Fálkinn - 14.06.1946, Page 6
6
F Á L K I N N
- LITLA SAGAN -
B. A. B.
Vanmetni leikarinn
Af sjónarhóli sínum á stóra klett-
inum niðri viö víkina horfði Nata-
lia Drake á hólmann. Eftir klukku-
stundar bið sá hún stúlku skjótast
þar milli trjánna.
— Þá er þetta með öðrum orðum
satt. Hann liafði kvennmann hjá
sér þarna í hólmanum, sagði Natalía
í geðshræringu.
Hann var Rance Markham, frægi
leikarinn, sem hafði leigt sumarhús
Willys í Pitwood-hólmánum yfir
sumarið.
Fólk staðliæfði að hann héldi
ógurlegar svallveislur þar. Frú Emer
son hafði heyrt, að liann hefði ver-
ið giftur þrisvar sinnum. Og þegar
þriðja konan hans neitaði honum
um skilnað, þá fór liann bara frá
henni og fór að húa með annari.
Þessu síðasta gat Natalia ekki
fengið sig til að trúa. Rance Mark-
ham var augasteinninn liennar. Hvað
gerði það til j)ó að hann liefði ált
þrjár konur? Þær höfðu vitanlega
ekki skilið hann. Þetta var góður
og fínn maður, aðdáunarverður í
alla staði.
En nú hafði Natalía ineð eigin
augum séð kvenmann þarna úti í
hólmanum! Hún liafði ákafan hjart-
slátt. Hún liafði orðið fyrir sárurh
vonbrigðum, en hún var forvltin.
Það væri gaman að sjá livernig þessi
maður, sem liafði svo undravert
vald yfir kvenfólkinu, titi út í raun
og veru!
Og nú datt lienni allt í einu i
nokkuð í liug. Hún brölti ofan af
klettinum, hoppaði út i bátinn og
reri af stað út í Pitwood-hólma.
Rance Markman sat hálfdottandi
í hægindastól, þegar hann lieyrði
til stúlkunnar. Hann leit upp og sá
að hún var að stíga í land úr bátn-
um.
Halló, þér þarna! hrópaði liann
til hennar þegar hann sá hvar hún
stóð vandræðaleg og hafðist ekki að.
Góðan dag! sagði Natalía. - Eruð
þér herra Markham?
— Já, og liver eruð ])ér?
— Natalía Drake. Eg var hérna
úti á víkinni, en svo fór liann að
hvessa, svo að ég þorði ekki annað
en að lenda hérna lijá yður.
Rance renndi augunum út á sjó-
inn, sem var að lieita mátti spegil-
sléttur.
•— Eg skil, sagði liann. — En úr
þvi að þér eruð komin hingað á
annað borð þá getið þér víst komið
inn og fengið yður glas.
— Glas! hugsaði Natalía með sér
og tók öndina á lofti.
Orðrómurinn hafði þá engu log-
ið. Það Var augljóst. Hann var
drykkjumaður. En hún gat ekki
dregið sig í hlé. Enda lék henni
forvitni á að sjá kvenmanninn, sem
hann hafði hjá sér.
— T-takk, það væri ljómandi gott,
svaraði hún.
Rance Markham lét hana setiast í
þægilegan stól og rétti henni vind-
hngahylkið.
— Gerið þér svo vel. Eg skal koma
með glösin undir eins. Afsakið mig
eitt augnablik.
Hann fór. Hún horfði á vildling-
ana. Átti hún! Hún hafði aldrei
reykt. En lioiíum mundi finnast
liún heimalingsleg ef hún gerði það
ekki.
Hún andaði að sér teyg. Fékk
lióstakast og varð sótrauð í fram-
an. Þegar Rance kom inn með glös
á bakka.
— Eruð þér kvefuð? Gerið þér svo
vel, liérna er giasið.
