Fálkinn - 31.01.1947, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 6g 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSprenf
SKRADDARAÞANKAR
Einu sinni ferðaðist hér um sveit-
irnar Svíi nokkur, sem hét Ander-
son. Hann seldi Adventistarit fyrir
David Östlund og rakti flesta bæi,
en árangurinn varð líka sá, að um
8000 eintök seldust af einni bók-
inni, sem hann hafði meðferðis.
Þetta var í þá daga, er miklu minna
var keypt af bókum en nú. Það voru
ekki nema 1-2 menn í lireppi, sem
keyptu bækur. íslendingasagnaútgáfa
Sigurðar Kristjánssonar var þá á
döfinni og einn ríkasti bóndinn í
lireppi einum sunnanlands hafði á
orði að hann yrði að hætta að kaupa
sögurnar, því að þær væru að setja
sig á hausinn. Þetta var þegar Njála
kom. Hún var nefnilega dýrust —
kostaði krónu og sextíu aura.
Umferðabóksalarnir eru horfnir.
En liinir athafnamiklu bókaútgef-
endur í Reykjavík og Akureyri gætu
tekið það mál upp að nýju. Þeir
gætu gert iit bifreið hlaðna úrvali
þeirra bóka, sem þeir gefa út, ann-
aðlivort hver fyrir sig eða Bóksala-
félagið — og farið um aliar sveitir
og haft ákveðna viðdvöl á liverjum
stað, eftir áætlun, sem auglýst hefir
verið fyrirfram. Og þeir gætu gert
út bókasýningar á samlcomur, sem
haldnar eru og til skólanna er þeir
taka til starfa á haustin. Þeir gætu
fengið kennara í lið með sér og
þannig fengið umboðsmenn í hverri
sveit, úr því að sveitakaupmennirn-
ir hafa verið reyndir að þvi að
setja grænsápukassa ofan á bóka-
ldaðann. Það er viðurkennd reynsla
að fólk kaupir ekki þá vöru, sem
sett er undir mæliker, svo framar-
lega sem liún er ekki lífsnauðsynleg.
Og það eru mörg ónotuð tækifæri til
að halda bókum að fólki.
Sumir útgefendur amast við sveita-
bókasöfnum og telja að þau eyði-
leggi bókamarkaðinn. Þelta er tæp-
iega rétt, að því er góðar bækur
snertir. Því að bókasöfnin kynna
bækurnar og gera almenningi kleift
að velja úr það, sem það vill eiga.
Á þann hátt ættu bókasöfnin að
örva sölu góðra og nytsamra bóka,
en ef til vill mundu þau draga úr
sölu á ruslinu, og er j/að ekki nema
gott. Á þann hátt rénar freistingin
til að gefa út það, sem lélegt er.
Dýru útgáfurnar, sem tíðkast svo
mjög nú, eru ekki nema stundar-
fyrirbrigði. 1 'framti,ðinni verður
áherslan lögð á að gefa út ódýrar
bækur, en alltaf hægt að prenta
nokkrar á betra pappír.
I. S. í. 35 ÁRA
Denedikt G. Waage, forseti í. S. í.
Hefir setið í stjórn í. S. í. í 32 ár.
Um þessar mundir minnast ein
stærstu félagssamtök liér á landi
— í. S. t. — 35 ára gfmælis síns.
Það var 28. jan. 1912, að 40 áhuga-
samir íþróttamenn komu saman í
Bárubúð við Vonarstræti til þess
að stofna til samtaka með íþrótta-
og ungmennafélögum um land allt.
Aðilar að stofnuninni voru 12 fé-
lög með um 000 meðlimum.
Aðalhvatamaður stofnunar sam-
bandsins var Sigurjón Pétursson
frá Álafossi, sem alla tið hefir gef-
ið sig mjög að íþróttamálum, eins
og mönnum er kunnugt. Axel V.
Tuiinius, fyrrv. sýskimaður, var
kjörinn forseti sambandsins, og því
embætti gegndi hann til ársins 1926,
en þá var Benedikt G. Waage kjör-
inn, og hefir hann síðan verið for-
Gustaf Adolf prins, sonarsonur
Svíakonungs, fæddur 22. apríl 1906.
Giftist árið 1932 prinsessu af Sach-
sen-Koburg-Gotha. Þau hjónin eign-
uðust 5 börn. Gustaf var mikill
íþróttamaður og vel að sér gerr i
hvívetna. Hann var á leið heim til
sin frá Hollandi er slysið vildi til.
seti 1. S. í., eða alls 21 ár. í stjórn-
inni liefir hann setið í 32 ár.
