Fálkinn


Fálkinn - 17.09.1948, Blaðsíða 14

Fálkinn - 17.09.1948, Blaðsíða 14
14 FÁLKINN CHURCHILL — Framh. af bls. 9. ÞaÖ fundust þarna mörg önnur fölsuð skjöl, og á umslagi eins bréfs- ins, sem auðsjáanlega átti að lita út eins og það væri skrifað i ensku stjórnarráði var götunafn og númer skrifað á eftir borgarnafninu, en ]iað gera engir nema Þjóðverjar. Auk þess var Oxford Street, sem stóð á bréfinu alls ekki til í Cambridge, heldur Oxford Road. En það sak- næmasta sem fannst voru þó dul- málsskeyti, sem sýndu og sönnuðu, að dr. Braake hofði tekið að sér að ráða Churchill af dögum og enda fleiri forustumenn enska, eftir því sem lionum gæfist færi á. Mínúturnar liðu og Ter Braake kom ekki heim aftur. Einhvernveg- inn hlýtur liann að liafa komist á snoðir um, að hætta var á ferðum. Það er sennilegt að liann hafi séð grunsamlegan mann halda vörð við húsið. Þegar hann kom aftur hefir hann líklega séð sama manninn þarna, og þá farið að gruna margt. Nóttina eftir þegar einn varðmað- urinn i loftvarnarbyrgi í Cambridge var á eftirlitsfcrð, sá hann mann, sem virtist sofa á einum bekknum. — Halló, þér megið ekki sofa þarna! kallaði hann. Maðurinn hreyfði sig ekki. Og þá tók varðmaðurinn eftir að skamm- byssa lá á gólfinu hjá manninum, og' svo sá hann blóðpoll. Hann sótti lögregluna. Skömmu síðar voru sérfræðingar farnir að rannsaka líkið. Þetta var dr. Jan William Ter Braake! Hann liafði kosið sér skammbyssukúluna fremur en að fá snöru um hálsinn — kannske var þetta einmitt kúl- an. sem ætluð hafði verið Winston Churchill. Þá var síðasti hlekkurinn fund- inn í torráðinni gátu. En forspilið að Englandsför Ter Braake hófst einn morgun, haustið 1940. Hinn 3. okt. fannst þýsk fallhlíf á akri nálægt Amersham í Buck- ingliamshire. Enska lögreglan fór þegar að ieita uppi manninn, sem komið hafði í þessari fallhlíf. En akurinn var frosinn, svo að ekki var hægt að rekje sporin. Og ]>að var ekki fyrr en sjö mánuðum síð- ar að skjöl Ter Braake sýndu, að hann va*’ maðurinn, sem hafði ver- ið i fallhlífinni. Það vitnaðist aJdrei hve margir þeir voru mennirnir, sem gerðir voru út til þess að myrða helstu menn bandamanna, en svo mikið er víst að þeir voru miklu fleiri en dr. Jan William Ter Braake. INDÍÁNAFLOKKUR í British Columbia sendi Elísabetu prinsessu tvö gullarmbönd að gjöf. Samkvæmt fornum átrúnaði mega aðeins konunglegar persónur bera þessi djásn, en þeim fylgir „kraftur himins og jarðar". í marga manns- aldra hafa konur ráðið fyrir þess- um Indíánaflokki. Núverandi drottn- ing hans segir í bréfinu sem fylgdi gjöfinni til „hinnar konunglegu systur“ hennar: „Megir þú öðlast allan mátt himins og jarðar, úr því að þú átt einhverntíma að ríkja sem drottning yfír oss Indíánum." Franska stjórnarkreppan. — Frá því að stjórn Andvé Maries féll, hafa franskir stjórnmálamenn setið á sífelldum fundum og reynt að bræða saman ennþá eina stjórnina. Schuman tókst að mynda sljórn, sem sat þrjá daga að völdum, og nú er kominn ný stjórn og nýir me.nn. Leon Blum jafnaðarmanna- leiðtoginn, sést hér koma af einum fundi, þar sem stjórnar- myndun var ræcld. í fylgd með honum eru nánustu samstarfs- menn hans. Talið frá vinstri: Jules Moch, fyrrv. innanríkis- ráðherra, Jean Riondi, Iæon Blum og Joseph Laniel. Edvard Kardelj, fyrrverandi ut- „Járnkóngurinn“, er þessi þýski anríkisráðherra Júgóslcwíu og kraftajötunn kallaður. Ilann er nú formaður miðstjórnar komm einn þeirra, sem slítur járnkeðj únistaflokks landsins, hefir ur, beygir járnstangir og lætur harðlega mótmælt