Fálkinn - 16.01.1948, Page 16
16
FÁLKINN
l
TILKYNNING
FRÁ SKATTSTOFU REYKJAVÍKUR
Með tilvísun til skattalaganna nr. 6/1935, laga um eignakönnun
nr. 67/1947 og reglugerðar um eignakönnun frá 26 nóv. 1947 er
sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi atriðum varðandi skatt-
framtal 1948 og eignakönnunarframtal í Reykjavík.
1. Atvinnurekendur og stofnanir í Reykjavík og aðrir, sem hafa
haft launað starfsfólk á árinu, eru áminntir um að skila launaupp-
gjöfum til Skattstofunnar í síðasta lagi þ. 10. þ. m., ella verður
dagsektum beitt. Launaskýrslum skal skilað í tvíriti. Komi það í
ljós að launauppgjöf er að einhverju leyti ábótavant, s. s. óupp-
gefinn hluti af launagreiðslum, hlunnindi vantalin, nöfn eða heimili
launþega skakkt tilfærð, eða heimilisfang vantar, telst það til ó-
fullnægjandi framtals, og viðurlögum beitt samkvæmt því. Við
launauppgjöf til giftra kvenna skal nafn eiginmanns tilgreint.
Sérstaklega er því beint til allra þeirra, sem fengið hafa bygg-
ingarleyfi og því verið sendar launaskýrslur, að standa skil á þeim
til Skattstofunnar, enda þótt þeir hafi ekki byggt, ella mega þeir
búast við áætluðum sköttum.
Á það skal bent að orlofsfé telst að fullu til tekna. Um launaupp-
gjöf sjómanna athugist, að áhættuþóknun er öll skattskyld, en fæði
sjómanna, scm dveljast fjarri heimili sínu, telst eigi til tekna.
2. Skýrslum um hlutafé og arðsúthlutanir hlutafélaga ber að
skila til Skattstofunnar í síðasta lagi h. 10. þ. m.
3. Skattaframtali fyrir árið 1948, sem jafnframt er eignakönnun-
arframtal, ber að skila til Skattstofu Reykjavíkur í síðasta lagi 31.
jan. næstkomandi. Hefir Skattstofan ekki rétt til þess að veita
lengri framtalsfrest, hvorki einslaklingum né fyrirtækjum, nema
með sérstakri heimild framtalsnefndar, ef sérstaklega stendur á.
Ákvarðanir varðandi slíka heimild munu eigi teknar fyrr en undir
lok þessa mánaðar, en þegar er ákveðið að sett verða mun þrengri
takmörk fyrir frestveitingum en áður hefir tíðkast.
Er því þeirri aðvörun beint til allra framteljenda, einstaklinga,
fyrirtækja, félaga og stofnana, að skila skattframtali, fyrir næstu
mánaðamót, eða reynist það ókleift, að gera ráðstafanir til þess að
það geti orðið sem fyrst eftir lok mánaðarins.
4. Allir einstaklingar, sem náð hafa 16 ára aldri á framtalsdag-
inn, þ. e. 31. des. 1947, eru framtalsskyldir, eins þótt þeim hafi ckki
borist skattframtal eða þótt eign þeirra sé ekki svo mikil að
skattskyldu nemi. Undanþágur frá framtali, sem veittar hafa ver-
ið sjúklingum, gamalmennum, öryrkjum, styrkþegum o. fl„ eru
úr gildi fallnar, og hvílir sú skylda á þeim, eða forráðamönnum
þeirra án undantekningar, að útfylla eignakönnunarframtal.
5. Ef börn innan 16 ára aldurs eiga einhverja eign, skal einnig
senda sérstakt framtal fyrir þau, ef barnið hefir öðlast eignina
fyrir 1. sept. 1946, eða hefir sjálft aflað fjárins. Að öðrum kosti
'teljast eignir barns á framtali foreldra.
6. Þeim, sem hafa í huga að njóta aðstoðar Skattstofunnar við
að útfylla framtal skal á það bent, að útfærsla framtalsins tekur
nú lengri tíma en verið hefir. Er fólki því ráðlagt að koma sem
fyrst til að láta útfylla framtölin, en geyma það ekki til loka
mánaðarins, þegar ösin er orðin svo mikil, að bið verður á af-
greiðslu.
Þess er krafist af þeim, sem vilja fá aðstoð við útfyllingu fram-
talsins, að þeir hafi meðferðis öll nauðsynleg gögn til þess að
framtalið verði réttilega útfyllt, og ennfremur, að þeir hafi áður
lokið nafnskráningu á innstæðum sínum.
7. Auk allra félaga og stofnana, sem skatískyld eru cftir skatta-
lögunum, eru nú einnig framtalsskildir hverskonar sjóðir, félög
og stofnanir, bú, sem eru undir skiptum og aðrir ópersónulegir
aðilar, sem einhverja eign eiga, enda þótt þeir reki ekki atvinnu
eða njóti skattfrelsis að lögum. Öllum slíkum aðilum ber því að
senda Skattstofunni, í siðasta lagi 1. jan. næstk. skattframtal á-
samt reikningum um tekjur sínar og gjöld á árinu 1947 og eignir
og skuldir á framtalsdegi.
8. Þess er krafist, að fyrirtæki og einstaklingar, sem vöru-
birgðir eiga, skili til Skattstofunnar í siðasta lagi 14. þ. m„ skrá
um vörubirgðir sínar h. 31. des. 1947. Skal birgðaskráin sundurliðuð
og tilgreint kostnaðarverð og magn á hverri einstakri vörutegund,
en hcildarsamtala þarf ekki að vcra fundin. Sé vörubirgðaskrá ekki
skilað á réttum tíma telst það til ófullnægjandi framtals, og við-
urlögum beitt samkv. því.
9. Að gefnu tilefni er fram tekið, að Skattstofa Reykjavíkur
annast ekki um neinar skrásetningar á innstæðum eða vcrðbréfum.
Skrifstofa framtalsnefndar, Lindargötu 9, annast í umboði Skatt-
stofunnar um skráningu innlendra handhafaverðbréfa og enn-
fremur um nafnskráningu á innstæðum þeirra, sem heimilisfastir
eru i Reykjavík en eiga innstæður í lánsstofnunum utan umdæm-
isins. Ber því að snúa sér þangað með slikar verðbréfatilkynning-
ar og innstæðuyfirlýsingar.
10. Framteljendum er bent á að kynna sér sem rækilegast hið
nýja framtalsform, svo að þeir geti útfyllt það sem réttast, og
sem minnst þurfi að ónáða þá með fyrirspurnum eða kvaðningum
eftir á. Ennfremur að veita athygli á refsiákvæðum 18. og 19. gr.
laga um eignakönnun, en þau hljóða þannig:
18. gr.: „Nú skýrir maður af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi
rangt frá eignum sinum á hinu sérstaka framtali samkvæmt þess-
um kafla, og skal þá eign sú, sem hann þannig dregur undan, falla
óskipt til ríkissjóðs.
19. gr.: Hver sá, sem af ásetningi gefur rangar, villandi eða ófull-
komnar upplýsingar um eignir sínar á hinu sérstaka framtali, svo og
hver sá, sem af áseíningi lætur undan fallast að telja fram á rétt-
um tíma, skal sæta sektum allt að 200.000.00 krónum. Sömu refsingu
skal sá sæta, sem gerist sekur um hlutdcild í slíku broti.
SKATTSTJORINN í REYKJAVÍK