Fálkinn


Fálkinn - 22.02.1946, Blaðsíða 2

Fálkinn - 22.02.1946, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N □ RflTORIIÐ ME55IA5 EFTIR HflnDEL Tónlistarfélagið flytur um þessar mundir óratoríið Messías eftir Hiindel. Fyrir nokkrum árum flutti félagið þetta sama verk, en þá við lakari skilyrði en nú eru. Að 'þessu sinni er óratoriið flutt í Fríkirkj- unni og taka þátt í því hljómsveit og kór Tónlistarfélagsins, fjórir einsöngvarar og Páll tsólfsson dóm- kirkjuorganisti. Flestir sem hlýtt hafa ó Messías nú munu á einu máli um, að það sé hið mesta fagnaðarefni að ís- lenskri tónmennt skuli hafa fleygt svo fram, að slik verk séu á valdi innlendra manna. Má sennilega full- yrða að þessu marki hefði ekki verið náð nema fyrir framúrskar- andi þrautseigt og óeigingjarnt starf Tónlistarfélagsins. Eru það ótalin spor og snúningar, sem sumir með- limir þess hafa lagt á sig endur- gjaldslaust fyrir þá göfugu hugsjón að efla tónmennt íslendinga. Eins og kunnugt er var Georg Handel (eða Handel, eins og hann nefndist, eftir að til Englands kom) þýskur að ætt og uppruna (fæddur í Halle á Saxlandi 1685). Um þrí- tugsaldur settist hann að í Englandi og átti þar heima til æviloka. Var hann þar handgenginn konunginum, hlaut hin æðstu metorð, var aðl- aður og bjó að mörgu leyti við hin ánægjulegustu lífskjör. Má sjá að tónverk eins og Messías beri þessa talsverðar menjar, því að frá upp- hafi til enda sindrar verkið af þrótti og lífsfjöri, svo að þar er hvergi bláþráður á. Verkið samdi Handel 1743 á undra skömmum tíma —- kringum þrem vikum! — Þau afköst sýna, að höfundurinn hefir unnið af logandi eldmóði að þessu snilldarverki. Flutningurinn á Messíasi hefir tekist svo vel, að leikmenn í tón- mennt verða að minsta kosti engrar snurðu varir. Hljómsveitin gegnir Uándel. sínu hlutverki af mestu prýði og söngur kórsins er svo þróttugur og hreimmikill, að unun er að. Um organleik Páls ísólfssonar þarf ekki að ræða. Einsöngvarar eru: Daníel Þorkelsson, Guðmunda Elias- dóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir og Roy Ilickmann. Öll leystu þau hlut- verk sín vel af liendi. Ef til vill er sérstök ástæða til að samgleðjast Guðrúnu Þorsteinsdóttur, því að rödd hennar hefir aldrei hljómað betur. Dr. Victor Urbantschitsch stjórnar verkinu. Sá maður hefir þegar unn- ið íslenskri tónmennt ómetanlegt gagn og á vonandi eftir að starfa hér um langan aldur. í stjórn hans er öryggi og festa, og ekki síst lægni. Með þessum eiginleikum tekst lion- um að kalla fram það besta, sem öngavararnir og hljómsveitarmenn- irnir, er lúta veldissprota hans, búa yfir. Tónlistarfélagið er eitthvert at- hafnamesta menningarfyrirtæki í þessum bæ. Með flutningnum á Messíasi hefir það enn aukið hróður sinn. Sjötug vevöa 27. þ. m. sustkinin Sigurveig Sigurðardóttir, Stúfliolti Iloltum, og Sigurðtir Sigurðsson, Götuhúsum, Stokkseyri. Columbus flutti með sér hesta til Ameríku. Það var í fyrsta skifti þá, sem hesthófur snerti ameríska jörð, og Indíánarnir voru hræddir við þá, en töldu þá þó yfirnáttúrlegar verur. Rakasti staðurinn í lieimi er Cherra-Pungi í Assam í Vestur-Indlandi. Þar er úrkoman 11 metrar, eða nær tíu sinnum meiri en hér á landi. Einar Jóhannsson, múrarameistari, Mánagötu 5, varð 50 ára 17. febr. Indland hefir nærri þvi 400 miljón ihúa. Á tíu áruni liefir fólkinu fjölg- að um 10 af hundraði. „Tamburin“ er lítil og létt tromma með bjöllum, sem spanskar dansmeyjar nota með sérstaklega mikilli leikni. Flest hljóðfæri breytast að lögun frá öld til aldar, en tamburinan hefir ver- ið alveg óbreytt í 2000 ár. ***** Eitthvað fær VIM að gera hér. Berið VIM í deigan klát. Skolið síðan vandlega. Nú er baðkerið hreint og gljáandi, og ekki var ná erfiðið mikið. VIM Skordýrin eru langstærsti dýraflokkurinn í ver- öldinni. Af þeim liafa fundist yfir sex miljón mismunandi tegundir. eyðir blettum og óhreinind um fljótt og vel. X-V 439-786 REX-R0TARY FJÖLRITARAR REX-ROTARY Aðalumboð: 0, K0RNERUP - HANSEN Suðurgötu 10 — REYKJAVÍK — Sími 2606 Alltaf fyrirliggjándi: STENSIL — STENSILFARVI, svartur og misl. — FJÖL- RITUNARPAPPÍR — BRÉFSPJÖLD — TEIKNIÁHÖLD AUt tilheyrandi fjölritun. Ókeypis kennsla og eftirlit. Varahlutir og viðgerðir.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.