Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1958, Qupperneq 3

Fálkinn - 10.01.1958, Qupperneq 3
FÁLKINN 3 „Værrgstýfðir englar“ Fyrir 110 árum var leikritið Erasmus Möntanus eftir Holberg sýnt á fyrstu herranótt Menntaskólans í Reykjavík, en áður hafði slíkur visir að leiklistarstarfsemi verið fóstrað- ur, nieðan skólahaldið var annars staðar. Upphaf herranæturinnar má rekja alla leið til Skálholtsskóla. Árið 1848 var frumsýningin á Þrettánd- anum og í ár er hún það líka. í leik- skránni með því leikriti, sem nú er sýnt, „Vængstýfðum englum“, er að því vikið, hvort ekki væri æskilegl að gera það að reglu framvegis, að hafa frumsýningu herranæturinnar á því kvöldi, og virðist það athyglis- verð hugmynd, þar sem jólaleyfi skól- ans mundi þá nýtast vel til undir- búnings og minni tími verða tekinn frá náminu sjálfu. Leikritið „Vængstýfðir englar“ er gamanleiktir í þremur þáttum cftir Sam og Bellu Spewack. Leikritið er samið eftir franska gamanleiknum La cuisine des Anges eftir Albert Husson. Eins og mörgum mun í fersku ntinni Framhald á bls. 14. Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson í aðalhlutverkunum. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Ailla ‘Winblad« Hcrranótt Menntaskólans 1958: Valdemar Helgason og Inga Þórðardóttir. Jólaleikrit Þjóðleikhússins að þessu sinni var Ulla Windblad eftir Carl Zuckntayer og annaðist Indriði Waage leikstjórn þess. Leikritið fjallar aðal- lega um þætti úr ævi Bellmans, hins kunna sænska tónskálds, og hin al- kunnu lög hans bera leiksýninguna uppi. Að öðru leyti er ekki mikil reisn yfir leikritinu, en þó gegndi furðu, hve vel ýmsum leikendum tókst að gæða hlutverkin líi'i á sviðinu. Tvö aðalhlutverkin — þau Bellman og Ullu Winblad, ástmey hans — eru leikin af Róhert Arnfinnssyni og Iíer- disi Þorvaldsdóttur, sem bæði skila hlutverkum sinum með prýði, sem þau hafa svo oft gert áður. Leikendur eru annars allmargir. Haraldur Björnsson leikur Gústav III. Svía- konung, Baldvin Halldórsson Elís von Schröderheim forsætisráðherra og Guðbjörg Þorbjarnardóttir Önnu Kar- lottu. Jón Aðils fer með lilutverk Lindcrona baróns, eiginmanns Ullu Winblad, og elsta og yngsta soninn af fyrra hjónabandi harónsins leika þeir Benedikt Árnason og Ólafur Jónsson. Inga Þórðardóttir fer með hlutverk Kajsu Lísu, eiganda knæp- unnar „Gullna friðarins“, og Valde- /iScf'--- Óskum öllum okkar lesendum nær og fjær gleöilegs nýárs. VIKUBLAÐIÐ FÁLKINN. mar Lárusson með hlutverk veitinga- mannsins og bruggarans Ljundholms. Morðingja konungsins, þá Anckar- ström og Horn greifa, leika Helgi Skúlason og Klemens Jónsson. Liðs- menn og Ijóðaverur Bellmans leika og syngja þeir Lárus Pálsson, Þor- steinn Hannesson, Ævar Kvaran, Kristinn Hallsson og Sverrir Kjart- ansson. Dr. Viktor Urbancic annast söngstjórn og Lothar Grund hefir gert leiktjöld og búninga, en þýðendur leikritsins éru Bjarni Guðmundsson og Egill Bjarnason. * Herdís Þorvaldsdóttir og Lárus Pólsson.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.