Fálkinn - 29.01.1954, Síða 13
FÁLKINN
13
hundruð. Þegar ég hugsa um alla góðu ávext-
ina, sem þér hafið fengið frá Gulwer House
og gefið börnunum. Og kjúklingana og ....
nei, það kemur ekki til mála!“
Sir John var ekki vanur andmælum og
kunni ekki við þau. En 1 þetta skipti hafði
hann verið við þessu búinn. Ungfrú Shefford,
læknir og hjúkrunarkona hafa litið eftir mér
daglega. Ég hefi fengið óvenjulega góðan mat,
sem var færður mér upp meðan ég var rúm-
fastur. Ég hefi fengið nákvæmlega þá hjúkr-
un, sem ég fékk á sjúkrahúsinu, og ég krefst
þess að fá að borga það sama, sem ég borgaði
þar. Það er satt að hér hefir verið farið með
mig eins og vin og gest, svo að vera mín
hérna hefir orðið skemmtilegri en hún hefði
getað orðið á nokkru sjúkrahúsi, hversu mik-
ið sem ég hefði borgað. En það er engin
ástæða fyrir mig að borga ekki fullt verð
fyrir því.“
Anna virtist jafn ákveðin: „Þetta er of
mikið!“
„Yður veitir ekki af peningunum." Sir John
sat við sinn keip.
„Það er satt. En það er okkar mál en ekki
yðar. Við getum ekki okrað á yður, þó að við
höfum verið svo óforsjál að komast í skuldir."
„Ég vil ekki nota orðið óforsjáll um föður
yðar. Hann er mannvinur og göfugur og góður
maður.“
Festan varð minni í svip önnu, og sir John
notaði tækifærið og tók upp ávísunarblað úr
vasanum, útfyllt og undirskrifað, og lagði það
á eldhúsborðið. „Pabbi . . . .“ sagði Anna og
dró það við sig . . . .“ ja, hann skilur ekki að
maður getur ekki borgað húsaleigu og reikn-
inga með manngæsku og alúð. Honum finnst
það vera svo mikil hlunnindi að fá að hjálpa
líðandi fólki, að hann vill ekki taka við neinni
borgun fyrir það.“
„Nei, hann er svo hygginn að hann skilur.
hve lítils peningarnir eru í raun og veru í
samanburði við það, sem ekki verður keypt
fyxár peninga hér í veröldinni,“ svaraði sir
John um hæl. „Og það er þess vegna, sem ég
vona að þér hættið þessum mótmælum en
takið við því, sem ég álít hæfilega borgun.“
„En ég get það ekki,“ sagði Anna og dökkn-
aði í framan. „Ég .... það væri betra að þér
færuð, sir John! Það er vegna þess að ég get
ekki tekið á móti svona miklum peningum af
yður .... ég vil ekki að þér verðið hérna
áfram!“
„Hvers vegna ekki?“ Spurningin kom eins
og skot úr byssu. Andlitið var jafn einbeitt
og áður.