Hún'tók annað glasið og fór að
velta því fyrir sér hvað liún ætti
að gera við innihaldið — hvernig
hún gæti komið því fyrir án þess
aðjhann sæi. Hún sá að þessi drykk-
ur var hvítur. Það voru áfir í glas-
inu. Hún starði á húsbóndann, en
hann svolgraði stórum úr sínu glasi.
— Ekkert er jafn yndislegt og
áfir á kvöldin, finnst yður það
ekki? Meðal annara orða: eigið þér
heima þarna fyrir liandan víkina?
— Já, í hvíta liúsinu.
— Þér verðið að hitta liana dóttur
mína. Eg er viss um, að ykkur get-
ur komið vel saman. Nú skal ég kalla
á liana undir eins. Patty! — Patty.
Komdu.
Stúlka — auðvitað sú sama, sem
Natalía liafði séð yfir voginn —
kom inn. Hú var einstaklega lag-
leg og brosti lilýlega þegar Jmn
sá Nataliu.
— Patty, þetta er Natalía Drake.
Hún á heima fyrir handan voginn.
Þið verðið endilega að kynnast.
— Góðan daginn, Natalía! sagði
Patty. Við pabbi erum að hugsa
um að hafa heimboð til þess að
kynnast fólkinu hérna í nágrenn-
inu. Viltu ekki koma?
— Hvort ég vil. En livað það
verður gaman. Þakka yður innilega
fyrir.
Augu Natalíu ljómuðu af gleði
að liún skyldi vera boðin í veislu
]iegar hún reri heim. Að hugsa sér
hjá reglulegum leikara. Enda þótt
hann væri vitanlega eins og rosk-
inn frændi. Hún hló að sjálfri sér,
þegar liún hugsaði til þess að hún
hafði látið sig dreyma um þennan
mann í mörg ár. Hún hafði ekki
haft hugmynd um, að hann var svo
gamall, að hann gæti vel verið fað-
ir hennar.
í UNGVERJALANDI hafa fundist
við uppgröft, leikföng, sem eru yfir
3000 ára gömul. Þetta er frá Brons-
öldinni og mesta hagleikssmiði. Þar
leikliús, og bjalla, sem var eins og
voru til dæmis eldhúsáhöld í brúðu-
fugl í laginu, með haus, vængi, stél
og fætur, einstaklega fallega unnið.
Manni kemur það eiginlega ein-
kennilega fyrir sjónir, að fólk liafi
liugsað um leikföng handa börnum
sínum í þá daga, en svona er það
— ekkert er nýtt undir sólinni.
Samtíð
og saga
Nýlega er komið út 3. hefti af
safni því, sem gefið er út af ísa-
foldarprentsmiðju undir nafninu
Samtið og saga, en það eru ýmiss
erindi, sem flutt eru í Háskóla Is-
lands eða á vegum hans.
Erindasafn þetta er hið merkasta.
í tveimur fyrri lieftunum liafa birst
mörg skemmtileg og fróðleg erindi
eftir flesta af prófessorunum við
háskólann og um margskonar efni,
enda hafa heftin selst upp á til-
tölulega skömmum tíma. Er það
mjög bagalegt, að ekki skuli hafa
vcrið stærra upplag af lieftunum,
en hinsvegar nokklir afsökun, að
það hefir viljað við brenna, að
bækur sem meira voru ætlaðar til
fróðleiks en skemmtunar, hafa ver-
ið heldur þungar í sölu allt fram
á síðustu ár.
Þetta 3. liefti er stærðar bók,
nærri 300 blaðsíður, og flytur marg-
ar merkar ritgerðir. Fyrsta og önnur
greinin er eftir Sigurð Guðmundsson
skólameistara á Akureyri. Ritar hann
um Læknakviðnv Bjarna Thoraven-
sen og um Líffan og Ijóöagerff Bjarna
Thorarensen á Möðruvöllum. Fer þar
saman, að efnið er íslendingum hug-
leikið og vel er með það farið af
Sigurði. Þykir mörgum miður, live
Sigurður skólameistari lætur lítið
frá sér fara, því að það er alkunn-
ugt, að liann skrifar bæði ágætt
mál og fer vel með efni. Ritgerðir
Sigurðar eru meginuppistaðan i
þessu hefti, töluvert á annað hundr-
að blaðsíður. Er í þeim mikinn fróð-
leik að finna og sérstaklega skemti-
legar aflestrar.
