Fálkinn


Fálkinn - 12.03.1948, Blaðsíða 14

Fálkinn - 12.03.1948, Blaðsíða 14
14 FÁLKINN LONDON og BIRMINGHAM TVÖ NÝ SAGNAHEFTI BRITISH INDUSTRIIS FAIR (BREZKA IÐNSÝNINGIN) 1948 3.-14. maí. PaNN 3. maí 1948 hefst Brezka Iðnsýningin og munu kaupsýslumenn hvaðanæfa úr heiminum pá fá tækifæri til að skoða framleiðsluvörur 3000 brezkra iðnfyrirtækja. Brezka iðnsýningin er einn markverðasti viðburður hvers árs og stærsta pjóðarkaupstefn- an í heimi. Kaupstefna pessi er svo umfangs- og pýðingar- mikil að kaupsýslumenn eru hvattir til að koma þangað sjálfir. Par munu peir eiga víst að komast í samband við sjálfa framleiðendur varanna eða einkaumboðsmenn peirra. Sýn- ingarmeunnirnir eru vandlega flokkaðir eftir iðngreinum, svo að hægt er að gera samanburð á peirn í fljótu bragði. Frainar öllu munu sýningargestir geta litið par nýjar vörur, nýjar framlciðsluaðferðir og nýjar hugmvndir, allt framkvæmt með frábærri tækni. Petta er eina tækifærið scm kaupsýslumenn fá á árinu 1948 til að geta skoðað á fáum dög- um framleiðsluafrek 87 brezkra iðngreina. Uf plýsingar og aðstoð í sambandi við sýninguna má fá í brezka sendiráðinu í Reykjavík. ÉG KAUS FRELSIÐ. Frh. af bls. 11. málmgrind með gleri, scm notað er i stað rafmagnslukta. „Og svona smáræði getum við ekki framleitt?“ segir Kasygin reiður. Það vildi svo til að ég þekkti þetta mál. Eg gerði grein fyrir að framleiðslan hefði stöðvast af því að okkur vantaði pjátur, mótunar- vélar og gler af réttri teg'und. Kasygin ber í borðið. „Þessi glæpsamlega deyfð má ekki líðast lengur! Ljóskerin verða að koma! Hernaðargögnin verða að koina með þeim braða sem félagi Stalin fyrir- skipar! Sosnin -— látið þér okkur heyra skýrsluna yðar!“ Framhald í næsta blaði. OLYMPÍULEIKARNIR. Frh. af bls. 5. sem mest hafa sett út á leik- stjórnina. En nú eiga þeir áð hafa vetrarleikina næst, 1952, og þá er að vita hvernig þeim tekst. Bæjarstjórnin í Osló sendi menn á þessa leiki í St. Moritz til þess að kynna sér tilliög- Sigurjón Pétursson frá ÁUifossi varð 60 ára !). mars. Ilann er fædd- ar að Skildinganesi við Skerjafjörð, sonur hjónanna Vilborgar Jónsdótt- ar og Pélurs Hanssonar, formanns. Sigurjón er þjóffkunnur maffur fgr- ir iþrótlaafrek sín og afskipti af iðnaffár- og verslunarmáhim. Egils ávaxtadrykkir Fyrir nokkrum dögum komu í bókaverslanir tvö sagnahefti af „fs- lenskum sagnaþáttum og þjóðsög- um“, sem Guðni Jónsson skólástjóri býr til prentunar og fjórða hefti af þáttunum „Frá ystu nesjum“, sem Gils Guðmundsson ritstjóri hefir undanfarið safnað til og skrásett. Þessi söfn eru bæði vinsæl og eiga mikinn hóp lesenda. Guðni hef- ir haldið sig mest við austursýsl- urnar hér sunnanlands, enda er harin þaðan ættaður, þar er hann þaulkunnugur og á þar marga góða menn og íróða. í safni Gils Guðmundssonar eru flestar sagnirnar að vestan frá Vest- fjörðum, frásagnir um dáglegt líf og störf alþýðumanna. Munu þessar frásagnir er timar líða verða stór þáttur í nýrri bók um íslenska þjóð- hætti. Fyrsta sögnin