Fálkinn - 17.09.1948, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Á baðströndinni í Deauville.
Franski baðstaðurinn Deauville
er samastaður heldra fólksins
í París og ríkra ferðamanna
hvaðanæva að úr heiminum.
Þar er íburður til fæðis og
klæðis, og þar kemur tískan
fyrst „á markaðinn— Þessi
Parísardama hefir t. d. dansk-
an hund í fylgd með sér að
piparkvenna sið, og baðfötin
eru í stíl við háralit hundskinns
ins.
Þingið í Bonn. — Fulltrúar þýsku ríkjanna á hernámssvæðum
Vesturveldanna hafa setið á þingi í Bonn og rætt um stofnun
vestur-þýsks ríkis, sem kemur til með að hafa innan vébanda
sinna 46 milljónir manna. — Christian Siock, forsætisráðherra
Hessens flytur hér ávarp til þingheims í Alexanderssafninu í
Bonn.
Dieppe-strandhöggsins minnst.
— 1 fremska bænum Dieppe
hafa nxýlega verið mikil hátíða-
höld í tilefni af 6 ára afmæli
kanadiska strandhöggsins við
borgina, undanfara innrásar-
innar á meginlandið. Þá var
þetta minnismerki afhjúpað á
Kanada-torginu í borginni til
- minningar um hina mörgu
kanadisku hermenn, sem féllu
við strandhöggið.
Til hægri:
Fegurðardrottning Monte Carl-
os. Jafnvel furstaríkið Monaco
á Miðjarðarhafsströnd hefir
smitast af þeim faraldri að
kjósa fegurðardrottningar. Þessi
unga stúlka hefir verið valin
fegurðardrottning í spilabæn-
um Monte Carlo. Hún heitir
Jeanette Nolland, og ráðgert er
að hún taki þátt í samkeppni
um titilinn „drottning Miðjarð-
arhafsins".
Dr. Schacht látinn laus. — Dr. Hjalmar Schacht, fyrrum ríkis-
bankastjóri Þýskalands og fjármálaráðherra Hitlers, hefir
gengið í gegnum margt frá því að Þjóðverjar gáfust upp. Við
réttarhöldin í Niirnberg var hann sýknaður af ákærunni um
stríðsglæpi, en Þjóðverjar tóku hann sjálfir höndum 19k6,
eftir að bandamenn höfðu sleppt honum. Hnepptu þeir hann
í varðhald i Ludwigsburg, þar sem hann hefir dúsað, þar til
nú fyrir skemmstu. 1 mars Í9b7 var honum stefnt fyrir and-
nasistadómstól og þar hlaut hann dóm, sem áfrýjað var til
hæstaréttar. Nú hefir hæstiréttur kollvarpað þeim dómi og
Schacht. hefir verið sleppt. — Hér sést dr. Schacht bíða eftir
skilríkjum sínum við hlið fangabúðanna í Ludwigsburg.
„Þessa leið til Ástralíu“, segir
Lundúnalögregluþjónninn ferða
langinum væntanlega, sem á-
kveðið hefir að fara að mestu
leyti fótgangandi til Ástraliu.
Ferðalangurinn spyr lögreglu-
þjéninn um stystu leið til Do-
ver, en þangað ætlar hann að
ganga og taka síðan bát yfir
til Calais á Frakldandsströnd.
Síðan á að leggja lönd undir
fót, fyrst Evrópulöndin og síð-
an Asíulöndin.
Of fáklædd. — ltalska stjórnin
hefir nýlega gefið út tilskipun,
þar sem lögregluþiónum er
heimilað að taka fast það fólk,
er sýnir sig fáklætt eða nakið
á opinberum stöðum. Hér er
mynd af ungri stúlku, sem hin-
um hvítklædda lögregluþjóni
finnst ósæmilega búin. Hann
tekur hana með sér og stingur
henni í „steininn“.
Til vinstri:
„Herra Universum". — Þessi
vöðvastælti náungi virðist ekki
vera neitt rindilslega vaxinn.
Hann er Ameríkumaður og sigr-
aði í samkeppni um titilinn
„herra Universum". Samkeppn-
in fór fram í London.