Fálkinn


Fálkinn - 05.11.1948, Síða 2

Fálkinn - 05.11.1948, Síða 2
I 2 FÁLKINN Jón J. Aðils: „Gullöld íslendinga“ Menning og lífshættir forfeðra vorra á söguöldinni 2. útgáfa með mjnndum. „Gullöld Islendinga“ hefir verið ófáanleg í mörg ár, hefir hún þess vegna verið gefin út að nýju í fallegri og vandaðri útgáfu. öllum þeim sem unna fornbókmenntum íslendinga er mikill fengur að þessari stórmerku bók. Jónas Jónsson alþingisxnaður segir meðal ann- ars í formála fyrir 2. útgáfunni: „—; — — Hver íslendingur, sem átti fornritin og las þau með athygli, fékk í „Gullöld Is- lendinga“ skýring á því merkilega fyrirbæri, að á þjóðveldistímanum tókst afskekktri og fámennri þjóð á íslandi að skapa þjóðskipu- lag og þjóðmenningu, sem mun ætíð verða talin varanlegt afrelc í sögu Vesturlanda.- 1 höndum Jóns Aðils varð saga landsins heit eggjan til íslendinga um að vera hvergi eft- irbátar forfeðranna“ Allir fróðleiksfúsir íslendingar munu fagna því að „Gullöld íslendinga“ er nú aft- ur fáanleg í prýðilegri útgáfu. „Gullöld íslendinga" er tilvalin gjafabók Skoðið „Gullöld íslendinga" hjá næsta bóksala. Aðalútsala hjá Bókaverslun Sigurðar Kristjánssonar Bankastræti 3. Happdrætti Háskóla Islands Dregið verður í ii. flokki iO. nóvember. 602 vinningar — samtals 213,800 kr. Hæsti vinningur 25,000 krónur. Endurnýið strax í dag. KU-KLUX-KLAN EFLIST. Um 1000 nýir meðlimir hafa ver- ið teknir inn i Ku-Klux-Klan með meiri viðhöfn en almennt gerist. Voru þeir vígðir til íeynilögregl- unnar i bjarmanum frá tákni Klans- ins, sem er brénnandi kross. Fór athöfnin fram á kletti einum skammt frá Atlanta, en þaðan hafði Klan- inn verið rekinn burt fyrir tveim- ur árum, af eigandanum, sem ekki vildi líða þetta tilberaverk í sinni landareign. f tilkynningu sem ný- iega hefir verið gefin út segir að Klaninn liafi nú 500,000 meðlimi víðsvegar um Bandaríkin. ESPERANTO OG UNO. Um öll lönd veraldar ganga nú undirskriftarskjöl þess efnis að skora á UNO að stuðla að út- breiðslu alþjóðamálsins esperanto og nota það í alþjóðaviðskiptum. Það eru bæði einstaklingar og fé- lög sein skri'fa undir. í Noregi hafa bæði verkamannasambandið (Ar- beidernes faglige I.andorganisasjon), kennarasambandið og kennslukvenna sambandið skrifað undir, og nafn Vincents Auriol Frakkaforseta er þar líka. ÓKEYPIS LYF. Ríkisstjórnin í Ástralíu hefir ný- lega gefið út tilskipun um, að öll lyf skuli framvegis látin af hendi ókeypis. Með því að útfylla ákveðin skýrsluform geta allir borgarar, hvort þeir eru fátækir eða ríkir, fengið ókeypis pillur og púlver, piástra og dropa, pencillin og strep- tomycin og hvað annað sem vera skal og ríkið borgar. Læknarnir hamast gegn þessu og hafa við orð að láta þessi fyrirmæli eins og vind um eyrun þjóta. FR0ÐLEG B0K 0G SKEMMTILEG Úr byggðum Borgarfjarðar II, eftir Kristleif Þorsteinsson á Stóra-Kroppi. Útgefandi ísafoldarprentsmiðja h.f. Samtíð Kristleifs Þorsteinssonar á Stóra-Kroppi hefir í þakkarskyni fyrir fróðleikssöfnun hans og ritstörf gefið honum hið yfirlætislausa en sviptigna sæmdarheiti, fræðaþulur. Kristleifur hefir borið þetta róttnefni með sóma. Hann er þjóðkunnur sem búhöldur og gáfumaður, þegar hann hóf rit- störf sín, en með þeim hefir hann tryggt nafni sinu og minningu lang- lífi með þjóðinni, enda þótt því hafði farið fjarri, að hann ynni þetta starf sér til auðs eða frægðar. Fyrir honum vakti það eitt, að bjarga frá gleymsku merkilegum fróðleik um menn og háttu liðinna alda og ára. En það er ekki aðeins, að Krist- leifur á Stóra-Kroppi hafi forðað frá gleymsku fróðleik um menn og háttu í byggðum Borgarfjarðar. Hann hefir i sagnaþáttum sinum og frásögnum brugðið upp myndum úr lífi þjóðar- innar og komandi kynslóðir munu ekki síður kunna lionum þakkir fyrir það starf en samtíð hans. Hann hefir líst bæjunum, búskaparháttunum og bændunum i Borgarfirði á löngu og merkilegu árabili. Hann hefir lýst menntun og menningu þessa fólks, lífsbaráttu þess og örlögum, rakið feril þess í blíðu og stríðu frá vöggu til grafar. Hann hefir krufið til mergjar kjarnann í lífi og menningu íslend- inga á liðnum öldum, lýst á glöggan og áhrifaríkan hátt umhverfi, starfs- skilyrðum, vinnubrögðum, aðbúð og dægradvöl íslendinga á sjó og í sveit- um á timabilinu frá þvi að þjóðin fór aftur að rísa á legg og þangað til véla- menningin tók að leggja undir sig landið. Kristleifur Þorsteinsson er fylgdar- maður lesenda sinn. Hann fer með þá um byggðir Borgarfjarðar, víðlent, fagurt og kostaríkt hérað. Hann sýn- ir þeim Borgarfjörðinn eins og hann var og er, og hann kynnir fyrir þeim hina gömlu, sérkennilegu og skemmti- legu Borgfirðinga. Hann sannar ferða- félögum sínum, að hver einn bær á sína sögu, og hann rifjar upp fyrir þeim sögu fólksins, sem forðum lifði þar, starfaði og dó. Bækur Kristleifs fjalla um Borgarfjörðinn og Borgfirð- inga. En þær eru um leið annað og meira en tímabundin saga þess hér- aðs og íbúa þess. Þær eru aldarspegill, þar sem lesandinn sér í megin dráttum líf og starf þjóðarinnar á þvi tíma- bili, sem bækur Kristleifs ná yfir. Samfylgd Kristleifs er ógleymanleg, sökum kunnugleika hans og ratvísi. Og því, sem liann sér og sýnir, lýsir hann á liinu liljómþýða og þróttuga máli, sem lifað liefir hreint og mótað á vörum gáfaðs og heilbrigðs alþýðu- fólks öld af öld og kynslóð af kyn- slóð. Kristleifur Þorsteinsson hefir með ritstörfum sínum reist sér í elli sinni óbrotgjarnan ininnisvarða með því að rækja skyldu sína við hérað sitt og sögu þess. HKESSANV! COLA mVKKUR S)

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.