í þessu nýja hefti er framhald af liinni merku og skemmtilegu frásögn um Vatnsfjörð og' Vatnsfirðinga. Segir hér frá .Birni Jórsalafara Einarssyni, einhverjum nafnkenndasta miðaldahöfðingja islenskum. Hann var bóndi í Vatns- firði og er talinn viðfrægastur allra þeirra inanna, sem þann stað hafa setið. Björn andaðist í Hvalfirði ár- ið 1415 og var lík hans flutt til Skálholts og greftrað þar. Næst er getið Vatnsfjarðar Kristínar, dóttur Bjarnar Jórsalafara. Er þar skemmti lega sagt frá þeim systkinum, Krist- ínu og Þorleifi bróður hennar. Krisl- ín var sjúk i æsku og lá rúmföst jafnan, en Þorleifur kenndi sér al- drei meins. Þótti liann afbragð mik- ið annarra manna, og' spáðu allir honum glæsilegri framtíð. Einhverju sinni i veikindum sinum hafði Krist- ínu dreymt draum, mjög furðulegan, og þóttist hún geta ráðið það af draumnum, að sér yrði lengra Hfs auðið en Þorleifi. Þetta fannst «11- um fjarstæða hin mesta, og ekki sísl Þorleifi sjálfum. Árið 1392 ferð- aðist Björn Jórsalafari, faðir þeirra systkina, víða um land og fann höfð ingja að málum. í þeirri för leitaði hann Þorleifi syni sínum kvonfangs norður í Eyjafirði, og skyldi Þor- leifur síðan vitja ráðahags þess, er faðir hans hafði til stofnað. Um veturinn fór Þorleifur áleiðis norð- ur, en drukknaði í þeirri för. Krist- ín systir lians, sem verið hafði mjög þungt haldin, er þau systkin skyldu, reis nú samstundis úr rekkju og giftist það sama ár Jóni Guttormssyni i Hvammi, bróður Lofts rika Guttormssonar. Kristín varð tvígift og lifði menn sína báða, þótti hún skörungur mikill og var annáluð rausnarkona. Margar eru sagnirnar í þessu hefti „Frá ystu nesjum“ fróðlegar og vel sagðar. Má þar nefna ágæta ritgerð um bændur í Önundarfirði 1801, eftir Ólaf Þ. Kristjánsson, og Minningar frá Tröllatungu, eftir Guðjón Jónsson, og fylgja þeirri grein myndir af Tröllatunguhjón- unum, Halldóru og Jóni, ásamt íbúð- arhúsi þeirra, sem reist var um 1900. Hefti Guðna Jónsonar, „íslenskir sagnaþættir og þjóðsögur", er fjöl- breytt að vanda. Sagnirnar eru flest- ar þjóðsagnakenndar, og kennir þar margra grasa. Virðist vera farið að sneiðast um frambærilegt efni á þvi sviði, sem Guðni leitar helst til að- drátta um efni, og mætti sumt af því, sem birt er i heftinu í bundnu máli að skaðlausu hverfa. Þó eru þarna ágætlega skráðir sagnaþættir, eftir Þórð Sigurðsson frá Tarina- stöðum og fleiri. Mætti nefna til dæmis þáttinn um Elínu skinnhúfu, Arnarbælisskipið og Jórunni á Þúfu. Ekki er rúms vegna liægt að gera bókum þessum fyllri skil hér i blaðinu, enda er sjón sögu ríkari: Menn verða að sjá lieftin og lcsa þau. JOAN BLONDELL Fræg filmstjarna „Mýlcra oq jafnara hörund Ilversu fallegt sem hörund yðar cr, þá jyjrj þaff .samt stöffuga umhgggju Lux handsápunnar. — Þessvegna nola 9 fitmstjörnur af 10 þessa sápn tit aö halda hörundinu sléttu, björtv og Ijómandi. LUX HANDSÁPA A'o/iið aj 9 filmstiórn■ um aj hverjum 10 unina. rs 679-öaa

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.