„Af því að þér umturnið öllu hérna á heim-
ilinu! Þér skiljið ekki hvað þér ei’uð að gera,
en ég skil það, og það kemur í minn blut að
reyna að koma á jafnvægi aftur, þegar þér
eruð farinn. Og það verður sannarlega mikill
vandi! Pabba finnst svo gaman að sitja og
rabba við yður á kvöldin. Hvernig haldið þér
að honum þyki, þegar hann hefir engan nema
okkur, heimska krakkana, að tala við, eftir
að hafa vanist að tala við gáfaðan og í’eyndan
mann eins og yður. Pabbi hafði ekki vanist
öðrum en okkur áður, en nú- Og Moira?“ Anna
hafði talað slitrótt og hikandi fyrst í stað,
en nú fossaði orðaflaumurinn út úr henni,
eins og flóðgátt opnaðist. „Moix’a dáist að yð-
ur. Hún verður skotin mánaðarlega, þegar
'hún sér nýjan mann á pósthúsinu eða í lest-
inni til Melchester, en yður hefir hún hérna
í húsinu og sér yður daglega. Hún hefir alls
ekki litið í bækurnar sínar síðan þér komuð
hingað, og hvernig ætti hún að ná prófi með
því háttalagi? En hún skeytir ekkert um það,
hún greiðir bara hárið með nýju lagi á hverj-
um morgni, málar sig í framan og sníkir pen-
inga af mér til að kaupa sér alls konar óþarfa
fyrir — í von um að hafa áhrif á yðui’. Já, við
vitum hve barnalegt þetta er og að það líður
hjá. En áður en að því kemur sofnar hún
grátandi á hverju kvöldi, og ekki verður hún
duglegri við lesturinn á meðan. En ef hún
nær ekki prófi fær hún enga stöðu og hvei’nig
í ósköpunum eigum við þá að koma tvíburun-
um í skóla í haust? Hvað snertir jxetta yður,
sem farið yðar leið þegar þér eruð orðinn
leiður á okkur, og hafið innan viku gleymt
hvað við heitum .... en það kernur okkur
við, að þér hafið umskipti á tilveru okk-
ar.........“
Maðurinn á stólnum hlustaði á, án þess að
hafa augun af ungu stúlkunni með roðann
í kinnunum, leiftrið i augunum og hendurnar,
sem alltaf voi’u að þukla á margþvegnum
bómullarkjólnum. I sir John hrærðust hugs-
anir, sem hann gat ekki túlkað í orðum, vegna
þess að aldrei var talað um slíkt í hans ver-
öld. En hann hefði langað til að segja við
hana: .... „Jæja, svo að þér haldið að ég
gleymi ykkur eftir viku? Haldið þér að mað-
ur gleymi fyrsta raunverulega heimilinu, sem
maður hefir komið á? Fyrstu fjölskyldunni
sem maður hefir hitt, sem vii’kilega er ein
hjörð — þar sem hverjum einum þykir vænt
um hina og reynir að gera eitthvað fyrir
hina? Þar sem ekki er metið til peninga, ekki
í velgengni né ávinningi? Þar sem fólkið er
svo hjartagott að það lætur aðskotadýr, sem
af tilviljun hefir lent á heimilinu út af bil-
slysi, njóta þess og verða svo ánægðan, að
hann á bágt með að slíta sig burt af heim-
ilinu . .. .“
Þetta og margt annað hefði sir John
Melton getað sagt við önnu Shefford. En hann
sagði það ekki, hann sat bara og hugsaði
það, bak við ergilega stillt en þó dálítið í’auna-
legt andlit. Og svo tók hann eftir að síminn
hringdi, að Anna stóð þarna og var að tala,
náföl, stuttar setningar — að hún lagði frá
sér símatólið og stóð eins og steini lostin.
„Hvað er að? Hvað hefir komið fyrir?“
spurði hann óðamála.
„Pabbi .... hann var bilaður fyrir hjart-
anu, við vissum það, en . ... Hann er dáinn!“
Hár, grannur maður með stillilegt andlit
steig út úr svörtum Rolls Royce-bíl og hringdi
dyrabjöllunni. Enginn svaraði, það var eins
og hi’ingingin bergmálaði í tómu húsinu, og
svo haltraði hann út í garðinn. Hver hefði
trúað að hann hefði hjartslátt af eftirvæn-
ingu, að höndin hélt svo fast um stafinn að
hnúarnir hvítnuðu.
En sir John Melton hafði tekið ákvörðun.
Hann hafði komist að því hjá hinum læknun-
um í héraðinu hvernig fjárhag Sheffords var
háttað, eftir að læknirinn féll frá. Ástæð-
urnar voru enn lakari en honum hafði dottið
í hug.
„Ég sendi aðstoðarstúlkuna mína til að
hjálpa önnu til að athuga skjöl föður hennar,“
hafði Aston læknir sagt. „Shefford var eng-
inn fjái’málamaður, ég vissi það, en að svona
illa væri ástatt, hafði ég enga hugmvnd um.
Húsið er veðsett upp í mæni, skattar og reikn-
ingar óborgað, og það eina útistandandi eru
ADAMSON
Dynamit.