Fálkinn


Fálkinn - 09.12.1949, Blaðsíða 16

Fálkinn - 09.12.1949, Blaðsíða 16
16 FÁLKINN 3 3 % Fyrsti dieseltogari Islendinga „togari ársins 1949“ Dieseltogarar íslendinga|‘vekja á sér athygli fyrir fullkomnun og nýjungar. 3 ti. í % % Ú Hallveig1 Fróðadóttir. Hallveig Fróðadóttir, fyrsti dieseltogari Bæjarútgerðar Reykjavíkur, var nýlega valin sem „TOGARI ÁRSINS 1949“ af breska blaðinu „Daily Mail“, og tímaritið „Fishing News“ notaði þetta tækifæri til að birta ítarlega grein um Hallveigu, undir fyrirsögninni „DJARFLEG LAUSN Á TOGARAVANDA“, og fer blaðið á allan hátt hin- um lofsamlegustu orðum um skipið. Segir það dæmi um fyrsta flokks nýtísku skipasmíðar, og er það kallað hugsjón meistaranna um framfaraskip. Jafnframt er greint ítarlega frá öllu fyrirkomulagi skipsins, vélum og öðrum útbúnaði og allt talið vera með hinum fullkomnasta hætti og margar stór-athyglisverðar nýjungar, sérstaklega hversu djarflega eitt af erfiðustu vandamálum aflvéla í togurum er leyst. Aflvélar og hjálparvélar dieseltogaranna eru framleiddar af RUSTON & HORNSBY LTD., LINCOLN, en þeir eru stærstu vélaframleiðendur í Bretlandi. Það var vissulega engin tilviljun að þessu heimsþekkta fyrirtæki var falin bygging togaravélanna, því að í fulla tvo áratugi hefir RUSTON haft forustu um smíði og útbúnað véla fyrir breska dieseltogara. 3 3 3 •os Einkaumboðsmenn íyiir allar báta- og skipavélar frá Ruston og Hornsby Ltd. 3 S. Stefánsson & Co., h.f. Sími 5579. — Pósthólf 1006. Hafnarhúsinu Reykjavík.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.