Fálkinn - 01.03.1946, Side 14
14
F Á L K I N N
ÉG ER HRÆDDUR.
Framh. af bls. 5.
Ef stórveldin afneita kjarn-
orkustyrjöld og komast að sam-
komulagi um alþjóða eftirlit,
munu vísindamenn allra landa
sameinast um störf sín og skuld
biridingar og þeir munu þegar
tilkynna það, ef einhver á-
kveðinn fjöldi kjarnorkufræð-
inga skyldi hverfa af sjónar-
sviðinu.
Eg er ekki frá því, að við
getum gert okkur vonir um,
að ættjarðarást sú, sem flestir
menn hera í brjósti, geti breysl
þannig að hún verði — ekki
ást á einu landi og umhyggja
fyrir velferð einnar þjóðar —
heldur ást á öllum heiminum
og umhyggja fyrir velferð alls
mannkynsins. Og þessi sanna
ættjarðarást mundi strax láta
til sín taka, ef valdagráðugur
ofbeldisseggur mundi vilja tæla
hóp kjarnorkufræðinga til að
rjúfa alþjóðasamkomulag gegn
framleiðslu kj arnorkusprengj-
unnar. Þetta segi ég', vegna þess
að ég þekki vísindamenn frá
öllum löndum heims, og ég
veit að við tölum allir sömu
tungu.
Annað atriði, sem vert er að
gleðjast yfir í þessu sambandi,
er sú staðreynd, að eins og
stendur þarf gríðarstórar verk-
smiðjur til að framleiða kjarn-
orkusprengjur. En auk þess
þarf ýmisleg efni, sem eru mjög
fágæt, svo að tiltölulega fá-
mennur floklcur eftirlitsmanna
gæti hæglega haft nákvæmar
gætur á framleiðslu þeirra. Eg
imynda mér ekki, að það sé
ofvaxið manniegri hugvitssemi
að setja á stofn alþjóða eftir-
litsnefnd til að gæta þessara
hlula og tryggja mannkyninu
frið í hjarta og hugarró.
Rússar.
Nú skulum við tala um Rússa
Ef þú gerir þér grein fyrir því,
að á vísindasviðinu í Rússlandi
starfa margir mestu hæfileika-
menn heimsins, þá muntu skilja,
í fyrsta lagi, að leiðtogar
Rússa hljóta að sjálfsögðu að
óttast möguleikana í sambandi
við kjarnorkusprengjuna, og í
öðru lagi, að það mun ekki
líða á löngu, þangað til þeir
komast höndum undir hana. Og
hvað viðvíkur afstöðu þeirra,
þá slculum við gera okkur í
hugarlund, hver afstaða okk-
ar væri, ef þeir réðu yfir þessu
hræðilega vopni, en við ekki;
ef það væru þeir, sem hefðu
náð því marki, sem við víss-
um að við gætum náð innan
skamms.
Eg sé i huga mér fund, þar
sem leiðtogar stórveldanna sitja
á rökstólum með vísindamönn-
um sínum. Eg veit að ráðlegg-
ingar vísindamannanna munu
mótast af trúnaðartrausti leið-
toganna. Vísindamönnum mun
veitast auðvelt að skilja hverjir
aðra. Þegar þeir koma saman,
held ég, að álitsgjörðir þeirra
allra verði því nær samhljóða.
Engin þjóð þekkir skelfingar
stríðsins, betur en Rússar. —
Engin þjóð hefir misst meira
í mannslífum og verðmætum
en Rússar. Rússar komust í
kvnni við síðasta stríð, og þeir
vita gjörla hvernig kjarnorku-
stríð verður. Engin þjóð, sem
skilur kjarnorkustríð, æskir sér
annars en friðar.
Kjarnorkustyrjöld mundi ná
hámarki i fullum sigri hins
illa yfir því góða. Hafðu þetla
hugfast. Menning margra þjóða
hefir liðið undir lok, vegna
þess að þær skildu ekki hvað
um var að vera, fyrr en allt
var um seinan. I dag eigum
við ekki í samkeþpni við aðrar
þjóðir. Mannkynið á í sam-
keppni við sjálft sig. Vegna
þess að við vildum elcki skilja
það, sem lá í augum uppi,
leyfði mannkynið nazismanum
að leggja Evrópu í rústir. Ef
við nú, eins og áður, þrjósk-
umst við að skilja það, sem
liggur í augum uppi, verður
það ekki Evrópu, heldur allur
heimurinn, sem mun liggja í
rústum.
Það, sem við vildum ekki
læra af Iiitler, verðum við að
læra af Hiroshima!
SAGA ÚR SAMTÍÐINNI.
Framh. af bls. 9.
tvær nunnur og prestur. Eulalie féll
í öngvit á gólfið. Nunnurnar lyftu
henni upp og báru liana varlega
á burt.
Drottinn minn, hvílík endalok!
hrópaði ég.
