Fálkinn - 21.10.1949, Síða 3
PÁLKINN
3
Nehru í London
A leiðinni til Washington hefir
forsætisráðherra Indlands Pand
il Nehrn, haft viðdvöl í London,
þar sem hann átti tal við Sir
Stafford Cripps um gengislækk-
un pundsins og áhrif hennar.
Aðal markmiðið með þessu
ferðalagi hans til London og
Washington er þó einkum að
ræða hlutverk Indlands í bar-
áttuiini við kommúnismann í
Asíu og að koma með tillögur
um það, á hvern hátt Bandarík-
in geti með mestnm árangri létt
undir með Stóra Bretlandi í
viðleitni þess að bæta efnahags-
ástand Indlands. Hér sést Nehru
forsætisráðherra eiga viðtal við
fréttamenn útvarps og blaða við
komu sína til Lóndon.
***************
Kólumbusardagur
Kólumbusardagur er haldinn hátíðlegur í Bandaríkj-
unum 12. okt ár hvert. Hér sjást Bandaríkjamenn af
ítölsku bergi selja blómsveig á fótstall minnisvarða
Kólumbusar á Union Plaza i Washington.
STÆRSTA BLAÐIÐ
sem nokkurntima hefir komið út,
var gefið út i New York 1859. Það
var 260 cm. á liæð og 180 cm. ú
breidd. Blaðið hét „The Consteil-
ation“ og var 8 blaðsíður. Upplagið
24.000 eintök. -— Ef miða skal við
efnismagn er þetta met vitanlega
fyrir iöngu úr sögunni, því að nú
koma út blöð í Ameríku, sem eru
yfir 100 siður og með miklu smærra
lctri. En „The Constellation" heldur
ennþá metinu hvað brotið snertir.
Arthur Deakin er sérfræðingur
og trúnaðarmaður enska verka-
mannasambandsins í alþjóðleg-
um málefnum, og hefir enginn
meiri tiltrú i þeim greinum en
hann í Bretlandi. Hefir hann
nú haft forgöngu að undirbún-
ingi stofnunar nýs alþjóðasam-
bands verkamanna, til þess að
hamla á móti alþjóðasambandi
kommúnista.
Richard Byrd aðmíráll er að
undirbúa nýjan leiðangur til
suðurheimskautalandanna,
miklu stærri en nokkurn hinna
fgrri, þvi að í honum verða að
minnsta kosti 3000 manns.
Bandaríkjastjórn kostar leið-
angurinn og átti frumkvæðið
að honum. Byrd á nefnilega að
reyna að finna úran í atóm-
sprengjur þarna suður frá.
Henn, sem talað er um
Til hægri:
Camille Gutt heitir forseti al-
þjóða-gjaldeyrissjóðsins, sem
nýlega hefir verið að halda þing
sitt í Washington D.C. að við-
stöddum 250 fulltrúum frá 48
löndnm, þar á meðal íslandi.