Fálkinn - 22.02.1946, Side 15
FÁLRINN
15
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS:
Aðalfundur
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélag Islands verð-
ur haldinn i Kaupþingssalnum í liúsi félagsins í Reylcja-
vík laugardaginn 1. júní 1946 og liefst kl. IV2 e. h.
DAGSKRÁ:
1) Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári og frá starfstilliöguninni á yfir-
standandi ári og ástæðum fyrir henni og leggur til
úrskurðar endurskoðaða rekstrarreikninga til 31. des-
ember 1945 og efnahagsreikning með athugasemdum
endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til
úrskurðar frá endurskoðendum.
2) Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3) Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað
þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögum.
4) Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5) Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins í
Reykjavik dagana 28. og 29. maí næstkomandi. Menn
geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja
fundinn í aðalskrifstofu félagsins i Reykjavík.
Reykjavík, 5. febrúar 19^6
STJÖRNIN.
Frá Fiskimálanefnd
Fiskimálanefnd hefir aflað tilboða og annara upplýs-
inga um ýmsar niðursuðuvélar frá Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku, Englandi og Bandaríkjunum.
Þeir, sem áhuga hafa á því að koma upp niðursuðu-
verksmiðjum, geta því snúið sér til nefndarinnar og feng-
ið upplýsingar um verð og gerðir slíkra véla.
Ennfremur geta þeir, sem byggja vilja verksmiðjur,
fengið ýmsar aðrar tæknilegar upplýsingar varðandi
niðursuðu og aðstoð við skipulagningu verksmiðja.
Fyrst um sinn verður sérfræðingur nefndarinnar á
skrifstofunni til viðtals um þessi málefni á laugardög-
um kl. 9—12 fyrir hádegi.
Litur loftsins
er mismunandi, eftir því úr hve
mikilli hæð maður horfir á það.
Hefir þetta sannast við ferðir þær,
sem vísindamenn hafa farið upp
í háloftin. Frá 8.500 til 21.000 m.
hæð breytist liturinn úr bláu í
fjólublátt, en í meira en 22.000 m.
hæð, er hann svarlur eða svartgrár.
Slippfélag'ið
í Reykfavík li.f.
Símar: 2309 — 2909 — 3009.
Símnefni: Slippen.
FYRIRLIGGJANDI:
Áragaflar Heflar (Stanley) Skrúfur
Áttavitar 4” Hengilásar (galv., kopar,
Bandsagablöð Hjólsagablöð galv., nickel).
Bátshakar Kalt lím Stálbik
Blý Lamir, allsk. Stálborar
Brýni Maskínuboltar Tengur
Borðaboltar Málning allsk. Hrátjara
Cubrinol Málningapenslar Koltjara
Dekkboltar Rilar Tin
Drifakker Skápaskrár Twistur
Fernisolía Skóflur V atnstrekk jarar
Franskar skrúfur Sköfur Vatnspappír
Galv. Boltajárn Smergilléreft Þjalir
Gúmmístakkar Skífur
Hampur Smekklásar 0. m. fl.
Þorskanetagarn 4-þætt
Hrognkellsanetagarn 4-þætt
úr ítölskum hampi.
Einnig von mjög bráðlega á
Laxanetagarni 5—6-þættu
Selanótagarni 8-þættu
GEYSIR h.f.
Veiðarfæradeildin
Yfirkokkurinn
á Hotel Astor i New York, Francis
O’Connor, er mikill safnari. En hann
safnar ekki málverkum eða fri-
merkjum, heldur — matseðlum, og
mun hann eiga hest safn veraldar
i þeirri grein. Hann á 12.000 mat-
seðla og eru sumir þeirrá fágætir
og merkilegir. Þar á meðal er mat-
seðillinn úr brúðkaupsveislu Hol-
landsdrottningar, annar er úr veislu
austurlandafræðinga á alheimsþingi
i Stokkliólmi, er hann útflúraður
með arabísku letri og allur í Ijóð-
um. Þá er matseðill úr smkvæmi,
sem haldið var i Hyde Park i Lon-
don og átu gestirnir á hestbaki.
Einn matseðillinn er úr veislu,
sem haldin var inni í frelsisstyttunni
fyrir utan New York.
♦ * * ♦ *
Hnefaleikari
í þýska bænum Ossweil varð frægur
fyrir það afrek að berja sjálfan sig
niður. I-Iann ætlaði að greiða and-
stæðingnum högg og hitti ekki, en
missti fótanna og datt svo illilega
á hrammana, að hann gat ekki risið
upp i tíma.
Á ítalíu
voru fyrir striðið uppi ráðagerðir
um að gera Tiber skipgenga til
Róm og gera höfn skammt frá
Péturskirkjunni. Hugmyndin er göm-
ul. Frá tæknilegu sjónarmiði er
ekkert því til fyrirstöðu. Það þarf
ekki annað en grafa niður árfarveg-
inn og setja í hann nokkrar flóð-
gáttir og skipastiga.