— Þetta eru ekki endalokin. Dag-
inn eftir skaut hertoginn af San
Durato sig. Veslings maðurinn
hafði orðið ástfanginn af henni
sjálfur!
Mordaunt fleygði vindiingsstúfn-
um í eldinn. Hann stóð upp og
greip hattinn sinn.
— Það hefði vet getað orðið eitt
sjálfsmorð enn, sagði hann stutt.
— Góða nótt!
Hárskeri
einn í Portland i Bandaríkjunum
hefir tekið upp nýja aðferð við
klippingar. Hann lætur rafmagns-
straum fara um hár þess sem klippa
á, og rísa þá hárin á höfði hans.
Það kvað vera auðveldara að klippa
liárið þegar það stendur út eins
og hurst, og miklu fljótlegra líka.
Huer fann:
REIÐHJÓLIÐ ?
f fornöld voru til tæki, sem svip-
aði talsvert til reiðhjólanna nú á
dögum, en þó er heiðurinn af upp-
götvun reiðhjólanna venjulega gef-
in Þjóðverjanum Karl von Drais,
fríherra. Á Wienarfundinum 1815
sýndi hann nýtsárlegt farartæki á
tveimur hjólum, sem liann hafði
búið til. Það var einskonar „hlaupa-
hjól“. Hjólunum var komið fyrir
líkt og á reiðhjólum nútimans, not-
andinn sat á sæti milli hjólana,
sem ekki var hærra en svo, að hann
náði til jarðar með fótunum. Til
þess að komast á ferð varð „hjól-
reiðamaðurinn" að hlaupa nokkurn
spöl með reiðhjólið; svo gat hann
lyft fótunum og látið renna um
stund, en lengi ef vegurinn var
niður í móti. Þetta farartæki var
í rauninni ekki annað en leikfang,
en vakti l)ó mikla alhygli, og um
nokkurt skeið var það tíska að
nota hlaupahjól. Annars fann Drais
annað farartæki, sem eftirlitsmenn
járnbrautarteina nota mikið, svo-
nefnda „draisin", fjórhjólaðan vagn
eða reiðhjól, sem ekið var á tein-
um með afli handa eða fóta. —
Árið 1850 var hlaupahjólið endur-
bætt mikið, er Moritz Fischer, setti
á það útbúnað til þess að stíga, það
áfram. í Ameríku kom upp svo-
nefnd „velocipede", reiðhjól með
afar stóru framhjóli, sem stigið
var áfram, og ofurlitlu afturhjóli,
og var setið yfir stóra hjólinu. En
illt þótti að silja þessa hesta og á
Norðurlöndum var nafni þeirra
breytt í „veltipétur". Mest varð fram-
för reiðhjólanna þegar írski dýra-
læknirinn Dunlop tók upp á þvi
að nota loftfyllta hringi úr gúnnníi.
Þá hófst sigurför reiðhjólsins um
alla þjóðvegi veraldar. Um síðustu
aldamótin fóru fyrstu mótorhjólin
að sjást á vegunum.
Hvernig hægt er
að láta LUX end-
ast sem best.
Þegar litlar birgð-
ir eru fyirliggj-
andi af Luxsápu,
vil jið þér vafa-
laust reyna að fiafa sem mest
not af hverjum pakka. Þessar
bendingar munu því koma yður
að gagni:
IMælið sóipumagnið með
gaumgæfni - ein barmafull
matskeið í einum lítra af vatni
mun gefa ágætt sápulöður.
2Mælið vatnið með ná-
kvæmni. Ef þér notið meira
vatn en þörf krefur þá verðið
þér auðvitað að nota þeim mun
meira Lux - það leiðir af sjátfu
sér.
3Skipuleggið þvoitadagana.
Frestið öllum aukaþvotti
og daglegu dundi þangað til
'aftur er hægt að fá nóg a.f Lux.
Geymið áhreina klæðnaðinn til
vikuloka og þvoið hann þá all-
an upp úr sama sápuvatninu —
fyrst undirfötin og tjósar blúss-
ur, þá ullarfötin og loks sokk-
ana.
LUX
Alveg óskaðlegt jafnvel fyrir
viðkvæmasta þvott.
X-LX 624-785
Indverji,
sem hafði reiðst og barið systur
sína, dæmdi sér sjálfur þá refsingu
að standa á höfði í tólf tíma. Hann
„afplánaði“ refsinguna án þess að
hljóta mein af.
Eftir heimsókn hjá konungi Breta — Danski majórinn, Anders Lassen,
sem féll í sókn fíreta á Norður-Ítalíu, var fijrir skömmu sæmdur
Viktoriukrossinum af Georg fíretakonungi. Á mgndinni hér að ofan
sjást foreldrar hinnar föllnu hetju Lassen, höfuðsmaður og kona hans.
Eru þau að koma úr heimsókn sinni i fíuckingham Palace, þar sem
konungurinn afhenti þeim heiðursmerki sonarins. Dóttir þeirra er með
þeim á mgndinni.