Fálkinn


Fálkinn - 09.10.1959, Side 9

Fálkinn - 09.10.1959, Side 9
FÁLKINN 9 lokað sat Cowles enn í horninu sínu. Hann sat lengi eftir að byrlarinn hafði tekið burt allar flöskur og slökkt á sumum lömpunum. — Ég ætla að fá að sitja hér einn dálitla stund, þegar byrlarinn horfði spyrjandi á hann. Loks var enginn eftir í vínstof- unni nema Cowles. Nú var allt orð- ið hljóðara. Kliðurinn ofan að var þagnaður, og Cowler þóttist vita, að farþegarnir uppi hefðu hallað aftur stólbökunum og ætluðu að fá sér blund um lágnættið. Svo leið hálftími. Allt í einu opn- uðust dyrnar á klefanum næsta við klefa senatorsins, og hefðarfrúin kom út. Hún var ljóshærð og alls ekki sem óásjálegust -— að minnsta kosti ekki álengdar séð. Án þess að líta til hægri eða vinstri opn- aði hún dyrnar á klefa senatorsins og fór inn. Cowles sat nokkrar sekúndur og var á báðum áttum. Gat hugsast, að þarna væri um ástarævintýr að ræða? Nei, það var óhugsandi, sérstak- lega af því að megnan ilm af „Speci- al nr. 127“ lagði af henni. Hann spratt upp úr stólnum og stakk hendinni ofan í hægri jakka- vasann, en þar var skammbyssan. Svo flýtti hann sér að klefadyrum senatorsins. Undir eins og hann lauk upp hurðinni sá hann að hann hafði komið á réttu augnabliki. Hefðar- frúin stóð á miðju gólfi. Hún hélt á skammbyssu með hljóðdeyfi í hendinni. Senatorinn lá sofandi á sófanum. Cowler var fljótur í snúningun- um. Hann sló skammbyssuna úr hendinni á kvenmanninum og hróp- aði — Upp með hendurnar! Sú ljóshærða hlýddi, en Cowles hringdi bjöllunni þrisvar. Von bráðar kom yfirþjónninn og flugfreyjan inn í klefann. Og fyrir aftan þau var Page, sem hafði farið að gruna margt, þegar hann sá þau þjóta niður stigann. Senatorinn var vaknaður og starði forviða kring- um sig. Hvað var um að vera .. . ? Cowles gaf skýringu á því. Og nú spurði Page: — Heldur þú að þetta sé Morri- son? í stað þess að svara kippti Cowles ljósu hárkollunni af höfði „Hefðar- frúarinnar". — Gerfið var ágætt — alveg fram á fægðar rauðu neglurnar, sagði hann. — Þetta gat hann allt gert á þessum þremur tímum í London. Vitanlvga fór hann ekki inn í borg- ina en 1 hús skammt frá flugvell- inum og þar hafði hann fataskipti. En hann hefði átt að hafa hugsun á að skipta um ilmvatn líka. — Ilmvatn? Page hugsaði. — Já, þetta er einkennileg lykt. Hvers konar lykt er þetta? — Floris „Special nr. 127“. Það var það, sem kom upp um Morri- son. Undir eins og ég fann þessa lykt þóttist ég vita, að ekki væri allt með felldu um þessa lafði Hammersmith. — Hvers vegna? — Vegna þess, að „Sþecial 127“ er karlmanna-ilmvatn, sagði Cowles. Enginn kvenmaður — allra sízt ensk hefðarfrú— mundi nokkurn tíma láta sér detta í hug að nota það. ☆ JOHANNES KEPLER Frœgastur allra lærisveina og samverkamanna Tycho Brdhes var Jóhannes Kepler. Foreldrar hans voru bœði œvintýraþyrst, og þegar faðirinn fór frá Jóhannesi tvævetrum í stríð, fór móðir hans með honum og drengnum var komið fyrir hjá öðrum. Faðirinn barðist víða sem leigudáti, en dó ungur, á heimleið frá Spáni. Jóhannes fœddist ófullburða og var jafnan bágur á heilsu, þótt hann yrði nær 60 ára. Hann var fœddur í Wurteberg 1571 og fékk svo sœmilega menntun, að árið 1594 varð hann kennari við menntaskólann í Graz x Steier- mark, en hrökklaðist þaðan árið 1600, vegna þess að hann var lúterskur og neitað að taka ka- þólska trú. Þá var Tycho Brahe í Praha og bau'ð honum aðstoðar- mannsstöðu hjá sér. En ekki unnu þeir saman nema eitt ár, því að Brahe dó árið eftir. En Kepler erfði embœtti hans og varð fyrir sömu reynslu og Bra- he, að erfiðlega gekk að fá um- samið kaup hjá keisaranum. Til þess að hafa ofan í sig að éta, tók hann að sér kennarastöðu í Linz fyrir sultarlaun, en leitaði líka á náðir keisarans, er hann var orðinn skuldunum vafinn. Keisarinn vísaði honum til Al- brechts von Wallenstein, her- stjóra síns, sem hafði tekið við fjárreiðum keisarans. Wallen- stein skipaði honum að reikna himintunglagang fyrir sig, en til þess langaði Kepler lítið. Síðustu stjörnuspár hans fyrir Wallen- stein eru frá árinu 1625, og þar stóð skrifað, að