Um málfrelsi og meiðyrði ritar
Gunnar Thoroddsen prófessor, en
um íslensku síldina Árni Friðriks-
son. Er styrjöldin stríð milli hag-
kerfa spyr Gylfi Þ. Gislason og
reynir að gera því efni skil, en
Magnús Jónsson skrifar um Hall-
grím Pétursson sálmaskáld. Alex-
ander Jóhannesson birtir þarna er-
indi um ísland í frönskum bók-
menntum og Guðmundur heitinn
Finnbogason landsbókavörður ritar
um tímann og eilifðina. En sú
ritgerðin, er ég tel tvímælalaust
merkasta í þessu hefti Samtíðar og
sögu, er eftir prófessor Jón Steffen-
sen, er hann nefnir „Uppruni ís-
Iendinga“. Dr. Jón Steffensen leiðir
í i-itgerð þessari rök að því, að ís-
lendingar muni ekki vera jafn skyld-
ir Norðmönnum og margir hafa
haldið fram. Telur hann að íslend-
ingar muni miklu fremur eiga ætt
sina að rekja til íra og Skota. —
Sannar hann þetta með mælingum
á hauskúpum íslendinga og annarra
þjóða og með rannsókn blóðflokk-
anna. Dr. Jón Steffensen segir m. á.:
Blóðflokkarnir benda ákveðið til
þess, að íslendingar séu skyldari
Skotum og Norður-írum en Norð-
mönnum“. Og: „Eg tel sanni nær,
að ályktun Fishers og Taylors beri
að snúa við og segja: Hjá Skotum
og írum kemur fram sá frumstofn,
Hvernig hægt er
að láta LUX end-
ast sem best.
Þegar litlar birgð-
ir era fyirliggj-
andi af Luxsápu,
viljið þér vafa-
laust reyua að hafa sem mest
uot af lwerjum pakka. Þessar
bendingar munu því koma yður
að gagni:
IMælið sápumagnið með
gaumgæfni - ein barmafull
matskeið í einum lítra af vatni
mun gefa áigætt sápulöður.
2Mælið vatnið með ná-
kvæmni. Ef þér notið meira
vatn en þörf krefur þá verðið
þér auðvitað að nota þeim mun
meira Lux - það leiðir af sjálfu
sér.
3Skipuleggið þvottadagana.
Frestið öllum aukaþvotti
og daglegu dundi þangað lil
aftur er liægt að fái nóg af Lux.
Geymið óhreina ldæðnaðinn til
vikuloka og þvoið hann þá all-
ati upp úr sama sápuvatninu —
fyrst undirfötin og Ijósar blúss-
ur, þá ullarfötin og loks sokk-
ana.
LUX
Alveg óskaðlegt jafnvel fyrir
viðkvæmasta þvott.
X-LX 624-786
er íslendingar eru komnir af“. Bú-
asl má við þvi, að ekki verði allir
á sömu skoðun og dr. Jón Steffensen
um þetta mál, en erfitt tel ég muni
verða að hrekja allar sannanir hans
um þetta.
NELSON. — Breska herskipiff Lord
Nelson, eitt af öflugustu skipum
breska ftotans er komiö heim til
Portsmouth, jxir sem sjóliffarnir
fengu hjartanlegar móttökur eins
og myndin sýnir. Lord Nelson var
viffriðið innrásirnar á Sikiley og
í Normandie, en fór siðan til Kyrra-
hafsins. Tvisvar i striffinu hafa upp-
gjafasamningar verið undirritaðir
um borff i jiessu skipi, viff Malta
og Penang.