Fálkinn


Fálkinn - 11.02.1955, Síða 10

Fálkinn - 11.02.1955, Síða 10
10 FÁLKINN Vitið þér...? — Það er merkilegt að þeir skuli aldrei ruglast, þessir skopmynda- teiknarar. Á sumrin eiga þeir að hugsa um baðstaðamyndir og á veturna um jólamyndir ... — Getur það verið að skórnir mínir séu farnir að leka? — Þetta er ekki gúmmí-blaðra — það er maðurinn minn. Viðvaningur? Þessi smásaga gengur nú manna á milli í Washington: — Fyrir fimm árum komst Eisenhower hjá því að greiða 520.000 dollara skatt af tekjum þeim, sem liann hafði haft af bók sinni „Krossferð um Evrópu“. Mála- flutningsmanni hans tókst að sann- færa yfirskattanefndina um að tekj- urnar af bókinni væru skattfrjálsar, vegna þess að Eisenhower væri ekki atvinnurithöfundur heldur „viðvan- ingur“. — N'ú kvað annar skattasér- fróður maður hafa snúið sér til Hvíta hússins með fyrirspurn um, hvort Eisenhower geti ekki orðið skattfrjáls sem forseti, vegna þess að hann sé „viðvaningur sem forseti". Hvar er kvenfuglinn? 1. mynd: „Ég vil ekki lykilinn, Pusi.— Eg hendi honum. — Nei, það máttu ekki.“ — 2. mynd: „Þú mátt ekki henda honum,“ segir fiskur í læknum. „Leik- fangamaðurinn á hann.“ — 3. mynd: „Leikfangamaðurinn — iiver er það?“ ... „Það er skrítinn maður, skal ég segja ykkur. Fyrir nokkrúm dögum missti hann lykilinn sinn í lækinn. Ég leitaði að lionum en fann hann ekki. Hann á lieima þarna útfrá, rétt við vatnið. — 4. mynd: „Þá verðum við að fara þangað." Svo þökkuðu þau stóra drengnum fyrir sig og fóru svo af stað. — 5. mynd: Ætli það sé ekki hérna sem hann á heima? En hvers vegna er hann kallaður leikfangamaðurinn?" — 6. mynd: Þetta er fínt. Sjáðu, hérna er bjalla til að hringja. — 7. mynd: Góðan daginn. Er það liérna sem leikfangamaðurinn á heima?“ — 8. mynd: „Góðan daginn, börn. Já, það er ég. Komið þið inn fyrir. að i einu verkfalli 1951 vafð fram- leiðslutapið í U.S.A. svo mikið, að það mundi hafa numið 38% af fram- leiðslumagni eins árs i Evrópu allri, ef það hefði orðið þar. hvernig farið er að gera rign- ingu? Rigningin kemur eins og allir .vita eingöngu úr skýjum, og þvi aðeins að í skýjunum séu smáagnir, sem vatnsgufan getur safn^st á og þéttst og orðið að vatnsdropum. — Fljúgi maður yfir skýjaklakka, eða cumulus- ský, sem ekki rignir vegna þess að loftið í þeim er kyrstætt, er hægt að iáta skýið stækka með því að sá yfir það „þurrum ís“. Þá kemst loftið á hreyfingu og vatnsgufan þéttist og verður að iskrystöllum. Og eftir dá- litla stund getur rignt úr skýinu i marga klukkutíma. að lærlingar á rakarastofum í Los Angeles byrja námið með því að raka gúmmíblöðrur? Menn eru nefnilega ekki fúsir á að „leggja sig undir linifinn“ hjá yiðvan- ing, sem aldrei liefir rakað fyrr. En það er góð æfing að raka gúmmíblöðr- una, og hún segir til sjálf, ef liún er skorin, því að þá kemur hvellur og allur vindurinn hleypur út.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.