Fálkinn - 13.12.1957, Blaðsíða 12
6 ^*^*^*^*^*^*^#^#^*^Í#^*^*^*^# JÓLABLAÐ FÁLKANS 1957
4* 4 Hfc* 4* *!? 4* 4 4444444444444444444444444444444444444444444444444
leiðarstjarna vitringanna frd Austurlöndum
Eftir Sven Nielsen.
IN fegursta kirkja í
íheimi var reist til heið-
urs vitringunum frá
Austurlöndum — hinum
þiem heilögu konungum. Og öldum
saman hafa fremstu listamenn gert
fræg málverk af þeim. Myndir af þeim
eru í katakombunum í Róm, mósaik-
og freskó-myndir eru víða til af þeim
og andlit þeirra sjást á steinþróm
(sarkofag) og dyraskreytingu kirkna.
Vitringarnir hafa verið vegsamaðir í
söngvum og kirkjutónlist. Helgisögur
segja frá ævi þeirra. Stjörnuspámenn
hafa rannsakað festinguna og komist
að ótrúlegustu niðurstöðum um Betle-
hemsstjörnuna. Heilagir menn hafa
skráð og rannsakað af kappi allt, sem
þeir gátu fundið af upplýsingum um
vitringana. Jarðneskar leifar þeirra
eru geymdar sem dýrir helgigripir,
sem frægustu keisarar miðalda kom-
ust yfir og fluttu lieim í ríki sitt. Fólk
hefir gert þá að dýrlingum og vernd-
arvættum ferðamanna og sæluhúsa.
Oldum saman hafa menn fært þessa
frægu vitringa í frásögur, virt þá og
elskað og tilbeðið. Fyrrum þekktu
allir nöfn þeirra, vissu hvaðan þeir
komu og hvar þeir báru beinin. Fölk
vissi hve gamlir þeir voru, er þeir
komu til Betlehem til að tilbiðja og
hylla hinn nýja konung, sem fæddur
var. Fólk vissi livernig’' þeir voru
klæddir, er þeir komu að jötunni —
vissi live mikið af reykelsi og myrru
þeir höfðu meðferðis, hve þungt þetta
var og hve mörg stykki voru af
hverju. í stuttu máli: Fólk vissi allt
um ævi þeirra og ahafnir, þar var
allt skráð og bókfært, ekkert hafði
gleymst.
En hvað segir svo sjálf frumheim-
ildin, sem leitað er til þegar maður
vill kynna sér sögu vitringanna frá
Austurlöndum?
Nærri þvi ekkert! Fletti maður upp
í Biblíunni og lesi það sem guð,-
spjallamaðurinn Mattheus skrifar,
hlýtur maður að verða hissa, þvi að
hér er sáralítið af staðreyndum um
hina þrjá vitringa, ekkert, sem gefið
getur skýringu á, hvaðan fólk liafði
allt það sem það þóttist vita um hina
þrjá vitringa. Allt sem stendur um
þá í 2. kapítula felst í tólf fyrstu
versunum. Og Mattheus er sá eini af
guðspjallamönnunum, sem segir frá
þeim. Þó hefir ekki skort túlkanir á
ýmsum öðrum stöðum í Biblíunni til
að leita skýringa og upplýsinga um
vitringana, en hin fagra og látlausa
frásögn í versunum tólf er hið eina,
scm síðari tíma menri hafa haft að
hyggja á.
Hin stuttorða frásögn um vitring-
ana, fulltrúa konunganna, vitrustu
menn sinnar tiðar, sem yfirgáfu
heimili, fjölskyldu og vini, góð em-
hætti, auð og völd til þess eins að
láta stjörnu fylgja sér út á ókunna
stigu, til þess að ná fundi konungs,
sem var að fæðast i heiminn, hefir
frá fyrstu tíð konrið liugarfluginu á
kreik, og fengið fólk til að auka við
söguna, svo að nú er hún orðin ein
af fegurstu helgisögum, sem menn
þekkja.
HVERNIG HELGISAGAN VARÐ TIL.
Það er erfitt að segja hve mikið er
söguleg staðreynd í sögunni um vitr-
inganna þrjá, en enginn vafi getur
leikið á því, að mest af henni er skáld-
★
★
★
Þessi heimsfræga
mynd af vitring-
unum frá Austur-
löndum er eftir
þýska málarann
Albrecht Diirer.
Hún er ein af dýr-
mætustu fjársjóð-
um Galleria Uffizi
(Uffizimynda-
safnins) í Firenze.