Fálkinn - 01.03.1946, Side 7
F Á L K I N N
7
Hermaður kemur heim. — Sir Iíar-
old Alexander hershöfðingi er far-
in heim til Englands til að hvíla sig,
áður en hann hcldur af stað til
Kanada, Jjar sem liann á að verða
landstjóri. — Sir Harold hefir yndi
af að mála og strax og hann kemur
heim setst hann við málaratrön-
una úti i garði sinum og kona hans
og sonur horfa á hann við verk sitt.
Konungurinn í Siam kominn heim. — Hinn tvitugi konungur Siam, Ananda Mahidol, sem hefir verið í Sviss
siðan 1938, er nú aftur kominn heim til ættlands síns. Að aflokinni hátíðlegri móttökuathöfn á
flugvellinnm, ók konungurinn í gegnum Bangkok til Búdda-musterisins. Þessi mynd var tekin þar
og sýnir Ananda Mahidol og fylgdartið hans.
Stífir öklar. — Ameriskir hermenn,
sem í stríðinn meiddust á fótum,
svo að öklarnir styrðnuðu geta liðk-
að þá á ný, til dæmis með því að
stíga útsögunarvélar eins og sýnt
er hér á myndinni.
Yfirdómarinn í Nurnberg. — Hér
gefur að lita yfirdómaranti i rétl-
arhöldunum yfir stríðsglæpamönn-
ununv í Niirnberg, enska yfirdóm-
arann Sir Geoffrey Lawrence. Hann
gengur þó ekki með hárkollu við
dómstörfin i Núrnberg.
rikir nú mikilt
um kröfugöngur
Hljómleikar til styrktar nauðstöddu fólki. — Á ítalíu
skortur á öllum sviðum. Fregnir þaðan fjalla oft
kvenna, sem krefjast fullnægjandi fæðis handa sér og börnum sínum.
Innbrot í matvælaverslanir eru daglegir viðburðir í öllum bæjum. En
mikið er gert til að bæta úr skort inum, þó að það hafi venjulega
lítið að segja. Hér sjást prestar af Salesiani-reglunni vera að halda
hljómleika á götu í Róm til styrktar nauðstöddum börnum. Krakkarnir
leggja sinn skerf til starfseminnar ~~ = >—
Hér er nóg af þeim. — Þaö er lunyt
siðan við höfum fengið banana hér.
en í Austurlöndum virðist enginn
hörgull á þessum hollu og Ijiiffengu
ávöxtum. Kínverski drengurinn á
myndinni, sem er að selja breskum
sjóliðum banana, virðist vel birg-
ur af þeim.
Danski forsætisráðherrann, Knud Kristensen, notar allar frístundir til að hvíla sig í hópi fjölskyldu sinn-
ar. Hér sést hann ásamt konu sinni og eru þau að gœla við eitt af barnabörnum sínum.