Verkefni sambandsins á liðnum
árum hafa verið mörg og margs kon-
ar. Það liefir gengist fyrir kennslu
í öllum helstu íþróttagreinum, sem
stundaðar eru, og efnt til fjöl-
þættra keppna. Það hefir gefið út
alls konar leikreglur, og er stærsti
hluthafi í íþróttablaðinu. Einnig
liefir sambandið gengist fyrir utan-
ferðum iþróttamanna á erlend mót,
svo sem Olympíuleikana í Stokk-
hólmi 1912 og Berlin 1936, og svo
Evrópumeistaramótið í Osló í sum-
ar. Knattspyrnu-, fimleika- og glírnu-
flokkar hafa líka oft farið til ná-
grannalandanna til sýninga og
keppni. Sömuleiðis liefir í. S. í.
fengið liingað erlenda íþróttaflokka
til að spreyta sig á löndunum.
Knattspyrnumenn hafa komið frá
Bretlandi, Þýskalandi, Danmörku
og Noregi. Fimleikaflokkar, sund-
flokkar og frjálsíþróttamenn hafa
líka komið liingað.
Ekki má gleyma þvi livern þáit
íþróttasambandið liefir átt í því,
að 17. júni hefir orðið þjóðhátíð-
ardagur íslendinga. Skrúðganga í-
þróttamanna og íþróttakeppni þann
dag er fyrir löngu orðin alþýðleg-
asta og vinsælasta atriðið í liátíða-
höldunum, og dregur að sér þús-
undir manna. .
í. S. í hefir mörg vegleg verk-
efni með höndum nú. Fyrst má
þá nefna undirbúning að þátt-
töku íslendinga í Olympíuieikjun-
um, sem fram eiga að fara i Lond-
on árið 1948. Einnig er ráðgerð
landskeppni við Norðmenn í frjáls-
um íþróttum og knattspyrnu, þó
Þau gerast nú svo tíð hin
mildu flugslys víða um heim,
og fjöldi manns hefir nú á
stuttum tíma týnt lífinu vegna
þeirra. Einna átakanlegast
þeirra allra liefir flugslysiö við
Kastrup þó verið. Meðal þeirra
22, sem létu lífið, voru Gustaf
Adolf, elsti sonur Gustafs Svía-
prins, Grace Moore, óperusöng-
kona og danska lcvikmynda-
leikkonan Gerda Neumann.
Á sama sólarliring féll flugvél til
jarðar í Vestur-Kina og 19 manns
fórust. Einnig berast fréttir frá New
Mexico í Bandarikjunum um svip-
aðar slysfarir.
Axel Tulinius,
fyrsti fors-eti í. S. í.
að endaleg úrslit þeirra máli liggi
eigi fyrir enn.
Húsnæðismál sambandsins eru
eitt erfiðasta viðfangsefnið, eins og
hjá flestum félagssamtökum.
Takmarkið er að koma upp full-
komnu íþróttalieimili.
Stjórn í. S. í. skipa nú: Benedikt
G. Waage, forseti, Þorgeir Svein-
bjarnarson, varaforseti, Kristján L.
Gestsson, gjaldkeri, Frímann Helga-
son, ritari, Erlingur Pálsson, fund-
arritari.
Meðstjórnendur úr landsfjórðung-
um eru þessir menn: Jóhannes
Stefánsson, Neskaupstað fyrir Aust-
firðingafjórðung, Sigurður Greips-
son, Haukadal fyrir Sunnlendinga-
fjóðung, Þorgils Guðmundsson,
Reykliolti fyrir Vestfirðingafjórðung
og Hermann Stefánsson, Akureyri
fyrir Norðlendingafjórðung.
Framkvæmdastjóri sambandsins
er Kjartan Bergmann.
Fálkinn óskar í. S. t. góðs gengis
í framtiðinni.
Grace Moore óperusöngkona. Hún
var á leið til Svíþjóðar, þar sem
hún ætlaði að ha'fda söngskemmt-
anir. Grace var 46 ára gömul og
hefir aflað, sér mikillar frægðar
fyrir leik sinn í kvikmyndum og
sem söngkona. Maður liennar var
spánski leikarinn Valentine Pereira,
og hefir hann úkveðið að Grace
verði jarðsungin i Bandaríkjunum.
Flugslysið við Kastrup.