Fálkinn - 21.05.1954, Side 3
FÁLKINN
3
Finnska iðnsýningin
Olle Herold, sýningarstjóri frá Finn landi, sýnir forseta íslands, herra
Ásgeiri Ásgeirssyni, finnsku iðnsýninguna.
Finnsk iðnsýning var opnuð í Lista-
mannaskálanum s.l. laugardag. Síðan
hefir ætið vcrið látlaus straumur
fólks þangað, því að marga fýsir að
kynna sér hinn glæsilega varning,
sem ýmsir finnskir framleiðendur
sýna þar. Þá mun hinn mikli vinar-
hugur, sem íslendingar bera i garð
Finna, og sú hlýja, sem íslendingar
hafa jafnan fundið leggja til sín frá
finnsku þjóðinni, skýra að nokkru
hina miklu aðsókn að sýning-
unni. Tilhögun sýningarinnar er
einnig með afbrigðum góð, og ljóst
er af öllu, að styrkar hendur hafa
verið við stýrið við allan undirbúning.
Sýningin var formlega opnuð með
hátíðlegri athöfn í Tjarnarbió siðdegis
á laugardaginn. Forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, verslunar- og iðn-
aðarmálaráðherra Finna, Penna Ter-
vo, dr. Kristinn Guðmundsson utan-
rikisráðherra, Eggert Kristjánsson
stórkaupm. og Vilhjálmur Þór for-
stjóri komu þar fram og leiknir voru
þjóðsöngvar heggja landanna. Að lok-
um var kvikmyndasýning.
Af þeim vörum, sem á sýningunni
eru, ber mest á trjá- og pappírsvörum
ásamt málmiðnaðarvörum ýmiss kon-
ar, en skinna- og ieðurvörur, postulín,
keramik, skartgripir, sælgæti o. fl.
setur einnig svip á sýninguna.
Um 71% af flatarmáli Finnlands er
þakið skógi og er því skóglendi að
tiltölu við stærð landsins meira í
Finnlandi, en nokkru öðru landi. Fura,
greni og hirki eru einu trjátegundirn-
ar, sein venjulega þýðingu liafa (97%
alls nytjaviðar).
Finnar eru háðir trjávörufram-
leiðslunni og markaðnum, hvað út-
flutning snertir, í jafnrikum mæli og
íslendingar fiskfrandeiðslunni og
fiskmarkaðnum. Þannig kemur 80—
95% af útflutningsverðmæti Finna frá
timbur- og pappirsiðnaðinum, svipað
frá hvorum.
Af fyrirtækjum, sem sýna timbur,
unnið eða óunnið að mestu, má nefna
Enzo-Gutzeit Oy, eitt stærsta timbur-
TROFIM LYSENKO, hinn frægi, en
umdeildi rússneski vísindamaður, hef-
ir nú fengið skömm í hattinn hjá
kommúnistaflokki landsins fyrir
erfðakenningar sínar.
iðnaðarfyrirtæki Finnlands, sem á
miklar verksmiðjur og stórt athafna-
svæði í Kotka, aðaltimburútflutnings-
borg tandsins, Kolho Oy, Osakeylitiö
Savo í vatnaborginni Kuopio, Thomés
Skogsbyrá Ab og Hackman & Co. Yfir
90% af byggingartimbri, sem notað
er hér á landi, kemur frá Finnlandi.
Mjög fjölbreytt úrval er af pappírs-
vörum á sýningunni. Hin heimsþekktu
fyrirtæki eða fyrirtækjasamsteyp-
ur Finska Pappersbruksföreningin
(Finnish Paper Mills’ Association) og
Finska Pappers- och Kartongförádl-
ares Förening sýna alls kyns um-
búðapappir, pappírssekki, pappírs-
poka, skrifpappír, hillupappir, servi-
ettur og margt fleira. Blaðapappír
Finska Pappersbrukföreningens er
þekklur fyrir gæði hér á landi.
Sýningarsvæði Friitalan Nahka Oy
i Ulvila vekur og verðskuldaða at-
liygli. Það sýnir rauðskinn, leður,
teðurföt og teðurfeldi, töskur o. fl.
Fyrirtækið kaupir mikið af söltuðum
gærum frá íslandi.
Vartsila-Koncernen Ab í Helsing-
fors sýnir leirvörur og postulín til
heimilisnota og steinung (fajans) til
skrauts og heimilisnota. Þar eru list-
munir úr gleri og ýmiss konar gler-
vörur. Margir staldra lengi við að
skoða þennan smekklega varning.
Kupittaan Saviosakeyhtiö, fjölbreytt-
asta leirvörugerð Finnlands, sýnir
einnig fallegt keramik.
