Fálkinn - 11.02.1955, Síða 5
FÁLKINN
5
bætir við: „Það er svo mikið enskt
i mér og mikið ítalskt líka, að stond-
um flýgst þetta á. Kalda enska blóðið
í mér er í sífelldum erjum við lieita
italska blóðið — og stundum veit ég
ekkert livernig sú viðureign fer.
Þó að flestir telji hana ekta ítalska
stiilku er hún ensk að hálfu leyti.
Móðir hennar er fædd i Englandi. Og
af því að þessi móðir hefir liaft svo
rik áhrif á dóttur sína, hefst saga
þessarar frægu stúlku eiginlega í Eng-
landi. Silvana á marga enska ætt-
ingja. Einn þeirra er móðursystir
hennar, frú Nixon, sem nú á heima
í Ewell, Surrey. Og systir Silvönu
dvelur langdvölum i Englandi og
lærir dans þar.
Áður en við byrjum að segja sögu
Silvönu skulum við hverfa aftur i
tímann. Við komum í gamalt og virðu-
legt hús i Surrey, í útjaðri London,
i byrjun þessarar aldar. Þar býr
maður sem heitir John Webb. Hann
var byggingameistari og konan hans
átti þrjár dætur og einn son.
Yngsta dóttirin liét Ivy. Hún hafði
erft reglulegt andlitsfall föður síns
og mikið af rólyndi hans. Hún var
ólík systrum sinum að því leyti að
hún komst sjaldan úr jafnvægi. Hún
tók lifinu eins og það var og undi
glöð við sitt. Flestir mundu hafa
spáð því, að hún yrði síðust systranna
til að verða dauð-ástfangin af ungum
og rómantískum ítala. En það var
Ivy sem gerði það, sem sist mátti
búast við: luin giftist Sikileyjarbúa,
sem hafði komið til London til að
fuiinuma sig sem veitingaþjónn.
Amadeo Mangano féll aldrei vel í
Englandi. Hann langaði ávallt heim
til ítaliu. Og það varð sorg i Webbs-
fjölskyldunni er Ivy sagði frá því
einn daginn, að nú ætluðu þau að
setjast að i Ítalíu. Vafalaust mundi
ævi Silvönu hafa orðið önnur, ef
hjónin hefðu haldið áfram að eiga
heiina í London.
Amadeo. Mangano hafði ekki að
neinu starfi að hverfa er liann kom
aftur til Ítalíu. Hann langaði ekki til
Stjörnulestur
eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 22. febr. 1955.
Alþjóðayfirlit.
Vatnsmerkin eru yfirgnæfandi í á-
hrifum. Tilfinningarnar munu mjög
ráðandi og hafa mikil áhrif. Aðal-
nierkin eru cinnig yfirgnæfandi i á-
lirifum og því munu framkvæmdir
miklar, en ekki að sama skapi vel
yfirvegaðar. Dulhyggja og dulfræði
munu ná frekari tökum og hafa áhrif.
á afstöðu manna og ákvarðanir. —
Þetta birtist einnig í tölum dagsins,
sem nýja tunglið springur út. — Sam-
stæða Júpíters og Urans í krabba geta
haft áhrif á tilfinningarnar og styrkt
þá afstöðu að einliverju leyti. Hún
gæti og tafið siglingar milli íslands og
annarra landa. Kvillar gætu komið
upp og orðið áberandi. Næstu áhrif
að halda þjónsstarfinu áfram. Fékk
hann til bráðabirgða sölumannsstarf
hjá matvælaverslun. Ivy fékk gott
tækifæri til að kynnast liinu nýja
landi, þvi að hún var oft með manni
sinum í söluferðum hans.
En þvi varð hún að hætta er hún
varð þunguð i fyrsta sinn. Þau hjónin
fóru til Ilóm og Amadeo fékk undir-
tyllustarf lijá vöruflutningafyrirtæki.
