Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1947, Qupperneq 7

Fálkinn - 31.01.1947, Qupperneq 7
FÁLKINN 7 Vaxmynd af morðingja. - Vaxmynda- safn Madame Tussaud l London hcf- ir œtíS lagt áherslu á að fylgjast vel með þpi, sem er að gerast, svo að þar séu til sýnis vaxmyndir af nýj- ustu viðburðum. — Aðeins örfáum klukkustundum eftir aftöku morð- ingjans Neville Heath, var komin vaxmynd af honum á safnið, og sést hún hér. NIEMÖLLER OG FRÚ — Nú er hinn frægi klerkur og kafbáts- foringi, séra Niemöller, á ferð um Bandaríkin, þar sem hann m. a. tekur þátt í kirkjuráðstefnum. — Myndin er tekin við hljóðnemann á.útvarpsstöð í Neiv York. V Hagnýt breyting. — I Kolding i Danmörku hefir risið upp nýr iðn- aður eftir stríð. Þýsku hersveitirn- ar skildu eftir ósköpin öll af hjálm- um á víð og dreif um Danmörku, og þeím hefir nú verið safnað sam- an í Iiolding, til þess að hœ(ft sé að breyta þ.eim í nauðsynjagögn. Lítið þið bara á myndina, og athugið, hvort áhaldið þið teljið þarflegral Amerikumenn eru snillingar í aug- lýsingaslarfsemi, og nota þá hœfi- leika sína til flests, sem hægt er. Á trúmálahátíð, sem haldin var í New York, fengu einhverjir þá hug- mynd að lýsa gluggana í vissum hlutum skýjakljúfs eins, þannig að tjósin mynduðu kross, sem sæist yfir mikinn hluta borgarinnar. Á leið í háskólann. — Mannfall Þjóð- verja í stríðinu kom mjög hart nið- ur á stúdentum. Og fjöldi þeirra, sem heim komu, voru blindir eða fatlaðir á annan hátt. Meira en 2.000 stúdentar frá Marburg-háskólanum gegndu herþjónustu í 4 - 6 ár. Þriðj- ungur þeirra kom heim sem örkumla menn og fjöldi hafði fallið. Myndin sýnir nokkra örkumla stúdenta á leið til háskólans i Marburg. Vilja komast hcim. — Á undanförn- um mánuðum hafa hávœrar kröfur komið frá hermönnum Bandamanna sem hersetja hin ýmsu hernumdu lönd í austri og vestri, þar sem þeir segjast vilja komast heim hið fyrsta. Myndin hér að ofan er frá kröfugöngu ameriskra hcrmanna i Manila. Á skiltunum stendur meðal annars: ,,Japanirnir eru sendir heim en hvernig er það með okkur?“ — EUROPA. — Fyrir nokkru rakst hið gamla þýska risaskip „Eur- opa“, á flakið af „París“, sem liggur í höfninni í Le Havre. Af- leiðing árekstursins varð sú, að „Europa“ sökk. Myndin sýnir flakið af „París“ að ofan til vinstri, en „Europe“ er á miðri myndinni sokkin, þótt mikið standi enn upp úr af henni. — Áætlað er að viðgerð skipsins muni standa yfir í eitt ár, en þá á„ Europa“ sem nú heitir reyndar „Liberté" að hefja áætlunar- ferðir yfir Atlantshafið, eins og áður var, þegar það var eign Þjóðverja og vann bláa bandið. í Vínarborg hafa bresku yfirvöldin opnað lesstofu, þar sem ibúarnir geta lesið ensk dagblöð og viku- blöð. — Hér sjást nokkrir Vinarbú- ar skoða myndir frá daglega lífinu i Englandi, sem festar hafa verið i glugga lesstofunnar.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.