ef Wallenstein hefði áhuga á stjörhuspám, œtti hann að halda frið, svo að hin göfuga stjörnuspálist fengi að dafna í friði. í Linz var einnig hafin ofsókn gegn mótmœlendum og í sam- bandi við hana varð bœndaupp- reisnin 1625. Hrökklaðist Kepler þá úr kennarastöðunni þar. Þau árin, sem hann átti eftir ólifuð, var hann sífellt að basla við að fá greitt féð, sem keisarinn skuld- aði honum. En jafnframt vann hann að vísindum sínum til dauðadags, 1630. Hann átti jafn- an við mótlœti að stríða, en leit- áði huggunar í vísindunum, og eyddi sorgum sínum með því að glíma við ráðgátur stjörnugeims- ins. Um eitt merkasta rit sitt sagði hann svo í eftirmála: „Hvort þetta rit verður lesið eða gleymist af samtíð og komandi kynslóð — gildir mig einu. Þó verður það eflaust lesið eftir nokkur hundruð ár.“ Honum var fyrir mestu, að sannleikurinn sigraði að lokum. Kepler er mesti stærð- frœðingur allra brautryðj- enda stjarnfrœðinnar. En hann hafði líka frábœrt hugmyndaflug og hugboð, sem hann gat sam- einað vísindálegum staðreyndum sínum. Það var erfitt að skilja hugsanaferil hans, en honum skeikaði samt ekki. Vísindin voru honum helgidómur. í æsku var Kepler orðið Ijóst, að pláneturnar hreyfast sam- kvæmt ákveðnu lögmáli, sem hægt vœri að reikna stærðfrœði- lega. Af athugunum Tycho Bra- hes komst hann að þeirri niður- stöðu, að braut þeirra vœri spor- öskjulöguð, og að sólin vœri í öðrum brennipunkti þeirrar spor- öskju. Þetta varð undirstaða Kep- lerslögmálsins svonefnda, en það er í þremur liðum og ýmsar und- antekningar á þeim. —- Kepler gerði líka mikils- verðar uppgötvanir í Ijósfrœði. Hann gat t. d. gefið leiðbeining- ar um hvernig hægt væri að end- urbœta kíki Galileis, og auk þess smíðaði hann betri stjörnukíki en áður var til. Hann varð og fyrstur til að benda á örugga að- ferð til þess að reikna út stjörnu- og sólmyrkva. Og hann vann undirstöðustarf að uppgötvun Newtons á þyngdarlögmálinu, og benti á samband stjarnfrœðinn- ar og eðlisfrœðinnar. Kepler líkti hringrás stjarnanna við sigur- verk, þar sem hreyfingar stjarn- anna kæmi frá einum aflgjafa, svarandi til lóðanna í klukkunni. Árið 1619 gaf hann út ritið „Harmonices mundi“. Þar hugs- ar hann sér allar stjörnurnar, með mismunandi hraða, sem tóna í ákveðnu lagi, og hámarks- og lágmarkshraði hverrar stjörnu ákveðst af föstu lögmáli. Nú á tímum þykja sumar niðurstöður Keplers barnálegar, en eigi að síður var hann óralangt á undan sínum tíma, og sumar athuganir hans eru í fullu gildi enn þann dag í dag. j Chaplin hcfnr vit á prjáni Charles Chaplin og Dawn Add- ams voru viðstödd frumsýninga á „Konungur í New York“ í París. Dawn, sem er gift ítalska greifan- um Massimo, sýndi Chaplin peysu, sem hún hafði keypt og þóttist hafa gert reyfarakaup. Chaplin leit á peysuna, sem Dawn uppástóð að væri bandprjónuð, og sagði: „Nei, hún er úr prjónavél!“ Dawn varð hissa á prjónaþekkingu Chaplins, en hann gaf henni þá þessa skýr- ingu: „Þegar ég var barn prjónaði móðir mín fyrir annað fólk til að vinna fyrir mér og bróður mínum. En það dugði ekki til. Þess vegna kenndi þún okkur báðum að prjóna, svo að við gætum hjálpað henni í tómstundum okkar. Og síðan hef ég vit á prjónavörum,“ sagði hann. — Nú er Chaplin að undirbúa nýja kvikmynd. Vitanlega ætlar hann að leika í henni sjálfur, en þar er líka stórt barnahlutverk, og það á sonur hans — ellefu ára — að leika. —o— SUGA JAPANSPRINSESSA, sem stendur á tvítugu, hefur nú farið að dæmi bróður síns, Akihito krónprins, og giftst manni af borg- araætt. Trúlofunin hefur verið til- kynnt opinberlega, og mannsefnið er bankaritari og heitir Hisanga Shimazu. —o— SKUGGALEIKUR. — Ljós og skuggar í bessari mynd gæfu ástæðu til að halda að hér væri um impressionista-list að ræða. En þetta er Ijósmynd, tekin gegnum hálfglærar rúður í fatageymslu í leikhúsi í London. —o— MONTGOMERY TIL MOSKVA. „Monty“ marskálkur, sem nú er látinn af störfum fyrir nokkru gerði sér ferð til Moskva í aprílmánuði. Erindið er m.a. það, að ræða vanda- mál kalda stríðsins við Krúsév.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.