Fálkinn - 09.12.1949, Blaðsíða 10
10
F ÁLKINN
JÓL Á KELDUM.
Framhald af bls. 5.
og hræsnislaus guðrækni allra. Ekki
þurfti að hlakka til ærsla og óláta,
æsandi skemmtana og hégóma gling-
urs, eða heimskulegra og hóffausra
jólagjafa, eins og þær tiðkast nú í
kaupstöðum*).
Jólugjafir þær sein við áttum von
á og allir í bænum fengu, voru
kerti, svolítið misstór eftir aldri
harna. Nýja, bryddaða sauðskinn-
skó fengu allir, og eitthvað af klæðn
aði. Oftast einhverja lieila flík, til
innri eða ytri fata. Og þá einatt
iíka, eða í allra minnsta lagi vel
gerða vettlinga, rósabarða (íleppa),
ísaumaðar brjósthlífar, krosssaum-
uð axlabönd o. s. frv. Allir virtust
ánægðir með gjafir þessar og voru
þakkíátir fyrir þær. Afhentar voru
þær á aðfangadagskvöldið, og létu
þá allir loga um sinn á kerlum sin-
um, en flestir spöruðu þau þó til
ígripa við tækifæri, fram yfir jól
og nýár.
Aðfangadagskvöldið. Þá var keppst
við að ljúka gegningum og mjöltum
heldur í fyrra lagi, svo allir gætu
verið búnfr að þvo sér og fara í
sparifötin, áður en útbýtt var jóla-
gjöfum og borið inn heita hangi-
kjötið og annað góðgæti. — Drykk-
ir voru þá engir aðrir en kaffi,
mjólk og venjuleg sýrublanda. Við
byrjun máltiðar liafði hver maður
yfir, hátt eða í hljóði, daglega bæn
sína: „Guð blessi mig og mína fæðu,“
og að máltið Jokinni: „Guði sé lof
og dýrð.“ Þar á eftir fóru flestir,
sem gátu komist út í kirkju. Kertin
voru sett livert á sinn stað og kveikt
á þeim öllum og látið loga nokkuð
lengi, til að brenna af þeim mjóu
hálsana. Hafði á meðan einhver
einn i senn nóg að gera, með
skarbítinn í hendinni. En á meðan
voru sungnir jólasálmar. — Ekki
var látið loga Jjós um nóttina í
kirlcjunni. Hafði þó faðir minn gert
það áður, með þvi móti að láta
kertastjakann standa í vatnstrogi á
altarinu, til öryggis gegn skarfalli
og Jandsskjálfta. Þegar inn var kom-
ið úr kirkjunni, var lesinn húslest-
urinn og sungnir sálmar á undan og
effir. Þar með fylgdi svo að heyrð-
ist frá öllum: „Þakk fyrir lesturinn,"
og var það venja við sérhvern hús-
Jestur. Að Jestri Joknum var komið
rétt að háttumálum og fóru þá flestir
að sofa, en sumir lásu í bókum. En
spil voru aldrei notuð á þvi kvöldi.
Og síst munu menn þá liafa gleymt
því að signa sig undir svefninn og
fela sig á vald Guðs vilja. — Þá
höfðu og sumir þann sið (sem enn
er til), að segja alltaf þegar þeir
lokuðu bæ sínum á kvöldin: „Guð
geymi hús og menn.“
Matarœði. Heimilisfólkið var margt
18—20 manns, og þurfti þvi mikið
í hverja máltíð, allra helst um jólin.
Varð þvi áður að baka mikið af
kökum úr rúgmjöli (en litið var að
því gert um sláturtímann),. og lika
lummur, úr nýmöluðu bankabyggi,
sem gert var aðeins fyrir hátíðir,
eða sérstök tækifæri. Hangikjötið
*) Slíkar jóla- og afmælisgjafir,
tel ég börnunum sjálfum verstar. Þær
orsaka öfund, ágirnd, heimtufekju
og vanþakklæti og leiða huga barns-
ins frá andlegri uppsprettu lífsins,
að forarvilpu eigingirninnar og
efnishyggjunnar.
var aðalmatur allra hátiða, og nægði
varla minna fyrir jólin en 2—3
sauðaföll og 1—2 ganglimir naut-
gripa.
Fyrst á jóladagsmorguninn fékk
hver sinn bolla, með sætu kaffi og
3 stórum, sykruðum lummum. Svo
fyrir hádegi mjólkur-grjónavelling,
þykkan ineð kanel og rúsinum, og
síðdegis hákúfaðan disk eða lítið
trog af mögru og feitu hangikjöti,
með flotstykki, köku og smjöri. (T.
d. var sauðalærum skipt í 2 eða
mest 3 stykki milli karlmanna).