Það var drengur sem fæddist fyrst.
En 21. apríl 1930 eignuðust þau dótt-
ur, sem var skirð Silvana. Svo bætt-
ust tvær dætur við. Þau áttu heima
í íbúðarkytru i San Giovanni, einu
aumlegasta hverfinu í Rómaborg. En
heimilið var hreint og þokkalegt.
Amadeo átti fullt í fangi með að fram-
fleyta fjölskyldunni, og Ivy gleymdi
móðurmólinu. Silvana ólst upp eins og
önnur itölsk börn við þröngan kost, og
engum kom til hugar að hún yrði
heimsfræg átján ára gömul.
Næst kemur: Silvana fegurðar-
drottning í Róm.
hennar eru andleg og dulhyggjukennd,
en hæpið að þau áhrif komi verulega
í ljós.
Lundúnir. — Nýja tunglið i 8. húsi.
Dauðsföll og dánartala gæti vakið at-
hygli og vcitt alvarleg eftirtekt. Þetta
gæti borið á góma i þinginu. — Nep-
tún í 3. húsi. Truflanir í samgöngum
og flutningum gæti komið i ljós og
tafir vegna snjóa, þoku o. fl. — Satúrn
i 4. lúisi. Slæm afstaða fyrir land-
búnaðinn og andstaða stjórnarinnar
færist í aukana. Merkúr í 7. húsi. Um-
ræður miklar um viðskiptin. við önn-
ur lönd. Líklegt að tafir ýmsar komi
til greina frá bændum og hinum
íhaldssamari öflum. — Mars i 10. húsi.
Stjórnin á i baráttu, jafnvel í þinginu,
út af erlendum viðskiptum og athöfn-
um. — Júpíter og Úran í 11. húsi.
Urgur gæti komið upp i þinginu út
af ýmsum utanaðkomandi viðfangs-
efnum.
Berlín. — Nýja tunglið í 7. húsi. —
Utanríkismálin undir mjög áberandi
áhrifum og veitt mikil athygli. Góð
og sterk áhrif frá utanríkissiglingum
og verslun og dugnaður vex i þeim
efnum. En slæm áhrif frá þinginu. —
Plútó i 1. húsi. Misgerðir koma i Ijós
sem nú eru i leyndum. — Neptún í 3.
liúsi. Slæm áhirf á flutninga og sam-
göngur, blöð, bækur og útgáfu og
fréttaflutning og útvarp. — Satúrn i
4. húsi. Slæm afstaða stjórnarinnar og
andstaðan eykst. — Landbúnaðurinn
undir slæmum óhrifum. Kuldar í
veðri. — Venus i 5. húsi. Afkoma leik-
luisa ætti að vera sæmileg, þó munu
tekjur fremur rýrar. — Merkúr ræður
0. húsi. Slæm afstaða til Satúrns í 4.
húsi. Kvillar munu áberandi og viss-
ara að verjast kælingu. — Mars i 9.
húsi. Urgur meðal manna á flutninga-
flotanum og eldur gæti komið upp i
skipi. — Júpíter og Úran i 11. húsi.
Barátta í þinginu og rekstur mála
undir hindrunum.
Moskóva. — Sól og Tungl í 6. húsi.
Vcrkamenn og afstöðu þeirra veitt
mikil atliygli. Barátta á bak við tjöld-
in og mun þeim nokkuð ágengt i því.
— Neptún i 2. húsi. Óóbyggilegar fjár-
málahreyfingar og óstöðugar. — Sat-
úrn í 3. húsi. Tafir í samgöngum og
flutningum, fréttaflutningi, bóka- og
blaðaútgáfu. — Venus í 5. húsi. Hefir
slæmar afstöðu. Leikarar og leikhús
í örðugleikum og tafir koma til greina.
— Mars í 8. húsi. Dánartala mun
liækka verulega, hitasóttir og bólgur
orsökin, einkum í höfði. — Júpíter
og Úran í 11. húsi. Er álitamál um
áhrif þessi. Þau gætu eytt hvert öðru.