ásökunum björg liggja á brjósti sér. Hér Kominforms á hendur flokks- lætur hcinn bil keyra yfir sig, bræðrum sínum. án þess að verða meint af. STAL BRÚ. í Róm hefir mörgu verið stolið eftir stríðið, en einna undarlegasta þjófnaðarmálið er það, að fimm bílstjórar hafa verið kærðir fyrir að stela einni brúnni af Tíber. Þessi brú — Torra Tiberia — var sprengd i styrjöldinni og bílstjór- arnir hirtu járnaruslið úr henni og seldu það á svörtum markaði. Þeir voru að sækja síðustu hlössin þegar lögreglan greip þá. Miðaldra kennsiukona átti erindi í höfuðstaðinn og fékk sér herbergi á gistihúsi. Um kvöldið gat hún ekki sofnað, — hún var eldhrædd og vildi ganga úr skugga um hvar varaútgangur væri, ef eldur kynni að koma upp í húsinu. Hún fór því út i ganginn og kom að dyrum, sem lnin taldi þesslegar að þar yrði komist út. Ilún lauk upp en sá þá að þetta var baðher- bergi og að karlmaður stóð undir steypunni þar. — ,Æ, afsakið þér, stamaði hún, — ég var bara að leita að bruna- dyrunum. Hún var ekki komin langt inn gang'inn þegar liún lieyrði liróp bak við sig. Þar var maðurinn úr bað- herberginu kominn, og hafði ekki annað fata en citt liandklæði. •— Ilvar er að brenna? öskraði hann. PRJÓN. Framh. af bls. 11. og 24 1. slétt. Á ranghverfunni eru lykkjurnar prjónaðar eins og þær koma fyrir. 2 sléttur prjónn: 22 slétt, 1 brugðin, 1 slétt, 1 brugð- in. 31 slétt, 1 brugðin, 1. slétt 1 brugðin 22 slétt. — Frá þessu er alllaf prjónað 2 1. fleira brugðið hvoru megin við sléttu reitina (31 1.) þar sem mynstrið er, þangað til allar hliðarlykkjurnar eru brugðnar. Þegar ermin er 46 cm. byrjar úr- takan. Fell 6 1. af í byrjun 2 fyrstu prjónana. Fær á prjóna nr. 3% og prjóna til skiptis 2 prj. sem ekki er tekið ú" og 2 pri. sem tekið er úr 1. 1. Þegar 47 i. eru eftir er tekið úr 2 1. í byrjun livers prjóns þar til eftir er 31 1. Merk miðlykkjuna með spotta til hægðarauka. Fær á prjóna nr. 2% og prjóna 2 og 2 lykkjur saman (16 1.) Prjóna 1 prjón brugð- ið og íell af. Mynstrið er saumað með lykkju- spori. Á framstykkinu 6 1. frá liáls- máli og á ermunum 12 1. ofan frá. Byrjað er á miðlykkju mynstursins í merlctu lykkjuna á jieysunni. Frágangur: Legg öll stykkin saman milli blautra dagblaðá, þar til þau eru slétt og rök, breið þau upp og jafna vel með höndunum. Hálsmálið: Sauma saman axlirn- ar, tak upp 90 1. í hálsmálið og prjóna með 4 sokkaprjónúm, slétt fyrsta prjóninn svo brugðið og fell saman tvöfalda iíninguna þegar hún er orðin 4% cm. og drag teygju- band i. Sauma peysuna sanian. CANARIS — Framh. af bls. 5. seni hann liafði áður haft af flugumönnum. Hann álpaðist til að gera von Hincken að Irúnaðarmanni sínum og flugu- manninum tókst að komast yf- ir nokkur hréf lijá Canaris, sem sönnuðu að liann liefði verið við samsærið riðinn. Annað bréfið var til Gördelers, sem átti að taka við stjórninni eftir að Hitler liefði verið drepinn; liitt var til von Scliulenbergs greifa, sem átli að verða utan- ríkisráðherra nýju stjórnarinri- ar. NÚ voru örlög Canaris ráð- in. Niðurlagið var samkvæmt forskrift Himmlers. Aðfaranótt 7. apríl 1945 var Canaris hengd ur. í stað snæris var notaður stálvír i snöruna, svo að Can- aris var 45 minútur að kafna. Likinu var fleygt i hópgröf, þannig að Canaris fékk að fara undir nafninu N. N. inn í eilífð- ina. Frú Mosfells við vinkonu sína: •— Eg er hrædd um að hann Guðmund- ur sé liættur að elska mig. Áður kyssti liann mig alltaf þegar dimmt var i bió, — en nú sýpur liann á vasapelanum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.