Fálkinn - 08.01.1954, Síða 7
FÁLKINN
7
ar ég sagði henni að Július iangaði
til að tala við hana. Hún snaraðist
frara úr rúrainu og á fætur og gaf sér
varla tíma til að snyrta sig, hún lét
sér nægja að púðra sig lítillega, síðan
þaut hún niður stigann.
„Elskan mín!“ heyrði ég að liann
sagði, og ég sá að þau héldust í hend-
ur. Síðan gengu þau saman niður í
suraanhúsið. Það var ánægjulegt að
horfa á þau. Eg mundi tæpast lengur
eftir því að fyrir skammri stundu
hafði Jegið við að hún færi í tang-
arnar á mér. Eg hugsaði um þau bæði
sem elskulega unglinga, er væru mjög
ástfangnir.
Suzy og Martin! Helen og Júlíus!
En ég var utanveltu!
Það var sannarlega leitt að ég skyldi
ckki vera ástfangin af Sebastian.
HÁLFRI stundu síðar kom Josephine
méð te handa mér. Eg heyrði að hún
fór upp á loft, en kom æðandi niður
aftur að vörmu spori. Augu hennar
voru uppglennt af skelfingu.
„Mademoiselle Helen er ekki uppi!“
stundi hún.
„Nei, hún fór út að ganga.“
„Út að ganga? Guð hjálpi mér!“
Eg fékk eigi skilið hvað olli þess-
um óskapa hugaræsingi. llelén þarfn-
aðist að minum dómi útiveru og heil-
brigðs lifs en ekki rúmlegu og dekurs.
„Útiloftið er henni liollt," sagði ég.
„Ilún er svo veikluð. Hvert fór hún,
Madame?“
„Það hefi ég ekki hugmynd um.“
Eg tók bókina og fór að lesa og gaf
með því til kynna að samtalinu væri
lokið. Josephine muldraði eitthvað i
barm sér og fór siðan aftur fram í eld-
húsið. En ég bafði af ásettu ráði talað
hátt til þess að þau heyrðu til mín,
og átti það að vera þeim nægileg að-
vörun. Josephinc var Suzy sérlega
auðsveip og ]iað var viðbúið að hún
rnyndi ekki láta sér vel lika það sem
hún vissi að var Suzy á móti skapi.
Ilelen skildi auðsjáanlega aðvörun
mína, þvd að fimm mínútum síðar kom
hún til mín — og var þá ein. Hún var
ljómandi af sælu og svipur hennar
bar öll einkenni stúlku sem nýlega
hefir verið kysst.
„Ó, Rosalind, þú ert svo góð,“ sagði
hún. „Lífið er dásamlegt."
„Hann er aðlaðandi piltur,“ sagði ég.
„Aðlaðandi?" endurtók hún lágt.
í sömu svifum heyrðum við í bif-
reið, Þau Suzy og Martin voru að
koma. Suzy var jafn sæl með sig og
lcöttur sem er að ljúka við að lepja
mjög Ijúffengan rjóma, en ég var ekki
viss um að Martin liði alveg jafnvel.
Josepliine hljóp til móts við þau.
Hún tók Suzy afsíðis og talaði við
hana í hálfum hljóðum. Svipur Suzy
harðnaði en hún svaraði 'henni engu.
Hún kom til okkar.
„Jæja, þú fórst þá á fætur?“ sagði
hún við Helen.
„Já,“ sagði Helen. Meira að' segja
raddblærinn kom upþ um hana.
„Eg kem með Toby heilan á liúfi
heim,“ sgaði Suzy.
„Nú, fórstu með hann?“ spurði
Helen. Það leyndi sér ekki að hún
hafði alls ekki saknað hans.
„Sagði Rosalind þér það ekki?“
„Það held ég ekki,“ sagði Helen.
Suzy starði steinhissa á systur sina.
Helen kom æ meira upp um sig með
hverri mínútunni, hugsaði ég. Var
raunar nokkuð við það að athuga?
Hvers vegna segir hún ekki Suzy frá
því að hún ætli sér að hitta Júlíus
hvar og hvenær sem hana langi til
]iess. Hann skortir ef lil vill kjark til
þess.
Suzy gafst upp við Helen og sneri
sér að mér. Mér var fyllilega ljóst
að liún varð að skeyta skapi sínu á
einhverjum.
