Fálkinn - 16.01.1948, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/
SKRADDARAÞANKAR
Á síðasta ]jingi kom fram tillaga
um styrkveitingar til samkomuhúsa
í sveitum og kauptúnum. Þetta var
einn þátturinn í viðleitninni á þvi að
halda í unga fólkið í sveitunum
og skapa tilbreylingu í sveitalífinu,
og er ekki að efa að hann g'etur
komið að gagni ef rétt er um búið.
En það liefir loðað við flest sam-
komuhús til sveita fram að þessu
að þau eru óvistleg og oft illa unt
þau gengið. Fátæktinni er að jafn-
aði kennt um hið fyrra, en um hið
siðara er engu hægt að kenna öðru
en meðfæddu hirðuleysi og trassa-
skap. Það er blöskranlegt að sjá
sum af þessum svokölluðu sam-
komuhúsum, eitt stendur fast við
þjóðveginn hér austur í sýslu og
var í hittiðfyrra umgirt af flösku-
brotum, pappírsrusli og blikkdósum
til þess að vitna um menningarstig
félagsins, sem að því stóð. Og víðar
mun vera pottur brotinn.
Styrkurinn til samkomuhúsa er
þarfur, en hann þarf að vera skil-
málum bundinn. Rikið má ekki
styrkja byggingu samkomuhúsa
nema að liafa tryggingu fyrir því
að þau séu til sóma og sé vel hald-
ið við og vel um þau gengið. Og
þetta er hægt með því að skipa
hverju slíku eftirlitsmann, sem
treysta má.
Allar sveitir þurfa sitl þinghús
og í flestum sveitum mun vera starf-
andi ungmenna- eða íþróttafélag.
Þessir aðilar vinna víðast að því i
sameiningu að koma upp samkomu-
luisi fyrir sveitina og er það ekki
nema sjálfsögð krafa, sem á þeim
hvílir. En ríkisstyrkur gæti orðið
til þess að gera það sem á vant-
ar, að húsin séu vistleg. Það verða
þau að vera til þess að hafa nokkuð
uppeldisgildi fyrir þá," sem þangað
koma. Og þau þurfa að sameina
það að vera samkomuhús og íþrótta-
hús, því að íþróttirnar eru það,
sem cinkum geta haldið uppi félags-
lífi i sveitunum. Og það er engin
óprýði á samkomuhúsi að hafa
rimlagarð með öðrum langveggnum
þó að rúmgóður- pallur til leiksýn-
inga sé fyrir enda. En baklausu
bekkirnir verða sem fyrst að hverfa
úr samkomuhúsunum og án máln-
ingar mega samkomusalir ekki vera,
eins og víða tíðkast. —- Undir eins
og vistlegir samkomustaðir rísa upp
i sveitunum, verður félagslif þar með
allt öðru móti en nú er.
Sigurður Guðmundsson, skólameist íri og kona huns, frú Halldóra Ólafsdóttir, voru heiðursgestir á lands-
móti stúdentu i sumar. Voru þau hjónin þá sœmd heiðursmerkjum stúdenta. Skólameistara var færð stú-
dentsluifa með gullstjörnu og frú Halldóru brjóstnæla með gullstjörnu. ■—■ Á mgndinni sést Lúðvig Guð-
mundsson, skólastjóri, afhenda hjónunum heiðursmerkin í hátíðasal Háskólans. Við ræðupúlt sést dr.
Steingrimur J. Þorsteinsson, dácent.
Nkólamei§íara§kipti
við Honntaskólanii á Akuroyri
Nú um áramótin lét Sigurður
Guðmundson, skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri, af störfum eftir
gagnmerka þjónustu í þágu íslenskra
skólamála. Mun þess lengi verða
minnst, ■ hversu góður stjórnandi
Sigurður var í starfi sinu og hvc
lagið honum var að skapa hollan
skólabrag. Fyrir kunnáttu sína í
íslenskum fræðurn og meðferð á
íslensku máli er hann fyrir löngu
þjóðkunnur.
Sigurður er fæddur 3. sept. 1878
að Æsustöðum í Langadal. Stúdent
varð hann liðlega tvítugur, og
meistaraprófi í íslenskum fræöum
lauk hann við Hafnarháskóla 1910.
Hann var kcnnari við Menntaskól-
ann í Reykjavík 1911 -’20 og árið
1912 hóf hann einnig kennslustörf
við Kennaraskólann. Árið 1921 varð
hann skólameistari Gagnfræða-
skólans á Akureyri, sem nokkrum
árum síðar varð menntaskóli. Em-
bætti því hefir hann gegnt siðan.
Forseti íslands sæmdi Sigurð
skólameistara riddarakróssi Fálka-
orðunnar um áramótin.
lvona Sigurðar er Halldóra Ól-
afsdóttir, dóltir Ólafs Finnssonar
fyrrum prests í Kálfholti. Eiga þau
fimm börn á lifi.
Við skólameistaraembættinu tek-
ur Þórarinn Björnsson, sem liefir
verið kennari við skólann frá 1.
jan. 1933. Þórarinn er fæddur 19.
des. 1905 að Víkingavatni í Keldu-
hverfi, sonur Björns Þórarinssonar
og Guðrúnar Hallgrímsdóttur. Stú-
dent varð liann 1927, og’ síðan sigldi
hann til náms í frönsku, latínu og
uppeldisfræði við Sorbonneháskól-
ann í París. Lauk hann prófi í
greinum þessum við góðan orðstír
(gráða: licensier és letters) og hvarf
svo til kennarastarfa við Mennta-
skólann á Akureyri. Hefir Þórar-
inn ætið lagt mikla alúð við störf
sín, og hefir liann, eins og Sigurð-
ur fráfarandi skólameistari unnið
sér óskipta virðingu og hlýhug nem-
enda sinna.
Vill Fálkinn árna hinum nýja
skólameistara allra lieilla í starfi
sínu.
Nýtt bandalag í Austur-Evrópu. — Nýlega fór Tito marskálk-
ur hinn sterki maðar Jugoslavíu, í heimsókn til Ungverjalands
til þess að undirrita vináttusamning milli ríkjanna. Myndin
er tekin við það tækifæri. Tito cr að rita nafn sitt á plaggið.
Við hlið hans stendur Szanto, sendiherra Ungverja í Júgó-
slavíu og lengst tit vinstri Tildy, forseti Ungverjalands.
% Alit með ísleiiskiim skipum! *