Matur allur var skammtaður og hver
maður sat í sínu sæti, með askinn
sinn, diskinn eða trogið á hnjánum og
borðaði með sínum eigin spæni eða
sjálfskeiðing. Iiaffi með kandissykurs
ögn, mun hafa verið um hádegis-
bil og eftir kjötmatinn. Kirkjugest-
um mörgum var og veitt kaffi eftir
messu ■—- með rjóma og sykri, en
sjahlan öðru, nema þá „í staupinu“,
sem sumir bændur biðu eftir.
<>
<>
< >
<>
<>
< >
< >
<>
<>
Rafvélaverkstæði
Halldórs Ólafssonar
Njálsgötu 112 — Sími 4775
Framkvæmir:
Allar viðgerðir á rafmagns-
vélum og tækjum.
Rafmagnslagnir f verksm
og hús.
Spil. Karlmenn, konur og börn
spiluðu mikið, sérstaklega á jóladags
kvöldum, og karlmenn spiluðu víst
nálega á hverju einasta lielgidags-
kvöldi allan veturinn. Spilað var
púkk (6—8 menn), marías og kas-
ina, (2 m.), bónópartur, skelkur, gosi
og vist (4 m.), lauma og þjófur
(mismargir). En alkort og treikort
kunni þá ekki nema elsta fólkið.
V. G.
STJÖRNUSPÁ.
Frh. af bls. II
stæðismenn reyni að koma á sam-
komulagi um stjórn.
11. hás. — Venus ræður húsi
þessu. — Hefir góðar afstöður til
Mars og Satúrn, en slæmar til Sól-
ar, Tungls, Merkúrs og Neptúns,
svo að líklegt er að samvinna í þing
inu verði örðug og óvænt atvik
koma óþægilega við viðfangsefnin.
12. hús. — Neptún er í húsi þessu.
— Ekki heppileg afstaða fyrir betr-
unarhús, vinnuhæli og opinberar
stofnanir. Saknæmir verknaðir munu
koma í ljós.
Ritað Í4. nóv. 1949.
Kóngafundur í Teheran. — Ab-
dullah Transjordaníukonungur
hefir verið í heimboði hjá
shahinum af íran. Hér sjást þeir
hittast á flugvellinum í Teheran.
TILKYNNING
frá brunavarnaeftirliti ríkisins
um uppsetningu og notkun olíukyndingatækja.
Samkvæmt 26. grein reglugerðar um brunavarnir og
brunamál frá 10. október 1949, sem gengur í gildi 1.
jan. 1950, má einungis setja upp þau olíukynditæki utan
Reykjavíkur, sem viðurkennd hafa verið af brunavarna-
eftirliti ríkisins.
Með lilvísun til þessa, er hér með skorað á alla þá,
sem fást við smíði, sölu og uppsetningu slíkra tækja,
að senda hið fyrsta uppdrætti ásamt fullnægjandi lýs-
ingu af tækjum til verksmiðju- og vélaeftirlits í
Reykjavík, sem f. h. brunavarnaeftirlitsins liefir telcið
að sér eftirlit með því að tækin fullnægi öryggiskröfum
reglugerðarinnar.
Eftir 1. jan. 1950 er óheimilt að setja upp önnur
tæki en þau, sem hlotið hafa viðurkenningu verk-
smiðju- og vélaeftirlitsins.
BRUNAYARNAEFTIRLIT RlKISINS.
* <■< <■*■*<<<<<<< <<<<■*<<<<<<<<■*
sr
>r
> r
' r
V
>r
' r
>r
> r
ÁætiaSai1
>>
j .
j<
j<
>>
j<
j v
j <
j<
flugferðir í éí. 1949
(innanlands)
FRÁ REYKJAVÍK.
Sunnudaga:
Til Alcureyrar
- Vestmannaeyja
— Keflavíkur
M ánudaga:
Til Akureyrar
Norðfjarðar
Seyðisfjarðar
Vestmannaeyja
l'riðjudaga:
Til Akureyrar
Vestmannaeyja
Miðvikudaga:
Til Akureyrar
— Blönduóss
— Sauðárkróks
- Isafjarðar
Hólmavíkur
— Vestmannaeyja
Fimmtudaga:
Til Alcureyrar
— Reyðarfjarðar
— Fáskrúðsfjarðar
Vestmannaeyja
Föstudaga:
Til Akureyrar
— Hornafjarðar
— Fagurhólsmýrar
— Kirkjubæjar-
klausturs
— Vestmannaeyja
Laugardaga:
Til Akureyrar
— Blönduóss
— Sauðárkróks
Vestmannaeyja
— Isafjarðar
— Keflavíkur
Flugfélag íslands h.f.
;;