Fálkinn


Fálkinn - 09.07.1954, Page 3

Fálkinn - 09.07.1954, Page 3
FÁLKINN 3 Sólmyrkvinn 30. júní Sólin myrkvuð. Mikill viðbúnaður var hafður fyrir sólmyrkvann 30. júní, einkum var mikið um að vera austur í Mýrdal og i Landeyjunum, þar sem skilyrði voru góð til athugana á almyrkvanum. Almyrkvi varð aðeins syðst á land- inu, en deildarmyrkvi um land allt. Deildarmyrkvi varð hér síðast 1945, en almyrkvi hefir ekki orðið hér á landi í tíð núlifandi manna. Vísindamenn um gjörvallan heim höfðu mikinn viðbúnað á þeim stöðum, sem almyrkvinn varð, til þess að geta gert ýmiss konar at- huganir og mælingar. Hér á landi hafði Rannsóknaráð ríkisins for- göngu um athuganirnar undir forystu Þorbjörns Sigurgeirssonar, formanns rannsóknaráðsins, en með honum voru erlendir og innlendir sérfræð- ingar. Miðstöð athugananna var að Guðnastöðum í Landeyjum. Fjöldi fólks úr Reykjavík og víða af landinu fór austur í Skaftafells- eða Rangárvallasýslu. eða til Vestmanna- eyja til að fylgjast sem best með al- myrkvanum og ýmsir tóku sér flugfar um ]>að leyti, sem myrkvinn stóð sem hæst. Hinir voru þó fleiri, sem létu sér nægja deildarmyrkvann og fóru hvergi. Mestur varð myrkvinn Jaust eftir kl. 12, en alls stóð hann frá kl. 10.40 til kl. 13.15. í Reykjavík var aðeins 1/72 liluti af þvermáli sólar sýnilegur, er myrkvinn stóð sem hæst. Almyrkv- inn sjálfur stóð i 1 ¥2 minútu á þeim stöðum á landinu, þar sem hann stóð lengst, en það var i Dyrhólaey og í Vestmannaeyjum. Almenningur hafði verið stranglega aðvaraður um að horfa ekki á sól- myrkvann berum augum, ])vi að af því gætu orsakast varanlegar skemmd- ir á augunum. Algengast var að gler- plötur, sótaðar í kertareyk, væru not- aðar sem augnhlifar, en logsuðugler- augu voru einnig mikið notuð. Venju- leg sólgleraugu nægðu ekki. Meðan myrkvinn stóð sem hæst, kólnaði mjög og birtublærinn varð óhugnanlegur. Svo var sem tíbrá væri yfir öllu og virtist landið ganga í bylgjum. * Churchill og Eisenhower hittast Fundur þeirra Churchills og Eisenhowers og helstu ráðgjafa þeirra í Was- hington hefir verið tíðræddur í heimsfréttunum. Þar voru rædd ýmis helstu vandamálin, sem stórveldin eiga við að glíma um þessar mundir. Svo virðist sem fundurinn hafi tengt Breta og Bandaríkjamenn sterkari pólitískum bönd- um, en á því var farið að brydda, að stjórnir landanna hefðu ólíkar skoðanir á mörgum helstu vandamálunum og þeim leiðum, sem farnar skyldu til lausnar. Á járnbrautum og sporvögnum i Chile er það ekki aJdurinn heldur hæðin, sem ræður því livort fólk kemst af með barnafarmiða. Hefði ekki verið réttara að láta gildleikann ráða? / — Enskt l'irma er nú farið að fram- leiða meðal gegn kviða. Fólk sem tek- ur það gengur brosandi inn til tann- læknisins og kyssir lögtaksmanninn þegar hann kemur í heimsókn. Ung og falleg japönsk kona, sem var gift Ástralíumanni ienti i vanda hjá útiendingaeftirlitinu þegar hún kom til Sydney. Henni var neitað um landgönguleyfi. Eftir lauga leit fannst loks maðurinn hennar, en hann liafði ekki átt von á konu sinni og tók þess vegna ekki ó móti henni. Vandræðin stöfðuðu af þvi að konan aat ekki sagt nafn mannsins síns — vissi ekki eftirnafnið. „Allir kalla liann S'nowy eða Ginger, og það geri ég iika,“ sagði hún. Ekki kom dropi úr lofti í 525 ár á rústirnar af fornu borginni Chan- Chan i Perú, að undantekinni sam- felldri sjö daga rigningu árið 1925. Sólmyrkvinn á ýmsum stigum. Fyrsta myndin (lcngst til vinstri) er tekin rétt fyrir hádegi, og hefir tungiið myrkvað talsverðan hluta sólarinnar. Næsta mynd (í miðju sýnir myrkvann eins og hann sást mestur frá Reykjavík, en sú síðasta (lengst til hægri) sýnir algjöran sólmyrkva. Kórónan sést sem daufur geisla- baugur utan um myrkvaða sólina. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.