Fálkinn - 22.11.1946, Síða 3
F Á L K I N N
3
Stórbruni
í Reykjavík
Að morgni þess 17. nóvember
varð í Reykjavík einhver mesti
bruni, sem orðið hefir i bænum.
Starf slökkviliðsins var mjög erfitt,
og má það teljast hin mesta mildi,
að ekki hlaust fjörtjón af eldsvoð-
anum. Þrjú liús brunnu til kaldra
kola, en sex skemmdust meira eða
minna auk þess, sem mörg önnur
voru í sífelldri hættu.
Eldurinn kom upp nokkru fyrir
kl. 6 um morguninn, og magnaðist
hann svo fljótt að innan skamms
var húsið nr. 4 við Amtmannsstíg
alelda. Slapp sumt fólkið nauðuglega
út og fáklætt mjög. Á áttunda tím-
anum féll húsið, en þá bafði eldur-
inn borist i næstu hús, og húsið
nr. 4A við Amtmannsstíg ásamt
litlu íbúðarhúsi sunnan við það
brunnu bæði til kaldra kola, án þess
að nokkru yrði bjargað af innbúi.
Einnig' komst eldurinn i Amtmanns-
stíg 2, sem einnig brann nokkuð,
en þó furðanlega lítið eftir þvi er
ætla hefði mátt. Síðan barst eldur-
inn yfir í steinhúsið Amtmannsstíg
6 og' brann efri liæð þess nokkuð
að innan. Einnig kviknaði í tinib-
urhúsinu nr. 12 við Þingholtsstræti
og brann efri hæðin öll að innan.
í þessum liúsum urðu miklar
skemmdir af vatni.
Suðurhliðar húsanna nr.- 5 og 5A
við Amtmannsstíg sviðnuðu mjög’.
Hús þessi standa norðan við Amt-
mannsstiginn og mun vindurinn
mjög liafa ráðið um það, að þau
tókst að verja. Eldurinn læsti sig í
trén við Þinglioltsstræti 14, en hús-
inu tókst þó að bjarga og ennfrem-
ur húsunum nr. 16 og 18 með því
að dæla vatni á þau.
Við endann á sundi, er gengur
suður úr Amtmannsstígnum, er olíu-
port Hins íslenska steinoliuhlutafé-
lags. Ekki er geymd nein olía í því
Iengur, en aftur á móti voru þar
ýms áhöld, og auk þess er jarðveg-
urinn mjög vættur af olíu. Portið
tökst að verja gegn eldinum, þó að
liælt væri það komið. Sunnan við
portið kviknaði i húsinu nr. 11 við
Bókhlöðustíg og brann efri hæð
])ess mikið að innan. ,Þetta hús
stendur allfjarri hinum húsunum
er brunnu, en neistaflugið hefir
kveilct í því.
Svo barst eldurinn einnig í sam-
komuliús K. F. U. M. Brann eldri
hlutinn af því mikið, og féll þakið
niður. Nýrri hluti liússins, sem er
sleinsteyptur, skemmdist ekki af
eldi, en vatnið gerði þar ýms
spjöll, ^cins og i mörgum húsum
kringum brunastaðinn.
Slökkviliðið var alls um 6 klukku
stundir að raða niðurlögum eldsins,
en dvaldist á brunastaðnum miklu
lengur. Slökkviliðið á flugvellinum
veitti mikla aðstoð á ýmsan hátt.
Ljósm.: Fálkinn.
Danssýning Sigr. Ármann
Siðastliðið mánudagskvöld var
gestum boðið að horfa á danssýn-
ingu hjá hinni ungu en mjög efni-
legu dansmær, Sigríði Ármann.
Sýningin var haldin í Sjálfstæðis-
húsinu og kynnti Brynjólfur Jó-
hanneson, leikari, ungfrúna. Hún
hefir dvalið við nám í listdansi um
2% árs skeið í Bandaríkjunum, og
naut liún þar kennslu lijá einum
fremsta danskennara vestanhafs.
Skýrði Brynjólfur lildrögin, er urðu
til þess, að ungfrú Siðriður hvarf
til náms þessa vestra, og minntist
þess sérstaklega, að hún hefði þeg-
ar á barnsaldri vakið athygli á sér
fyrir mikla liæfilcika í þessum efn-
um.
Hrifning áhorfenda var mjög
mikil, enda á ungfrú Sigríður Ár-
mann ekki annað skilið en óspart
lof, svo rík er liún af listrænni
kunnáttu og smekk auk þess sem
hún er frábær „akrobat“ og list-
dansari. Sérstaka lirifningu vöktu
dansarnir „Dance Brilliante", akro- Hann er saminn cftir hana sjálfa varð hún að endurtalca. Fjöldi blóm
batiskur dans og „dans skugga". við lag eftir Sinding. Þennan dans vanda bárust ungfrúnni.
♦
o
o •
<>
I Brunatryggið strax i dag
ii HÍ“ .ondon Guarantee frá 1869
Hringið í síma 6850 og vér munum senda tryggingarmann til yðar
31 um hæl, sé þess óskað.
33 Menn utan af landi, sem hafa hug á að tryggja hjá oss, sími eða skrifi
3> • oss nafn og heimilsfang sitt, munum vér þá senda viðkomandi trygg-
<• ingarbeiðni til útfyllingar ásamt nauðsynlegum upplýsingum.
| LONDON GUARANTEE AND ACCIDENT COMPANY
33 Aðalumboð á Islandi:
33 Erl. Blandon & Co., h.f.
< ► Hamarshúsinu.
<► Umboðsmaður á Akureyri:
<► KARL JÓNASSON, prentsmiðjustjóri.
<>