Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1947, Blaðsíða 2

Fálkinn - 13.06.1947, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N Flugslysið í Héðinisfirði Frá útförinni á Aknreyri. Ljósm.: Edv. Signrgeirsson. ÍeÍÁ Torfiioogor Á nppdrœttinum sést Héðinsfjörðnr og Hestfjall. Slysstaðnrinn er við Torfnvoga. Fjöllin talið frá vinstri: Nesmípur fyrir ofan Siglnnes, Tlestfjall og Ilvannadalsskriður. Likin flutl upp frá bryggju á Akureyri. Þau eru sveipuð fánum. Ljósm.: Helgi Thórvaldsen Nú cr liðinn hálfur mánuður, síð- an hið sviplega flugslys varð í Héð- insfirði. Douglas-fiugvél frá Fiugfélagi íslands, sem var á ícið frá Reykja- vík til Akureyrar með 21 farjiega auk 4 manna áhafnar, rakst á Hest- fjall við Héðinsfjörð vestanverðan, með þeim afleiðingum, að allir í flugvélinni biðu bana. Þetta er eitt hið hörmulegasta slys, sem orðið hefir liér á landi, og þjóðin öll varð harmi iostin, er tíðindi þessi spurð- ust. — Siðast sást til vélarinnar yfir Siglunesi, en þaöan er örskammt yfir í Héðinsfjörð, og líkur benda til, að flugvélin hafi verið snúin við á suðurleið vegna vcðurtálm- ana. Skyggni iiefir verið vont, og vélin rekist á hamrabelti i Hest- fjalli. Slysið liefir borið að allt i einu. — Þetta skeði um miðjan dag fimmtudaginn 29 maí. Að morgni næsta dags, undir dagmál, fannst hrúgald vélarinnar og' líkin - 25 að töiu. Þau voru flutt af slysstaðnum með vélbátnum „Agli“ til Ólafsfjarð- ar. Þar voru þau flutt yfir í „Atla“ frá Akureyri. Áður en „Atli“ liélt með líkin til Akureyrar, fór fram stutt kveðjuathöfn í Ólafsfirði. Sókn- arpresturinn mælti nokkur orð, og karlakór söng sálmalög. Þegar „Atli“ lagði að bryggju á Akureyri um kvöldið, hafði þorri Akureyringa safnast niður á bryggju Var þar fleira fólk saman komið en dæmi eru til á Akureyri. Lúðra- sveit Akureyrar lék sorgarlög', séra Pétur Sigurgeirsson flutti ræðu við skipshlið og Karlakórinn Geysir söng sálmalög. Síðan voru líkin flutt í kirkju. Þennan dag vorií fánar í hálfa stöng um gervallt landið. Gleðimót öll féllu niður, þjóðin syrgði með ástvinunum. Því að ]>að er stórt skarð, sem höggvið er i lítinn hóp, þegar 25 íslendingar bíða bana á sama augnabliki. Fjöldi samúðarkveðja barst hvað- anæva að. Fimmtudaginn 5. júní fór i'ram minningaratliöfn í Akureyrarkirkju um þau, sem flutt voru hingað suð- ur til greftrunar. Séra Pétur Sig- urgeirsson flutti bæn. Björgvin Guð- mundsson og Theo Andersen léku sorgarlög, og blandaður kór söng undir stjórn Björgvins Guðmunds- sonar. Er kisturnar voru bornar úr kirkju, lék Björgvin Guðmundsson „Dauði Ásu“ eftir Grieg. Siðan voru kisturnar fluttar um borð í „Ægi“. Karlakórinn Gcysir söng „Hærra minn Guð til þín“, er skipið lét frá bryggju. Lúðrasveit Akureyrar lék sorgarlög. Föstudaginn 0. júní voru 11 hinna látnu jarðsett á Akureyri. Athöfnin hófst kl. 1. e. h. Þeir séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum og séra Pétur Sigurgeirsson fluttu ræður i kirkju, en séra .Benjamín Kristjáns- son á Laugalandi flutti ræðu og bæn í kirkjugarði. Kirkjukórinn söng og Theo Andersen lék á fiðlu með undirleik Björgvins Guðmunds- sonar. Skátar stóðu heiðursvörð. - Þessi voru jarðsett á Aluireyri;

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.