Fálkinn


Fálkinn - 22.02.1946, Blaðsíða 7

Fálkinn - 22.02.1946, Blaðsíða 7
F Á L K I N N 7 Frá Iandinu svarta. Allir, sem hafa ferðast um námuhéruð, kannast við stóru úrgangshaugana sem safnast smátt og smátt umhverfis námurnar og breyta landslaginu alveg með tímanum. í fangabúðum. — í hinum breska hernámshluta Austurríkis, eru um þaö bil 10.000 ungverskir hermenn í haldi, og þeir eyða tímanum við allskonar störf, meðan þeir bíða eftir að komast heim til sín. Hér sést ungverskur hermaður að starfi við fjalhöggið, en lítil stúlka stend- ur hjá og fylgist með verkinu af áhuga hinum mesta. Velkomnir heim! - Dresku hermenn- irnir, sem bjargað var úr fanga- búðum i Japan, fá hjartanlegar við- tökur, er þeir koma heim til Eng- lands frá Austur-Asiu. Þessi mynd var tekin, þegar skip kom þaðan til Southamton. Það er verið að stinga sígarettupakka i vasa her- mnnnsins. Þessi mynd er frá belgískum námubæ og á henni sjást þessi titbúnu úrgangsfjöll. Gamlar konur skríða þar um og safna kolaleifum, sem þær nota til eigin þarfa eða selja öðrum. Og hér sést hreinsunarsalurinn t einni hinna stóru kolanáma. Þegar kolin eru komin upp úr hinum djúpu námagöngum, eru þau látin renna eftir reim framhjá fjölda kvenna og unglinga, sem hreinsa með æfðum höndum steina og önnur efni, sem ekki geta brunnið, og höggvin hafa verið með kolunum. Börge Rosenbaum, danski kvikmynda leikarinn varð að ftýja til Ameriku Í9//Í. Þar vann hann sér fljótt álit og tók sér „arískara“ nafn, Victor tíörge. Nú er hann á förum heim til Kaupmannahafnar að finna aftur marga gamla aðdáendur. Frægar persónur, sem unnið hafa Nobelsverðlaun. — Myndin er tek- in hjá dr. Svedberg i Stokkhólmi og sjást á henni talið frá vinstri: Flemming, prófessor, dr. Chain, Mrs Florey, Mme. Sacharine og dr. Svedberg. Mrs. Florey er að skrifa nafn sitt í nafnabók dr. Svedbergs. Alþjóðalögreglan í Vínarborg. — Á nóttunni er lwfuðborgar Austurrikis gœtt af herlögreglu Bandamanna, mönnum frá Dretlandi, fíússlandi, Austurríki og Frakklandi. — Hér sjást lögreglumenn ræðast við. Fán- ar þessara fjögra þjóða blakta á bilnum. Óskað eftir meiri yndisleik. — í Ameriku hafa verið settir á stofn sérstakir skólar, sem þjálfa þernur farþegaflugvélanna í stimamýkt og framgöngu, svo að þær verði ómót- stæðilegar fyrir farþegana. Iiér sést amerísk þerna við starf sitt í lofti uppi. Afleiðingar ófriðarins. — Dreskar konur hjálpa karlmönnunum ennþá við öll þeirra störf. Hér sést hópur þeirra hreinsa járnbrautarvél.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.