Af málmiðnaðarfyrirtækjum, sem
sýna, má nefna Aluminitehdas Ab,
sem sýnir t. d. eldhúsáhöld úr alúm-
íni, sem vekja athygli, Ab Fr. Seeberg
Oy, er flytja út hina þekktu finnsku
„pukkuo-hnífa frá Isakki Jávenpaá
Oy í Kaúhava, og mörg fyrirtæki i
útflutningssambandi finnskra málm-
iðnrekenda, Metax Andelslag. í því
sölusambandi eru 37 verksmiðjur og 11
skipasmíðastöðvar með 35000 verka-
menn i þjónustu sinni. Meðal sýning-
arvara þessara fyrirtækja eru jarð-
yrkjuáhöld, rafmagnsvörur ýmiss kon-
ar — svo sem strengir og rör, spennar,
og mælar — vasaljós, eldavélar, hrað-
ASHRAF,
tvíburasystir sjahsins af Persíu, sem
var flæmd í útlegð í stjórnartíð
Mossadeks fyrir þátttöku í byltingar-
tilraun. Hún er nú komin heim.
suðupottar, alls konar mótorar, þjalir,
raspar, byssur o. m. fl.
Þá eru gúmiðnaðarvörur ýmiss kon-
ar á sýningunni, t. d. skjólfatnaður
frá Suomen Gummitehdas Osakeyhtiö,
finnskir skartgripir, gerðir eftir forn-
minjum, frá Kalevala Koru Oy, og
eru þeir til sölu fyrir sýningargesti
•eins og hið ijúffenga súkkulaði frá Oy
Karl Fazer og slíðruðu hnifarnir
(„dolkarnir") frá Seeberg. Þá má
nefna handofna vefnaðarvöru frá
Helmi Vuorelma Oy og skemmtilega
mynda- og skipalíkanásýningu Sam-
bands skipasmíðastöðva.
Hér er ekki rúm fyrir frekari upp-
talningu, en á hinu litla sýningarsvæði
i Listamannaskálanum getur að líta
margt atliyglisverðra muna og mynda,
sem hér hefir orðið að hlaupa yfir.
Hugmyndin um finnska iðnsýningu
liér á landi er orðin gömul. Henni
var fyrst lireyft árið 1948. Sökum vax-
andi viðskipta milli landanna og
margs annars hafa skilyrðin til slikrar
sýningar batnað mjög. Á síðasta ári
keyptu Finnar vörur fyrir tæplega
54 milljónir króna hér á landi og ís-
lendingar keyptu af þeim vörur fyrir
tæplega 50 milljónir króna. Erik Jur-
anto, aðalræðismaður fslendinga í
Finnlandi, var mikill hvatamaður að
sýningunni frá öndverðu. Telur Olle
Herokl, forstjóri, frá Finlands Mássa,
AUDR.EY HEPURN, „lcikkona ársins
1953“. Hún hefir vakið gífurlega at-
hygli bæði fyrir leik sinn í ýmsum
kvikmyndum og lcikritum í Evrópu
og Ameríku.
sem hefir á hendi sýningarstjórn fyrir
finnsku framkvæmdanefndina, liðsinni
hans og þeirra Vilhjálms Þór, for-
stjóra, og Eggerts Kristjánssonar,
stórkaupmanns, sem skipa hina is-
lensku framkvæmdastjórn sýningar-
innar, hafa orðið þungt á metunum við
uppsetningu sýningarinnar. Sýningar-
arkitekt er Henry Tornia auglýsinga-
teiknari, en upplýsingastjórar Runar
Kockberg, deildarstjóri, og Seppo
Seppola, verkfræðingur. íslenskir að-
stoðarmenn eru Gunnar Eggertsson og
Hermann Þorsteinsson.
Allan tímann, sem sýningin stend-
ur, fá sýningargestir ókeypis aðgang
að kvikmyndasýningum i Tjarnarbió,
þar sem sýndar verða finnskar iðn-
aðar- og ferðakvikmyndir.
Það má telja fullvíst, að iðnsýning
þessi stuðli að frekari viðskiptum
milli íslands og Finnlands. Þjóðirnar
hafa gagnkvæma þörf íyrir vörur
hvorrar annarrar. Finnar hafa m. a.
keypt saltsíld, lýsi og saltaðar gærur
hér á landi og voru á siðasta ári t. d.
aðalkaupendur saltsíldarinnar. Telja
má fullvíst, að sölu þeirra afurða og
ýmissa annarra megi auka þangað.
Jafnframt því hafa íslendingar mikla
þörf fyrir aðalframleiðsluvörur Finna,
svo sem timbur, pappir og pappírs-
vörur, málmiðnðar- og rafmagnsvör-
ur ýmiss konar og margt fleira. *
CARY COOPER,
hinn þekkti bandaríski leikari, hefir
fengið tilboð um að leika í rússneskri
kvikmynd. Það er hins vegar óvíst,
hvort hann tekur því.