Fálkinn


Fálkinn - 10.03.1950, Side 7

Fálkinn - 10.03.1950, Side 7
FÁLKINN 7 Rajendra Prasad lieitir hinn fyrsti lýðveldisforseti Indlands, sem tók við stjórn 26. janúar, er Indland varð lýðveldi, eftir að hafa verið keisaradæmi und- ir stjórn Englendinga í heila öld. um“ að ameriska lögreglan hef- ir tekið hann fastan hvað eftir annað, og honum veittist fyrst í stað erfitt að sannfæra hana um að hann væri ekki Hitler. Hins vegar hefir hann haft vit á að gera sér mat iir því að liann er svona líkur Hiller. Iiann sýnir sig á fjölleikahúsum og lætur taka myndir af sér fyrir háa borgun. Brúðurnar blessaðar. — Hálfum mánuði fyrir jól koma börnin í Kent í Englandi saman í gömlu St. Bótólfskirkjunni í Northfleet með brúðurnar sínar, bangsana og tuskuhundana, til þess að fá prestinn til að blessa leikföngin, við sérstaka barnaguðsþjónustu. - Iiér sést lítil telpa hlada fram brúðunni sinni til þess að láta prestinn blessa hana. Paradís vetrar-íþróttanna. — Myndin er frá St. Moritz, hin- um heimsf'ræga vetrarskemmti- stað í Sviss, en þangað dreymir alla þá um að komast, sem hafa gaman af vetraríþróttum. Hér sést einn af þeim, sem hafa haft efni á að veita sér ánægjuna: enski lmapinn Gordon Richards sem skemmtir sér við „curling“ til tilbreytingar frá hnakknum. Það er ekki hann! — Nei þeita er ekki Hitler, en þýskur er hann og heitir Heinrich Noll. Hann er svo líkur „foringjan- Sjónvarpið ódýrara. — / London stendur yfir um þessar mund- ir sýning á enskum útvarps- og sjónvarpstækjum. Mesta at- hygli vakti á sýningunni sjónvarpstæki eitt, sem hægt er að selja fyrir tæpar 1000 íslenskar lcrónur. Er það miklu lægra verð en tíðlcast hefir áður. — Hér á myndinni sést Herbert Morrison lordkanslari láta lítinn dreng opna fyrir rafstraum- inn og veita honum á öll tækin, við opnun sýningarinnar. „Ekta skjaldbökusúpa“. — 1 veislu borgarstjórans í London, sem haldin er á hverju ári kringum 9. nóvember, þegar borg- arstjóraskiptin fara’fram, er ávallt étin skjaldbökusúpa. Venju- Uga eru skjaldbökurnar sendar lifandi til London, en í þetta skipti var þeim slátrað í Vestur Indíum og sendar frosnar til Englands, svo að hraðfrystingin hefir líka rutt sér til rúms þar. Hver skjaldbaka vegur um 85 ldló og þessar skjaldbökur, sem þarf í borgarstjóraveisluna kosta um 800 krónur en úr þeim fáist 225 lítrar af súpu. Kokkarnir, sem matreiða í veisluna eru samtals 37. Konungleg heimsókn. — Moham med Zahir af Afganistan hefir verið i heimsókn í París, en henni þó ekki opinberri. Hér sést liann vera að „skoða bæinn“ á- samt afganska sendiherranum í París. Marcel Cerdan minnst. — Ilnefa leikarinn Marcel Cerdan fórst í flugslysi í fyrra og var það mikið harmsefni vinum hans og aðdáendum. Myndin er tekin af minningarhátíð sem haldin var í París í tilefni af fráfalli hnefaleikarans. Það er stéttabróðir hans, Laurent Dauthille, sem er að skoða hel- grímuna af Cerdan.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.