
lend skógaflæmi, dýrustu lóð-
irnar i Tokíó (sem nú eru rúst-
ir) og feiknin öll af hlutabréf-
um i helstu gróðafyrirtækjum
í Japan. Ilvenær sem nýtt hluta
félag var stofnað rann noklcur
hluti af hlutabréfunum sjálf-
krafa til keisarans, og átti hann
nálægt 8% í öllum lilutabréfum
japanskra fyrirtækja.
En Ilirohito hefir aldrei gert
miklar kröfur til lífsins, frem-
ur en nízaminn af Hyderabad,
þó að hann hefði um 6% miljón
króna tekjur á viku, keypti
hann sér aldrei neina skart-
gripi, og annbandsúrið hans,
sem er japanskt, kostaði ekki
nema um 20 krónur.
T_JENRY FORD stendur enn
■■■ ■*■ fremstur þeirra auðkýf-
inga, sem safnað liafa pening-
um af eigin framtaki og atorku.
Þessi sjálfmenntaði maður er
nú orðinn 82 ára, og hefir sett
sér það mark að verða hundrað
ára (það gerði Roekefeller líka,
en vantaði „tommu tii“). IJann
græðir að sögn 50 kr. við hvert
tif í úrinu sínu. Þegar liann
hyrjaði að smiða bifreiðar, á
fertugsaldri, voru árstekjur
lians ekki nema um 20.000 kr.
Árið 1940 var talið að Ford og
fjölskylda lians ætti yfir 4 milj-
ard króna í bilaiðnaði.
r)IERRE Du PONT er ekki
*- mörgum hestlengdum á eft-
ir Ilenry Ford. Eignir hans i
hlutafélögum þeim, sem við
hann eru kennd — Du Pont
de Nemours og U. S. Rubber
Company — voru metnar á
3,7 miljard krónur. Auðæfi sín
hefir Du Pont aðallega grætl á
framleiðslu sprengiefna til
hernaðar, málningavörum, gerfi
silki og bifreiðum, en að öðru
leyti hefir hann verið riðinn
við allskonar framleiðslu. En
byrjunin að þessum stórfelda
iðnaði var lítil púðurgerð, sem
liinn fyrsti Du Pont, sem var
franskur úrsmiður, setti upp
á stjórnarbyltingarárunum i
Frakklandi. Afkomandi hans er
Pierre Du Pont, liæst líftryggði
maðurinn í lieiminum — fyrir
40 miljón krónum.
John D. Kockefeller, fyrsti.
Næstur Pierre Du Pont kem-
ur Rockefeller annar, sem líka
heitir Jolm D. að fornafni, eins
og faðir hans, en skrifar sig
jr. (yngri) þó að hann sé orð-
inn 71 árs og Rockefeller eldri
eða elsti sé dauður. Er þetta
gert í virðingarskyni við gamla
manninn. Og um það bil jafn-
fætis honum stendur Mellon-
l'jölskyldan, eða Mellon sá, sem
eitt sinn var fjármálaráðherra
og fékk dóm fyrir skattsvik.
Eignir þessara fjölskyldna —
livorrar fyrir sig — ern taldar
rúmlega 2% miljard króna
virði og öll þessi auðæfi eru
fengin fyrir steinolíu. Rocke-
feller er ráðandi maður í
Standard Oil of New Jersey,
en Mellon í Gulf Oil Corpora-
tion. Mellon hefir einnig grætl
mikið á alúmíníum og enda
fleiru, en Rockefeller hefir hald
ið sig við olíuna og alll ]mð,
sem snertir hreinsun liennar og
flutninga.
OJÖUNDA mannsins í Krös-
^ usarsveitinni er að leita uppi
í fjöllum í Bolivíu. Þar hittum
við 82 ára gamlan mann, (jafn-
aldra Fords) sem lieitir Don
Simon Iturbi Patino, og er kall-
aður tinkongurinn. Don Simon
hefir meðgengið það sjálfur, að
eiginlega viti hann ekki, live
mikið hann á, en hann lætur
sig engu skifta, livort það er
tuttugu miljónum meira eða
minna. IJann er vanur að hafa
fast að 100 miljón krónum
handbærar í bönkum hér og
hvar í veröldinni. Þegar dóttir
hans giftist spönskum aðals-
manni árið 1931, gaf pabbi
gamli henni 200 milljón króna
hankaávísun í brúðargjöf. —
Fyrir 50 árum var þessi sami
Simon skrifstofumaður á sult-
arlaunum i þýskri verslun í
Bolivíu. En hann greip gæsina
eitl sinn er ekkja kom í búðina
og bauð fram landskika, sem