Fálkinn


Fálkinn - 21.10.1949, Page 2

Fálkinn - 21.10.1949, Page 2
2 FÁLKINN JON SVEiNSSON Bskur frd IsaloldarprentsmjijB Nonni og Manni Saratoga, Fyrir jólin í fyrra var hafin ný útgáfa af hinum vinsælu og sí- gildu bókum Jóns Sveinssonar (Nonna). Þk kom fyrsta bókin, á Skipalóni. Nú kemur Nonni og Manni og fyrir jólin þriðja bókin: Sólskinsdagar. Þessar bækur má gefa unglingum á öllum aldri. Þær eru fallegar og skemmtilegar. íslenskir sagnaþættir og þjóðsögur Horfin sjónarmið eftir J. Hilton James Hilton er frægur enskur rithöfundur, En sú bók hans, sem mesta athygli hefir vakið er HORFIN SJÓNARMIÐ. Hún hefir farið sigurför um flest menningarlönd, verið kvik- mynduð og snúið í leikriL Ný- lega var leikið hér í ríkisút- varpinu leikrit úr efni skáld- sögunnar. Bókamenn, hér er góð bók og ódýr. eftir Edna Ferber Þetta er stórbrotin skáldsaga, sem gerist í Frakklandi og vest- ur á sléttum Mið-Ameríku. Sag- an hefir verið kvikmynduð. Myndin er ein af íburðarmestu kvikmyndum síðari ára. Aðal- hlutverkin leika Ingrid Berg- manog Gary Cpoper. Verður hún sýnd í Austurbæjarbíó eftir fáa daga. — Lesið bókina áður en þér sjáið myndina. Áttunda hefti af sagnaþáttum Guðna Jónssnar skólastjóra. I þessu hefti er eins og áður, sagnaþættir og alþýðufróðleik- ur. Lengsti þátturinn er grein Kristjáns G. Þorvaldssonar á Suð ureyri, um álfabyggðir og á- lagabletti í Súgandafirði. Krist- ján er maður á sjötugsaldri, fjölhæfur, greindur og víðles- inn. Auk þess má nefna þáttinn um Valgerði Varalausu eftir Pétur Jónsson frá Stökkum, Sögn um Fjalla-Eyvind, eftir handriti Þórðar Sigurðssonar á Tannastöðum og sögn um við- búnað fyrir Kambsrán, eftir Þórð Jónsson frá Stokkseyri. Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilson II f , Ein af vinsælustu bókum á þessu ári hefir verið FERÐA- MINNINGAR SVEINBJARNAR Á ^ '.KIÍhI EGILSSON. Þær eru alþýðlegar ■ft' , ar Og fróðlegar og þar hitta | margir gamla kunningja og Wl v i rifja upp fornar minningar. HHH, .í .1 Fvrra bindið seldist á skömm- um tíma. Nú er síðara bindið ajTOÍÍt-'J-- jbJ komið. Nokkur eintök eru enn- HHkPHKJ þá til af báðum bindum. Hendingar Jónasar frá Grjótheimi Jónas lætur fjúka í kviðlingum um allt og alla. Margar vísur hans eru góðar og hitta naglann á höfuðið. Þeir sem hafa gaman af ljóðum, þurfa að eignast HENDINGAR JÓNASAR FRÁ GRJÓTHEIMI. Bókaverslun ísafoldar SVONA MANN VILDI HtíN. í ensku blaði stóð fyrir nokkru svolátandi auglýsing: „Þritugur mað- ur óskar að komast í kynni við an- arkista, skæruliða, ættjarðarvini, byltingamenn, lýðræðismenn eða afturhaldsmenn. Kann að skjóta, kasta sprengjum, leggja tundurdufl, sprengja brýr, skipuleggja fundi' og kröfugöngur, uppþot og æsingar. Óskar að flytjast burt úr Englandi og fá fasta stöðu. Fjárhagslega ó- háður. Einhleypur." — Hann fékk 36 hjúskapartilboð. HEIMSMET 1 MÁLNINGU. 98 amérískir málarasveinar settu nýlega ótrúlegt met i iðn sinni að viðstöddum miklum mannfjölda, sem safnaðist í kring til að horfa á handatiltektirnar. Þeir máluðu sem sé heilt hús að utan á 2 mínútum 32 sek. Þessi mettilraun gekk slysalaust að öðru leyti en þvi að endurtaka varð „startið“ en það var borg- arstjóranum að kenna. Hann átti að hleypa af byssunni, en hafði gleymt að hlaða hana. Sá sem gladdist mest yfir þessu „íþróttameti" var einfætt- ur maður, Robert Hazle, sem átti að flytja inn í húsið. Ilann fékk nfl. málninguna ókeypis, því að kepp- endurnir tóku ekkert fyrir verkið. En þessi ameríska fregn segir ekki frá því hve húsið hafi verið stórt! MESSÍAS í LONDON. Ungur amerískur trúboði fékk ný- lega þá vitrun, er hann var staddur í London, að hann væri Messias. Þetta hafði að vísu flögrað að hon- um fyrr, en nú þóttist hann vera viss i sinni sök. Ilann fór i hvitan slopp og gekk um göturnar ásamt konu sinni, sem var í nunnubúnigi. Svo ætluðu þau að fá sér að borða á Claridge — einum hinna betri veitingastaða í London, en brytinn neitaði að hleypa þeim inn. — Blöð- in höfðu tal af trúboðanum — Venta heitir hann — og sagði hann þeim, að fyrir nokkrum árum hefði hann komist á þá skoðun að hann væri Messías. Þess vegna hefði hann láti sér vaxa hár og skegg og klæðst eins og Gyðingar gerðu fyrir 2000 árum. Þegar hann var spurður hve gamal hann væri svaraði hann að hann væri „aldurslaus". Venta tal- ar venjulegt Bandaríkjamál. Sagðist hann eiga hundruð þúsunda af á- hangendum vestan hafs og yfir milljón lærisveina víða um heim. Frá London fór hann til Stokkhólms og vakti cnn meiri eftirtekt þar en í London. í ensku blaði stóð þessi leikhús- gagnrýni eftir að umferðaleikfélag liafði sýnt „Hamlet“: — Það hefir verið deilt um hvor væri höfundur að „Hamlet“ Sliakespeare eða Sir Francis Bacon. Nú er hægt að skera úr þessu í eitt skipti fyrir öll, með því að opna grafir þessara manna. Sá sem hefir snúið sér við í gröf- inni hefir samið „Hamlet“.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.