Líklegt að urgur og óánægja komi i
ljós.
Tokyó. — Nýja tunglið í 3. húsi.
Flutningar, samgöngur, fréttaþjón-
usta, póstur og sími, blöð og bækur
undir áberandi áhrifum. Þó er Hklegt
að góðgerðastofnanir komi frekar til
greina. — Venus í 2. húsi. Fjármál,
fjárhreyfingar munu undir athuga-
verðum áhrifum, því að afstöðurnar
eru slæmar. — Mars í 4. lnisi. Slæm af-
staða gagnvart stjórninni og andstað-
an gegn lienni mun frekar vaxa. —
Júpíter og Úran i 8. húsi. Dánartala
háttsettra manna mun aukast og op-
inberar erfðir munu litlar eða engar.
— Neptún í 10. húsi. Hætt við að
stjórnin eigi í erfiðleikum nokkrum.
— Satúrn i 11. húsi. Tafir og truflan-
ir í þinginu og jjingmál ganga treg-
lega.
Washington. — Nýja tunglið i 10.
húsi. Stjórnin og athafnir hennar
undir mjög áberandi athygli. Áberandi
góð afstaða milli Sólar og Mars i Hrút,
sem gæti ýtt mjög undir liernaðar-
undirbúninginn. En áhrifin koma frá
þvi sem liggur bak við og er hulið, 12.
húsi. — Umræður og blaðaskrif nokk-
ur um þessi efni. — Júpiter og Úran
í 3. húsi. Truflanir í samgöngum og
flutningum, blaðaútgáfu og bóka,
fréttaflutningi og útvarpsstarfsemi.
Sprenging gæti átt sér stað í flutninga-
tæki. — Neptún í 6. húsi ásamt Satúrn.
Afstaða verkamanna slæm og verkföll
gætu átt sér stað. — Merkúr í 10. húsi.
— Stjórnin á í örðugleikum ýmsum
vegna afstöðu Rússa i stjórnmálum.
— Mars i 12. húsi. Urgur út af rekstri
betrunarhúsa og góðgerðastofnana og
vinnuhæla.
í s 1 a n d :
1. hús. — Sól ræður húsi þessu. —
Afstaða almennings ætti að vera sæmi- -
leg, en vandkvæði gætu komið til
greina frá útgerðarmönnum og fram-
leiðcndum.
2. hús. — Plútó er i liúsi þessu. —
Þetta er ekki álitleg afstaða í fjárhags-
málunum. Hætt er við að óvæntir, sak-
næmir verknaðir komi i dagsins ljós
i þeim viðfangsefnum.
3. hús. — Merkúr ræður liúsi þessu.
Tafir og truflanir birtast i flutning-
um og fréttaflutningi, útvarpi, bókum
og blöðum.
4. hús. — Neptún og Satúrn i húsi
þessu. — Sæmileg afstaða fyrir bænd-
ur og búalið. Þó gætu örðugleikar
nokkrir komið i ljós, sem trufla og
tefja framkvæmdir.
■ 5. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Hefir hann góða afstöðu Sólar og
Tungls, sem bendir á stuðning frá
liví opinbera við leikhúsarekstur og
leikara, en slæma afstöðu frá Úran
og .Túpíter i 12. húsi. Fjárhagsaðstöður
munn slæmar og rekstur dýr, en tekj-
ur rýrna. Urgur mun gera vart við
sig og koma í ljós.
6. hús. — Venus er i húsi þessu. —
Hefir allar afstöður slæmar. Verka-
menn og vinnandi lýður mun eiga i
örðugleikum nokkrum í viðleitni til
Framhald á bls. 14.
Lcikatriðið í „Bitter Rice“ sem gerði myndina heimsfræga. Stúlkurnar á rísekrunum vaðandi í forarpollunum
á ekrunum.