„Dagurinn var okkur sérlega á-
nægjulegur,“ sagði hún. „Við funduni
dásamlegan stað þar sem við gátum
verið í næði, þar sátum við og horfð-
um út á himinblátt vatnið og eyjarnar.
Og þegar okkur var farið að leiðasl
þar ókum við til Sables d’Or. Það
er sannarlega ekkert undarlegt að
margir skuli kjósa að eyða hveiti-
brauðsdögunum þar — staðurinn er
hreinasta paradís!“
Hún gerði eins mikið úr þessu og
henni var frekast unnt, en mér sýnd-
ist Martin ekki falla það vel í geð.
Hann var ekki svo forhertur'að liann
gæti komið svona svívirðilega fram
við mig — og jafnframt notið þess í
rikum mæli.
Rétt i iþví hringdi síminn og Suzy
flýtti sér inn. Þegar hún kom aftur
virtist hún hafa gleymt yfirsjón Hel-
enar, að minnsta kosti talaði hún ekki
meira um hana. Martin blandaði víni
í glös handa okkur og á yfirborðinu
virtist allt í himnalagi. Helen brosti
öðru hvoru, Suzy var hugsandi á svip,
en Martin var sýnilega áhyggjufnllur.
Eg var of reið til að hafa minnstu
samúð með thonum.
„En hvað þið eruð bæði raunaleg
á svipinn!" sagði Suzy. „Martin, ])ú
ættir að bjóða Rosalind út með þér.
Hún hefir verið liér ein í allan dag. Þú
gætir fengið bifreiðina lánaða, ef
ykknr langði til að skoða lífið i spila-
vítinu. Þar er sannarlega margt að
sjá, sérkennilegt fólk og fallega kjóla.
Eg get ekki komið með i þetta skipti,
það þætti ekki viðeigandi svona rétt
eftir jarðarförina. En það er hins veg-
ar engin ástæða til þess að þið sitjið
hér og látið ykkur leiðast."
Mér til mikillar undrunar virtist
Martin létta við þessa uppástungu.
„Þakka þér fyrir, Suzy, þetta er vel
boðið. Við skulum fara Rosalind, mér
stæði aneira að segja á sama þótt ég
tapaði peningum þar — i smáum stíl
auðvitað!
Ég bjóst til andmæla, en hætti þó
við það á síðustu stundu. Mér virtist
það hámark ósvífni, að Suzy skyldi
bjóða mér eiginmann minn á þennan
hátt — rétt eins og hún hefði eitthvað
yfir honum að segja! Henni fannst ef-
laust sjálfsagt að við skiptumst á um
hann, en ég var svo illgjörn að vona
að slíkt fyrirkomulag reyndist Martin
full erfitt til lengdar!“
VIÐ lögðum af stað eftir kvöldverð-
inn. Martin ók ekki beinustu leið held-
ur fór hann veginn sem lá gegnum
mörg smáþorp á vinstri bakka Rance
fljótsins.
„Þetta er ekki Iciðin að spilavítinu,"
sagði ég.
„Það er nógur tími til að taka stefnu
þangað síðar. Ég verð að tala við þig,
andrúmsloftið í ótætis Bláskógahúsinu
var bókstaflega að kæfa mig.“
Ég svaraði þessu engu. Við ókum
eftir krókóttum vegarspottum uns við
komum á breiðan, bcinan veg. Innan
skamms komum við að grasflöt i skjóli
hárra trjáa, og þar lagði Martin bif-
reiðinni og sneri sér að mér.
„Við skulum ræða málið til hlitar,“
sagði hann.
„Ég fæ ekki skilið að nokkurrar
umræðu sé þörf,“ svaraði ég. „Við
höfum bæði sagt það sem segja þarf
— i bili að minnsta kosti. Komi síðar
að því að þið Suzy komist að raun um
að hér sé um raunverulega sanna ást
GLEÐILEGT NÝÁR! -g.
Þökk fyrir mðskiptin á liðna árinu.
Herbertsprent
& GLEÐILEGT NÝÁR! ^
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
v
Landssmiðjan
L.
r
GLEÐILEGT NÝÁR! ^
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Sverrir Bernhöft h.f.
GLEÐILEGT NÝÁR! g
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Slippfélagið í Reykjavík h.f.
L
r-
GLEÐILEGT NÝÁR! ^
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
H. Biering, Laugavegi 6
Innilegustu nýársóskir færum vér öllum
fjær og nær.
Viðtækjaverslun ríkisins